Fleiri fréttir

Skógareldar við Los Angeles

Slökkviliðsmenn í Los Angeles í Bandaríkjunum berjast nú við mikla skógarelda sem blossuðu upp í gær. Rúmlega 1.600 hektara svæði hefur orðið eldi að bráð en slökkviliðsmönnum hefur aðeins tekist að hemja um fimm prósent eldanna.

Ríkiskaup vilja ógilda úrskurð kærunefndar og segja upp rammasamningi

Ríkiskaup hafa ákveðið að höfða mál til ógildingar úrskurðar kærunefndar útboðsmála sem komst að þeirri niðurstöðu í ágúst að Ríkiskaup hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup þegar tilboði Icelandair í útboði um flugsæti til og frá Íslandi í mars á síðasta ári var tekið.

Mannfall í Norður-Kóreu eftir fellibyl

Hátt í fimmtíu manns létust þegar fellibylurinn Bolaven gekk yfir Norður-Kóreu um helgina. Þá eru rúmlega fimmtíu sárir og margir af þeim lífshættulega slasaðir.

Lögreglan leitar að gerendum og þolanda í árásarmálinu

"Okkur hefur ekki tekist að finna út hverjir þetta eru sem þarna eiga hlut að máli,“ segir Gylfi Sigurðsson, lögreglumaður á lögreglustöðinni í Kópavogi um árás þriggja pilta á sex ára gamlan dreng fyrir helgi. Gylfi segir í samtali við Vísi að málið sé rannsakað af fullri alvöru.

Skriðdrekinn verður endurbyggður

Til stendur að byggja nýjan skriðdreka í stað þess sem brann í skemmtigarðinum við Gylfaflöt í Grafarvogi. Það voru óprúttnir aðilar sem lögðu eld að skriðdrekanum sem var þó ekki hefðbundið hertól heldur smíðaður úr keflum, símastaur og tréi.

Ljósanótt fór vel fram

Nýafstaðin Ljósanótt í Reykjanesbæ fór vel fram og gekk þáttur löggæslu í bænum vel að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Hátíðin hófst á fimmtudagsmorgun og náði hámarki á laugardagskvöld þegar um tuttugu þúsund gestir voru saman komnir, meðal annars til að fylgjast með flugeldasýningu.

Facebook-morðingi í ársfangelsi

Fimmtán ára gamall piltur í Hollandi hefur verið dæmdur til eins árs betrunarvistar fyrir að hafa orðið 14 ára stúlku að bana. Aðdraganda morðsins má rekja til rifrildis á samskiptamiðlinum Facebook.

Barnavernd Reykjavíkur hefur ekki fengið tilkynningu um árásina

Barnavernd Reykjavíkur hefur ekki verið látin vita af því atviki þegar piltar á aldrinu 12-13 ára réðust á sex ára gamlan dreng fyrir helgi. Drengurinn var með bolta sem þeir ásældust. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri barnaverndar Reykjavíkur, býst þó fastlega við því að barnavernd verði gert viðvart um málið að því gefnu að gerendurnir séu með lögheimili í Reykjavík.

Dæmi um að börn þori ekki út vegna óvæginnar umfjöllunar á netinu

Umboðsmanni barna bárust margar ábendingar um umfjöllun fjölmiðla og birtingu mynda og upplýsinga um börn og hagi þeirra að því er fram kemur í ársskýrslu Umboðsmanns barna sem birtist í dag. Umboðsmaður telur að fjölmiðlar, og stundum foreldrar, gangi of langt með umfjöllun um einkamálefni barna sem ættu í raun að njóta friðhelgi.

Klettamyndanir á botni Eystrasaltsins - ekki geimskip

Fyrirbærið sem hafrannsóknarmenn fundu á botni Eystrasaltsins í maí árið 2011 hefur heillað marga. Sumir halda því fram að aldagamalt geimskip liggi þar á hafsbotni meðan aðrir telja hlutinn vera leynivopn nasista frá seinni heimsstyrjöld. Hluturinn, sem er disklaga, er á stærð við Boeing 747 breiðþotu.

