Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rússar ásaka Vesturlönd Rússnesk stjórnvöld ásökuðu í gær Vesturlönd fyrir að kynda undir uppreisn og átökum í Sýrlandi, sama dag og sjálfsvígsárás í höfuðborginni Damaskus kostaði nokkra nánustu samstarfsmenn Bashar al Assads forseta lífið. 19.7.2012 00:15
Nútíma riddari í pílagrímaför um Kanada Tuttugu og tveggja ára gamall riddari ferðast nú um Kanada í fullum herklæðum og á hestbaki. Hann boðar fagnaðarerindi ástarinnar, hreinskilni og virðingar. 18.7.2012 23:07
Hótað lífláti fyrir neikvæða gagnrýni Stjórnendur kvikmyndavefsíðunnar Rotten Tomatoes hafa lokað fyrir athugasemdir notenda á nýjustu Batman kvikmyndina. Þetta var ákveðið eftir að gagnrýnanda bárust líflátshótanir vegna neikvæðrar umfjöllunar um The Dark Knight Rises. 18.7.2012 22:00
Maður á níræðisaldri varð undir dráttarvél Karlmaður á níræðisaldri varð undir afturhjóli dráttarvélar í Brynjudal í botni Hvalfjarðar í kvöld. 18.7.2012 21:56
Sækja bæði um rannsóknarleyfi við Aldeyjarfoss Tvö stærstu orkufyrirtæki landsins, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Norðlendinga, bítast nú um rannsóknarleyfi vegna 90 megavatta virkjunar við Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti. Orkustofnun þarf að gera upp á milli þeirra þar sem aðeins einn aðili getur haft slíkt leyfi á hverjum tíma. Virkjun Skjálfandafljóts efst í Bárðardal er áratugagömul hugmynd, um tíma var hún kölluð Íshólsvatnsvirkjun en nú Hrafnabjargavirkjun. 18.7.2012 19:30
Norðmenn og Dani með fyrsta vinning Þrír höfðu heppnina með sér í Víkingalottóinu í kvöld. Dani og tveir Norðmenn skiptu fyrsta vinnings á milli sín, hver og einn fær tæpar 40 milljónir í sinn hlut. 18.7.2012 19:29
Huga að gröfum hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum Sérstök nefnd sem passar upp á að vel sé hugsað um grafir þeirra hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum kom til Íslands í dag til skoða hermannagrafreitinn í Fossvogskirkjugarði. Nefndarmenn heimsækja tugi landa á hverju ári. 18.7.2012 20:00
Sexfalt fleiri skjálftar í Kötlu en venjulega Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að eitthvað mjög óvenjulegt sé að gerast í Kötlu. Fjöldi smáskjálfta á þessu ári nálgist sexhundruð en venjulega mælist langt innan við eitthundrað skjálftar á sama tíma. Hegðun Kötlu var raunar allt annað en venjuleg í fyrrasumar þegar hún skyndilega sendi frá sér svo magnað hlaup að brúna yfir Múlakvísl tók af. 18.7.2012 18:45
Segja kosningarnar sannanlega ógildar Sá hópur kjósenda, sem gert var að kjósa með aðstoð kjörstjórnarfulltrúa, tók ekki þátt í leynilegum kosningum, segir í kæru sem öryrkjar hafa sent Hæstarétti vegna forsetakosninganna. Í kærunni segir að kjósendur hafi ekki haft ástæðu til að bera trúnað til umræddra kjörstjórnarfulltrúa og hann hafi að auki verið fulltrúi stjórnvalda. 18.7.2012 17:15
Ísraelskir ferðamenn drepnir í Búlgaríu Að minnsta kosti þrír eru látnir og yfir tuttugu særðir eftir að rúta með ísraelska ferðamenn var sprengd í loft upp borginni Burgas í Búlgaríu nú fyrir stundu. Samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins sást maður ganga inn í rútuna og nokkrum sekúndum síðar sprakk hún í loft upp. Flugvellinum í borginni hefur verið lokað og eru miklar öryggisráðstafnir víða um borg. 18.7.2012 16:38
Fundu afritunarbúnað á hraðbanka í Reykjavík Afritunarbúnaður fyrir greiðslukort fannst á hraðbanka í miðborg Reykjavíkur þann 7. júlí síðastliðinn og hefur fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verið með málið til rannsóknar. Rannsókn málsins leiddi til þess að á fimmtudag í síðustu viku var erlendur karlmaður um þrítugt handtekinn á Akureyri grunaður um að hafa komið búnaðinum fyrir á hraðbankanum. Ekki er talið að tekist hafi koma afrituðum greiðslukortaupplýsingum í umferð. 18.7.2012 16:30
Rúta sprengd í loft upp Fjórtan fórust og fjölmargir eru særðir eftir að lítil rúta sprakk í loft upp í bænum Peshawar, í norðausturhluta Pakistan í dag. Rútan var á leið milli tveggja þorpa þegar hún keyrði á sprengju sem komið hafði verið fyrir á þjóðveginum. Þrjár konur og þrjú börn eru á meðal hinna látnu. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu en sprengjur sem þessar eru algengar á svæðinu. 18.7.2012 16:10
