Fleiri fréttir

Skjalasafnið fyllir 8.000 öskjur

Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS) afhendir Þjóðskjalasafni Íslands skjalasafn sitt til varðveislu í dag. Safnið er gríðarmikið vöxtum og geymir frumheimildir um merkilegan kafla í sögu 20. aldar á Íslandi.

Þriðji aðili fær aldrei upplýsingar

Kínverska fjarskiptatæknifyrirtækið Huawei tekur öryggismál afar alvarlega, að því er fram kemur í yfirlýsingu Kenneths Fredriksen, aðstoðarsvæðisforstjóra Huawei í Mið- og Austur-Evrópu auk Norðurlanda.

Kambódíubúar syrgja Sihanuk

Jarðneskar leifar Norodoms Sihanouk, fyrrverandi konungs Kambódíu, voru í gær fluttar heim til Kambódíu frá Kína þar sem hann lést á mánudaginn. Sihanouk hafði dvalið í Kína frá því í janúar, þar sem hann gekkst undir læknismeðferð. Sihanouk ríkti í Kambódíu á árunum 1941 til 1955 og síðan aftur frá 1993 til 2004, en þá tók sonur hans, Norodom Sihamoni, við tigninni.

Mikilvægt fólk fær ekki að fara frá Kúbu

Íbúar á Kúbu geta brátt ferðast úr landi án þess að þurfa að fá sérstaka brottfararheimild frá stjórnvöldum og greiða fyrir háa upphæð. Kúbustjórn tilkynnti um þetta í ríkisdagblaðinu Granma og sagði nýja fyrirkomulagið taka gildi 14. janúar.

Hundruð manna mótmæla

Jafnt kaþólskir íbúar Norður-Írlands sem mótmælendur tóku þátt í mótmælum í Belfast í gær gegn fyrstu fóstureyðingarstofunni sem opnuð er á Írlandi.

Hollande og Merkel greinir á um leiðir

Ágreiningur milli Angelu Merkel Þýskalandskanslara og François Hollande Frakklandsforseta setur svip sinn á tveggja daga leiðtogafund Evrópusambandsins, sem hófst í Brussel í gær.

Tímamótareikistjörnufundur

Evrópskir stjörnufræðingar hafa fundið reikistjörnu, álíka massamikla og jörðina, á braut um stjörnu í Alfa Centauri-kerfinu, sem er nálægasta stjörnukerfi við jörðina, í um 4,3 ljósára fjarlægð. Þetta kemur fram á Stjörnufræðivefnum.

Skoða mismunun í dönskum háskóla

Íslenskir námsmenn hafa lent í stappi við danskan háskóla vegna krafna um dönskukunnáttu. Mögulega brot á samningi milli Norðurlandanna. María Ósk Bender flutti út með fjölskylduna en var synjað þegar þangað var komið.

Ótrúleg björgun þegar fílskálfur féll í brunn

Þörf var á hröðum handtökum í Keníu á dögunum þegar tilkynnt var um átta mánaða gamlan fílskálf sem fallið hafði í brunn. Þrír vaskir náttúruverndarsinnar stukku þá til og brunuðu í átt að uppsprettunni.

Erlendar stúlkur í vanda

Tvær erlendar stúlkur hringdu kaldar og hræddar í Neyðarlínuna í kvöld. Þær gengu upp úr Hnífsdal fyrr í dag en týndust þegar rökkva tók.

Svona skal farga sparperum

Gera þarf varúðarráðstafanir þegar svokallaðar sparperur brotna og alltaf þarf að skila þeim í sérstök ílát á endurvinnslustöðum. Fréttastofa fékk sérfræðing hjá Umberfisstofnun til að sýna réttu handtökin við þessar perur.

Rekja hundaskítinn til eigandans

Ef erfðagreining yrði gerð á öllum hundum hér á landi væri tiltölulega auðvelt að hafa upp á þeim hundaeigendum sem skilja skít eftir ferfætlinga sína á víðavangi. Tvöhundruð íslenskir hundar hafa þegar verið greindir.