Börn oft send til ofbeldisfulls foreldris - vilja betri lög

Umboðsmaður barna telur óumdeilt að ofbeldi ætti að hafa mun meira vægi þegar teknar eru afdrifaríkar ákvarðanir um aðstæður barna fyrir dómsstólum. Í ársskýrslu embættisins fyrir síðasta ár kemur meðal annars fram að dregið sé í efa að börnum sé tryggð fullnægjandi vernd gegn ofbeldi í íslenskri réttarframkvæmd.

Lést í sjóslysi á leið frá Íslandi

Tæplega sjötugur karlmaður lést eftir að hann féll af skútu sinni vestur af strönd Nýfundnalands á laugardag. Maðurinn, sem var skurðlæknir og prófessor við Harvard háskóla, var á siglingu frá Íslandi til Bandaríkjanna þegar slysið varð, að því er fram kemur á vef CBC fréttastofunnar. Stormur og mikill öldugangur var þegar slysið varð. Fjölskylda mannsins, sem hét Ned Cabot, segir að hann hafi verið vanur siglingamaður og hafi oft ferðast milli Norður Ameríku og Evrópu og hafi þekkt strendur Nýfundnalands og Labrador mjög vel.

Russell Crowe bjargað af strandgæslunni

Strandgæsla Bandaríkjanna kom Íslandsvininum Russell Crowe til bjargar um helgina. Leikarinn var á kajaksiglingu ásamt félaga sínum við Long Island í New York þegar þeir villtust af leið.

Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein

Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein á alvarlegra stigi en áður. Þannig þurfa tvöfalt fleiri konur að fara í geisla- eða lyfjameðferð vegna krabbameinsins nú en fyrir áratug. Yfirlæknir segir ástæðuna þá að færri konur mæti reglulega í krabbameinsleit.

Átök harðna í Sýrlandi

Að koma á friði milli stríðandi fylkinga í Sýrlandi er gífurlega erfitt verkefni. Þetta segir Lakhdar Brahimi, nýr erindreki Sameinuðu Þjóðanna og Arabandalagsins í Sýrlandi. Hann heimsækir landið á næstu dögum mun þá reyna að miðla málum milli uppreisnarmanna og stjórnvalda í Sýrlandi.

Drengurinn ekki beinbrotinn heldur alvarlega tognaður

Drengurinn sem ráðist var á í Bökkunum í Breiðholti um helgina er ekki jafn illa slasaður og í fyrstu var talið. Fjórir piltar á aldrinum 12 - 13 ára réðust á hann á fótboltavelli þar sem þeir ætluðu að taka af honum fótbolta. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að drengurinn hefði beinbrotnað í árásinni. Í ljós hefur komið að drengurinn tognaði alvarlega á hendi og fékk að auki miklar blóðnasir.

Þór Saari segist hafa verið skilinn útundan

Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar segir formann atvinnuveganefndar Alþingis hafa skilið sig útundan í störfum trúnaðarmannahóps um fiskveiðifrumvarpið með því að boða hann ekki á fundi hópsins í ágúst. Formaður nefndarinnar segir Þór Saari hafa gefið í skyn að hann vildi ekki mæta á fundina.

Bruce Willis íhugar málshöfðun gegn Apple

Bandaríski stórleikarinn Bruce Willis íhugar nú að höfða mál á hendur tæknirisanum Apple og vefversluninni iTunes. Willis, sem er mikill tónlistarunnandi, krefst þess að hann fái að ánafna fjölskyldu sinni tónlistarsafni sínu þegar hann geispar loks golunni.

Barnavernd skoði mál piltanna þriggja sem réðust á litla drenginn

"Við erum búin að vera að ræða þetta hér," segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, um mál piltanna þriggja sem réðust á sex ára gamlan dreng um helgina og beinbrutu hann. Piltarnir eru tólf til þrettán ára gamlir en þeir viltu ná í bolta sem litli drengurinn var með.

Átta á hraðferð og einn valt

Átta ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Vestfjörðum í liðinni viku, þar af var einn stöðvaður í nágrenni Patreksfjarðar en sjö á Djúpvegi.