Fólk reiðubúið til að greiða tugi þúsunda fyrir dýrin sín Töluvert er um það að fólk óski eftir því að dýralæknar á Dýraspítalanum í Víðidal geri kostnaðasamar aðgerðir á dýrum þeirra. Vísir sagði í dag frá litlum kettlingi sem fannst á göngubrú yfir Kringlumýrarbraut. Honum var ekið á Dýraspítalann þar sem kom í ljós að hann var fótbrotinn og aðgerð kostar 70-100 þúsund krónur. Ólöf Loftsdóttir, fagdýralækni gæludýrasjúkdóma, segir að dýrustu verkefnin séu aðgerðir vegna slysa, til dæmis fótbrot. Fólk vilji venjulegast láta gera allt sem hægt er að gera fyrir dýrin sín, en öðru máli geti gegnt um óskiladýr. 18.7.2012 15:50
Heimdallur lýsir eftir Jóni Gnarr Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hafa búið til viðburð á samskiptasíðunni Facebook þar sem lýst er eftir Jóni Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík. Á síðunni segir að ekkert hafi spurts til borgarstjórans í þó nokkurn tíma og hefur félagið að hann sé "týndur og tröllum gefinn og boðar því til samkeppni þar sem vegleg fundarlaun eru í boði." 18.7.2012 15:45
Útskrifuð af gjörgæslu Tólf ára gömul stúlka sem slasaðist alvarlega þegar hún varð undir dráttarvél, sem var með sláttuvél í eftirdragi, á sveitabæ skammt frá Sauðárkróki í byrjun mánaðarins, hefur verið útskrifuð af gjörgæsludeild. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu liggur stúlkan núna á almennri deild og er líðan hennar eftir atvikum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug með stúlkuna til Reykjavíkur þar sem undirgekkst aðgerð en hún var með áverka á fótum og höndum. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Sauðárkróki er slysið í rannsókn. 18.7.2012 15:37
Hollensk yfirvöld aðstoða FBI Yfirvöld í Hollandi og bandaríska alríkislögreglan eru nú komin í samstarf vegna rannsóknar á því hvers vegna nálar fundust í kalkúnasamlokum um borð í flugvélum Delta Air Lines-flugfélagsins á dögunum. Fjórar nálar fundust í samlokum í fjórum flugum frá Amsterdam í Hollandi til Bandaríkjanna. Tveir farþeganna sem fengu stungusár í munninn, eftir að hafa bitið í samlokuna sína, hafa leitað til læknis til að fyrirbyggja HIV-smit. Málið þykið mjög alvarlegt og á meðan rannsókn stendur yfir hefur sala á kalkúnasamlokum um borð í vélum félagsins verið hætt. 18.7.2012 15:12
Lítill og krúttlegur orkubolti sem erfitt er að láta frá sér Það var lítil og sæt tveggja mánaða gömul læða sem mætti tveimur starfskonum Sjálfsbjargar, landssamtökum fatlaðra, þegar þær gengu göngubrú yfir Kringlumýrarbraut á dögunum. 18.7.2012 15:11
Býst við rífandi stemningu á sjósundmóti "Það verður rífandi stemning. Það er engin spurning," segir Benedikt Hjartason sjósundkappi. Íslandsmeistaramótið í sjósundi fer fram í Nauthólsvík klukkan fimm í dag. Yfir sextíu manns hafa nú þegar skráð sig. "Svo kemur fólk á síðustu stundu þegar það sér hvernig veðrið er," segir Benedikt og hlær. 18.7.2012 14:42
Fá fúlgur fjár frá hinu opinbera Fjórir fyrrverandi forsætisráðherrar í Bretlandi þéna hver um sig 100 þúsund sterlingspund, eða tæpar 20 milljónir, í eftirlaun á ári frá breska ríkinu. Til viðbótar þéna þau miklar fúlgur árlega fyrir að halda fyrirlestra og sem ráðgjafar fyrir einkafyrirtæki. 18.7.2012 13:45
Heitt vatn lak í kjallara fjölbýlishúss Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út upp úr klukkan ellefu í morgun eftir að tilkynnt var um vatnsleka í fjölbýlishúsi við Skipalón í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra brotnaði krani í kjallara hússins og flæddi heitt vatn um svo íbúar stóðu ráðalausir. Mikill hiti og gufa myndaðist í kjallarnum og þurftu slökkviliðsmenn að klæða sig í þykka hlífðargalla svo hægt væri að stöðva lekann. Ekki liggur fyrir hvort að mikið tjón hafi hlotist af lekanum. 18.7.2012 13:31