Beitir sér fyrir bættri aðstöðu á gjörgæslu

Lækni, sem sveið lélegur aðbúnaður sem ástvinum sjúklinga á gjörgæslu er boðið upp á, ákvað að gera eitthvað í málunum, skrifaði bók sem nýtist heilbrigðisstarfsfólki og lætur ágóðann renna í endurbætur á aðstöðunni.

Verulegar olíulindir gætu verið við Jan Mayen

Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, segir að á Jan Mayen-svæðinu gætu verið verulegar olíu- og gaslindir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu ráðherrans í tilefni þess að umhverfismat vegna olíuleitar í lögsögu Noregs á svæðinu er nú komið í opið umsagnarferli. Næstu þrjá mánuði, til 16. janúar 2013, býðst almenningi, félögum og stofnunum að senda inn athugasemdir, en umhverfismatið er liður í þeirri stefnumörkun norskra stjórnvalda að opna svæðið til olíuvinnslu.

Fyrrverandi starfsmaður Kaupþings þarf að greiða 641 milljón

Hæstiréttur staðfesti í dag að Helga Þór Bergs, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings, ber að greiða þrotabúi Kaupþings 641 milljón króna vegna láns sem Helgi tók hjá bankanum til kaupa á hlutabréfum í honum. Auk Helga tóku tugir aðrir starfsmanna Kaupþings lán fyrir hlutabréfakaupunum með persónulegri ábyrgð. Um hálfum mánuði fyrir fall bankans var ábyrgðunum hins vegar aflétt. Slitastjórn Kaupþings höfðaði mál gegn Helga og öðrum starfsmönnum og krafðist þess að afléttingu ábyrgðanna yrði rift og hafa nú bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur staðfest riftunina í tilfelli Helga.

Fær ekki bætur fyrir "smekklaus ummæli“

Hæstiréttur hafnaði í dag kröfum Heiðars Más Guðjónssonar um ómerkingu ummæla og miskabætur vegna fréttaflutnings í DV. Ummælin sem um ræddi þóttu mikilvæg í þjóðfélagsumræðu og þó þau hefðu að einhverju leyti verið sett fram af smekkleysi hefðu þau átt brýnt erindi til almennings.

Meintur brennuvargur í mánaðarlangt gæsluvarðhald

Karlmaður sem grunaður eru um að hafa borið eld að ýmsum stöðum í Árborg að undanförnu var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. nóvember næstkomandi. Nú síðast er maðurinn grunaður um að hafa kveikt í ruslakassa við veitingastaðinn KFC. Maðurinn var nýverið úrskurðaður í mánaðar gæsluvarðhald fyrir íkveikjur, að kröfu lögreglunnar á Selfossi, en Hæstiréttur ómerkti þann úrskurð, þannig að honum var sleppt úr haldi. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn hyggst áfrýja hinum nýja úrskurði.

Dreginn fyrir dómstóla fyrir að misbjóða heittrúuðum

Píanóleikarinn þekkti, Fazil Say, var leiddur fyrir dómstóla í Istanbúl í Tyrklandi ákærður fyrir að vekja hatur og misbjóða gildum múslima. Málið snýst um örfærslur sem hann skrifaði inn á Twitter síðu sína þar sem hann gerði góðlátlegt grín af öfgakenndum múslimum.

Búið að kæra framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar

Framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar um tillögur stjórnlagaráðs hefur verið kærð til landskjörstjórnar. Kærandi fer ekki fram á ógildingu kosninganna en vonast til þess að framkvæmdinni á atkvæðagreiðslu utan kjörfundar verði breytt.

