Innlent

Sekur um kynferðisbrot gegn barnungri stúlku

Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn barnungri stúlku. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að manninum hafi verið gert að greiða barninu 450 þúsund krónur í miskabætur.

Brotið átti sér stað í desember árið 2010 á heimili stúlkunnar en hún er fædd árið 2002. Maðurinn og móðir hans gættu stúlkunnar. Hún hafði sofnað í rúmi móður sinnar en vaknaði stuttu seinna við það að maðurinn var að nudda kynfæri hennar innan klæða. Maðurinn sagðist hafa verið að leita að farsímanum sínum.

Maðurinn hefur frá barnæsku átt við geðræna vandamál að stríða. Þá hefur hann verið greindur með ofvirkniröskun og Tourette-heilkenni. Hann hefur ekki áður sætt refsingu fyrir slíkt brot og var litið til þess við ákvörðun refsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×