Harry Bretaprins og súludansmeyjan í Las Vegas

Enn eru að berast fréttir úr hinni villtu veislu Harry Bretaprins á lúxushóteli í Las Vegas nýlega. Nú hefur rúmlega þrítug súludansmey stigið fram og segir að hún hafi eytt 15 til 20 mínutum með Harry í svefnherbergi hans á hótelinu.

Grímuklæddur Jón Gnarr býður góðan daginn

Grímuklæddur Jón Gnarr borgarstjóri birtist landsmönnum í nýju myndskeiði sem sett hefur verið inn á vef Reykjavíkurborgar til þess að minna á að í dag er "Góðan daginn" dagurinn.

Tafir vegna mynda Stillers

Tímabundnar tafir eru á umferð yfir Borgarfjarðarbrú vegna töku á kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá íslenska kvikmynda- og þjónustufyrirtækinu True North, sem Skessuhorn greinir frá í dag. Auk þess verður aðreinin sem liggur frá Geirabakarí að þjóðveg eitt norðanmegin við brúna lokuð umferð.

Foreldrar reyna að ná sáttum í fólskulegu líkamsárásarmáli

Unnið er að því að finna lausn á alvarlegu líkamsárásarmáli á milli foreldra barna sem í hlut eiga, en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að fjórir 12- 13 ára piltar hafi gengið í skrokk á sex ára dreng um helgina, með þeim afleiðingum að hann handleggs- og kinnbeinsbrotnaði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi hefur málið ekki borist embættinu enn þá.

Þriggja pilta leitað eftir hrottalega árás á barn

"Þetta var alveg hræðilegt. Þegar ég kom á svæðið liggur drengurinn blóðugur á jörðinni og þeir hlupu í burtu," segir Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfari. Hann varð vitni að fólskulegri árás fjögurra 12 til 13 ára pilta á sex ára dreng.

Stálin stinn mætast á makrílfundinum í London

Áhrifamenn í norskum sjávarútvegi og starfsbræður þeirra í Evrópusambandinu leggja hart að samningamönnum sínum að gefa Íslendingum og Færeyingum ekkert eftir í makríldeilunni, en deilendur koma saman til fundar í London í dag.

Gráösp valin tré ársins

Skógræktarfélag Íslands útnefnir gráösp Tré ársins 2012 við hátíðlega athöfn að Brekkugötu 8 á Akureyri um daginn. Tréð er í eigu Sigríðar Maríu Hammer og Páls Steindórs Steindórssonar.

Fær þakkir frá fólki úti á götu

Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, hefur verið iðinn við kolann að benda á það sem betur mætti fara í málfari fjölmiðla.

Sun Myung Moon er látinn

Sun Myung Moon leiðtogi Einingarkirkjunnar í Suður Kóreu er látinn 92 ára að aldri. Banamein hans var lungnabólga.

Smærri lönd líka með

Verkefnið Almannarómur, samstarf tæknirisans Google, Háskólans í Reykjavík (HR) og Máltækniseturs, var frumraun samstarfs sem gerir fólki á smáum málsvæðum kleift að nýta sér raddleit Google (e. Voice Search) í snjallsímum. Íslenska er meðal þrettán nýrra tungumála sem bætt var við raddleitina um miðjan ágúst.

Aðstæðurnar góðar á Íslandi

"Sjósport er vaxandi jaðaríþrótt á Íslandi," segir ofurhuginn Janis Kozlovskis sem hélt sér í flugdreka og stóð á brimbretti við Seltjarnarnes.

Sáning á birkifræi hefur gefið góða raun

Vegna góðs fræárs hjá birkitrjám biðla Hekluskógar til einstaklinga, skóla eða félagasamtaka um að safna birkifræi á höfuðborgarsvæðinu og víðar um sunnan- og vestanvert landið. Að sögn Hreins Óskarssonar, verkefnisstjóra Hekluskóga, hefur verið samið við Endurvinnsluna um að taka við fræinu síðustu vikuna í september.

Sálgæslu barna verður að efla

Aðeins í Reykjavík er bakvaktaþjónustu barnaverndarnefndar haldið úti allan sólarhringinn. Forstjóri Barnaverndarstofu segir þjónustuna víða með öllu óviðunandi. Rætt er um sameiginlega bakvakt alls höfuðborgarsvæðisins.

Sjá næstu 50 fréttir