Ríkiskaup vilja ógilda úrskurð kærunefndar og segja upp rammasamningi 3. september 2012 16:21
Ríkiskaup hafa ákveðið að höfða mál til ógildingar úrskurðar kærunefndar útboðsmála sem komst að þeirri niðurstöðu í ágúst að Ríkiskaup hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup þegar tilboði Icelandair í útboði um flugsæti til og frá Íslandi í mars á síðasta ári var tekið. Ríkiskaup tók báðum tilboðunum og gerði rammasamning við bæði félögin, en ríkisstofnanir hafa átt sáralítil viðskipti á grundvelli samningsins við Iceland Express. Þá ákvað ríkið þrátt fyrir mótmæli Iceland Express að setja ekki skorður á punktasöfnun ríkisstarfsmanna með miðakaupum hjá Icelandair, sem skekkir mjög samkeppnisstöðuna að mati IE að mati kærunefndarinnar. Í tilkynningu frá Ríkiskaupum kemur fram í máli Halldórs Ó. Sigurðssonar, forstjóra Ríkiskaupa að „markmið Ríkiskaupa er alltaf að leita að hagstæðustu kjörum fyrir ríkið. Markmið rammasamningsins um flugsæti er að koma til móts við þarfir kaupenda um hagstæð flugfargjöld og að tryggja nægjanlega tíðni ferða og áreiðanleika þannig að spara megi dagpeninga- og gistikostnað." Útboðið náði til fimm algengra áfangastaða; Kaupmannahöfn, London, Brussel, New York og Boston. Samið var við Icelandair um alla fimm áfangastaðina og við Iceland Express um fjóra af fimm áfangastöðum þar sem félagið bauð ekki flug til Brussel. Samið var til eins árs með heimild til framlengingar tvisvar sinnum í eitt ár í senn. Á samningstímabilinu hætti Iceland Express að fljúga til Boston og New York þannig að félagið býður nú eingöngu upp á flug til London og Kaupmannahafnar í rammasamningi. Svo segir í tilkynningunni að ljóst sé að útboðið hefur ekki skilað tilætluðum árangri og því munu Ríkiskaup nýta uppsagnarákvæði samningsins og hefur honum verið sagt upp með tilskyldum fyrirvara. Hafinn er undirbúningur að nýju útboði.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira