Erlent

Handtóku þekktan ungverskan glæpaforingja á Spáni

Spænska lögreglan segir að hún hafi handtekið hinn rúmlega fertuga Robert Magyar leiðtoga ungversku glæpasamtakanna Fekete Sereg eða Svarta hersins.

Magyar er grunaður um morð, ólöglega skotvopnaeign, fjárkúgun og fleiri glæpi. Magyar náðist á Marbella en hann hefur lengi verið ofarlega á lista glæpamanna sem eftirlýstir eru á Spáni.

Í frétt á Fox sjónvarpsstöðinni er sagt að Magyar sé einnig eftirlýstur á Íslandi, Í Noregi og Sviss. Hinsvegar finnst ekkert um þennan mann á vefsíðu Ríkislögreglustjóra né á vefsíðu Interpol.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×