Smyglari tekinn með dóp undir tungunni

Íslenskur karlmaður var í fyrradag stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar vegna gruns um að hann væri með fíkniefni í fórum sínum. Maðurinn ,sem er um fertugt, reyndist hafa falið fíkniefnin í umbúðum undir tungunni. Talið er að um kókaín sé að ræða. Lögreglan á Suðurnesjum gerði vettvangsskýrslu í málinu, haldlagði fíkniefnin og að því búnu var maðurinn frjáls ferða sinna. Hann á yfir höfði sér refsingu fyrir brot sitt.

Jóhanna hvetur fólk til að styðja tillögur stjórnlagaráðs

Þótt niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs verði neikvæð, breytir það ekki því að þörfin fyrir heildarendurskoðun stjórnarsrkárinnar verður söm og áður. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í dag. Sérstök umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna hófst á Alþingi klukkan tvö í dag, en málshefjandi var Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Bæði Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hafa eindregið hvatt kjósendur til þess að segja nei í atkvæðagreiðslunni.

Dæmigerða maríubjallan gerir sig heimakomna

Það er eitt og annað sem hlýnandi veðrátta hérlendis hefur í för með sér og nú bendir ýmislegt til þess að sjödeplan svonefnda, sem flestir þekkja sem klassísku maríubjölluna, sé að festa sig í sessi á landinu. Hingað til hefur hún reglulega borist til landsins með erlendum varningi en aldrei náð fótfestu.

Enn leitað að Rebekku

Lögregla leitar enn að Rebekku Rut Baldvinsdóttur. Rebekka Rut er 15 ára stúlka, ca. 156 sm.á hæð með sítt skollitað hár og grannvaxin. Rebekka var klædd í dökkbláa úlpu, hvítar náttbuxur með bleikum teinum og í svarta uppháa skó með hvítum botni síðast þegar til hennar spurðist.

Íhuga gæsluvarðhaldskröfu á hendur brunamanni

Lögreglan á Selfossi íhugar að krefjast enn á ný gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manni, sem ítrekað hefur borið eld að húsum í bænum að undanförnu, eftir að hann reyndi enn einu sinni að kveikja í húsi í gærkvöldi.

Lottóvinningshafinn ekki stigið fram

Íslendingurinn stálheppni sem vann rúmar hundrað og þrjár milljónir króna í Víkingalottói í gær hefur ekki gefið sig fram en vinningsmiðann keypti hann hjá N1 í Stórahjalla í Kópavogi.

Saksóknari Alþingis kostaði 66,8 milljónir

Heildarkostnaður við embætti saksóknara Alþingis vegna landsdómsmálaferlanna gegn Geir H. Haarde var 66,8 milljónir króna. Í fjárlögum var gert ráð fyrir 36,4 milljóna króna fjárheimildum og því var keyrt fram úr áætlunum um 30,4 milljónir króna.

Vilja gamla trillu á leikskólann

Landssamband smábátaeigenda fékk skemmtilega fyrirspurn á dögunum þegar starfsfólk á leikskólanum á Sæborg í Reykjavík óskaði eftir lítilli, gamalli trillu til að setja á leikskólalóðina.

Hætta við að hljóðrita ríkisstjórnarfundi

Ríkisstjórnarfundir verða ekki hljóðritaðir, en kröfur um ritun funda verða skýrari, samkvæmt nýju frumvarpi sem meirihluti stjórnskipunar og eftirlitsnefndar hefur lagt fram. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, mælti fyrir frumvarpinu í dag.

Tónleikar Rusty Anderson í Austurbæ hefjast klukkan 21 en ekki 22

Tónleikar Rusty Anderson, aðalgítarleikara Bítilsins Sir Paul McCartney, í Austurbæ í kvöld hefjast klukkan 21 en ekki klukkan 22 eins og kom fram í viðburðaupptalningu í Fréttablaðinu í dag. Upplýsingarnar sem þar komu fram áttu við tónleika gítarleikarans á Græna hattinum á Akureyri á föstudagskvöldið. Miðaverð á tónleikana í Austurbæ er 3.900 krónur.

Vopnahlé á fórnarhátíð gæti skipt sköpum

Lakhdar Brahimi, erindreki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins gagnvart Sýrlandi, skorar á stjórnarherinn og uppreisnarmenn að leggja niður vopn í fjóra daga meðan fórnarhátíð múslima er haldin síðar í þessum mánuði.

Hafragrautsmaður veldur lögreglunni hugarangri

Ökumaður sem ók á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í morgun sá hvar í bílnum við hliðina var karl um þrítugt og í aftursæti bifreiðarinnar var barn. Maðurinn var að borða graut undir stýri að sögn þess sem tilkynnti málið til lögreglu, en fullyrt var að um hafragraut hafi verið að ræða.

Borgin þurfi flugvöll til að sinna skyldum sínum

Greiðar flugsamgöngur landsbyggðarinnar til Reykjavíkur eru forsenda þess að borgin geti gegnt hlutverki sínu sem höfuðborg landsins alls. Þetta segir í bókun sem bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær þar sem rædd var nýútkomin skýrsla KPMG um áhrif þess að færa flugvöllinn úr Vatnsmýri.

Tugmilljónir í reiðhjólaförgun

Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn áætla að verja jafngildi tæpra 50 milljóna íslenskra króna í ár til þess að fjarlægja reiðhjól sem hafa verið yfirgefin víðs vegar um borgina.

Twitter lokar á nýnasista í Þýskalandi

Samskiptavefurinn Twitter hefur lokað á aðgang nýnasistagrúppu sem hélt uppi áróðri á vefnum. Það voru þýsk stjórnvöld sem kröfðust þess að aðgangnum yrði lokað. Tíst nýnasistagrúppunnar verður ekki sýnilegt notendum Twitter í Þýskalandi, þótt fólk í öðrum löndum geti séð það. Þetta er í fyrsta sinn sem samskiptavefurinn beitir svokölluðum heimaritskoðunarreglum, sem settar voru í janúar síðastliðnum. Sú regla gengur út á að loka á efni í tilteknum löndum ef tístið brýtur gegn lögum þar. Eins og kunnugt er hefur nýnasistaáróður verið bannaður í Þýskalandi frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

Ný lestrarstefna í grunnskólum borgarinnar

Skóla- og frístundaráð samþykkti í gær nýja lestrarstefnu fyrir grunnskóla Reykjavíkur. Með henni á að auka vægi lestrar og ritunar á öllum skólastigum.

Allt að 20 gráðu hiti og sól í Danmörku

Á meðan kalt veður er allsráðandi á Íslandi búa frændur okkar Danir við þann sjaldgæfa lúxus að allt að 20 gráðu hiti er í Danmörku í dag með sól og blíðu. Það er afarsjaldgæft að svo mikill hiti mælist í landinu í miðjum október.

Yfir 10 þúsund krefjast Betra lífs

Nú hafa rúmlega 10 þúsund skrifað undir í kröfuna um Betra líf fyrir þolendur áfengis- og vímuefnavandans. SÁÁ kynnti átakið fyrir tæpum tveimur vikum. Þeir sem skrifa undir skora á stjórnvöld að verja 10 prósent af áfengisgjaldinu til að byggja upp endurhæfingu fyrir mikið veika áfengissjúklinga, aðstoð við fólk eftir meðferð til að komast til virkni í samfélaginu og úrræði fyrir börn sem alast upp við álag vegna mikillar ofneyslu á heimilum sínum.

Níu af tíu réðu fólk í fyrra

Samdráttartímanum í íslensku atvinnulífi er líklegast lokið þó að ekki sé útlit fyrir mikinn vöxt á næstunni. Níu af hverjum tíu fyrirtækjum og stofnunum réðu til sín fólk á síðasta ári. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar Arneyjar Einarsdóttur og Katrínar Ólafsdóttur, lektora við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, sem verða kynntar í dag.

Sjá næstu 50 fréttir