Mandela er 94 ára í dag Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, er 94 ára í dag og fagna íbúar í heimabæ hans, Qunu, því með veisluhöldum í dag. Á meðal gesta sem heimsóttu bæinn í dag var Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem hefur verið náinn vinur forsetans fyrrverandi síðustu ár. 18.7.2012 12:58
Nubo byggir á 1,4% af landi Grímsstaða sem keypt verður Huang Nubo mun ráðast í framkvæmdir á 1,4 prósentum af landinu Grímsstöðum á Fjöllum sem félagið GáF ehf. í eigu sjö sveitarfélaga mun kaupa og leigja honum síðan. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra óttast að uppbygging Nubos komi til með að kljúfa samfélag okkar í herðar niður, eins og hann kemst að orði. Samningar við Nubo um leigu á jörðinni eru á lokastigi. Hann ætlar að byggja hótel, eitt hundrað einbýlishús og golfvöll á svæðinu. 18.7.2012 12:27
Kæran send Hæstarétti í dag Öryrkjabandalag Íslands mun senda kæru til Hæstaréttar Íslands á næsta klukkutímanum. Það er Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hefur meðal annars unnið að málinu með Öryrkjabandalaginu. 18.7.2012 12:14
Varnarmálaráðherra Sýrlands drepinn í sprengjuárás Varnamálaráðherra Sýrlands, Daoud Rajiha, lét lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í miðborg Damaskus í morgun. Átökin í borginni fara stigvaxandi með hverju degi. 18.7.2012 12:00
Bjóða upp á áfenga drykki á Hrafnistu Bryddað verður upp á þeirri nýjung á Dvalarheimilinu Hrafnistu að selja heimilisfólki og gestum áfenga drykki í endurnýjuðum matsal sem gera á að kaffihúsi. Bylting í þjónustunni við fólkið, segir forstjórinn. 18.7.2012 12:00
Vill spara hundruð milljóna með rafrænni þjónustu Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Íslendingar ættu að vinna af fullri alvöru að taka upp rafrænar kosningar. Framkvæmd kosninga sé gamaldags og miðað við þá tækni sem er til staðar sé hægt að auka möguleika á þessu sviði og spara hundruð milljóna. 18.7.2012 11:53
Sandsílastofninn á enn undir högg að sækja Ástand sandsílastofnsins er enn slakt á suður- og vesturhluta landsins samkvæmt nýrri mælingu Hafrannsóknarstofnunar. Tíu daga sandsílaleiðangri á rannsóknarskipinu Dröfn RE 35 er nýlokið. Stærð sandsílastofnsins skiptir verulegu máli fyrir lífríkið því um er að ræða eina helstu fæðu allra sjófugla, ef súla og dílaskarfur er undanskilinn. 18.7.2012 10:42
Vissu ekki að þau væru "týnd" - ætla að halda áfram för sinni "Það var allt í góðu hjá þeim og ákváðu að halda áfram för sinni,“ segir Einar Eysteinsson, hjá slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þýsku hjónin sem leitað hefur verið að síðan síðdegis í gær komu í leitirnar í morgun en það voru björgunarsveitarmenn sem fundu hjónin. 18.7.2012 10:18
Hannes Hólmsteinn: "Brottrekstur Snorra er hneyksli" Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, tekur upp hanskann fyrir Snorra Óskarsson í Betel, sem var á dögunum rekinn úr starfi sem grunnskólakennari við Brekkuskóla á Akureyri vegna skrifa á persónulega bloggsíðu um samkynhneigð. 18.7.2012 10:03
Fíkniefnabrot þriðjungi fleiri í ár Fíkniefnabrot voru um þriðjungi fleiri fyrstu sex mánuði ársins en á sama tímabil í fyrra. Samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra voru 996 brot skráð á tímabilinu janúar til júní nú í ár. Um 72% brotanna voru vegna vörslu eða meðferðar fíkniefna, 9,7% voru vegna framleiðslu fíkniefna, 2% vegna sölu eða dreifingar og 5,.5% vegna innflutnings efna. Um 10% mála voru "ýmis fíkniefnabrot" en þar falla t.d. undir tilvik þar sem fíkniefni finnast á víðavangi. 18.7.2012 09:53
Russel Crowe fór út að hjóla í morgun Stórleikarinn Russel Crowe er staddur á Íslandi þessa daganna til að leika í mynd um Örkina hans Nóa. Leikarinn er duglegur að láta aðdáendur sína vita hvað hann er að gera á Twitter-síðu sinni. Í morgun sagðist hann hafa hjólað 20 kílómetra í Reykjavík. 18.7.2012 09:47
Hreyfingarleysi kostar fimm milljónir manna lífið árlega Um þriðjungur af mannkyninu fær ekki næga hreyfingu og talið er að hreyfingarleysi kosti um fimm milljónir manna lífið á hverju ári. 18.7.2012 07:46
Frjálslyndir eru sigurvegarar kosninganna í Líbíu Samtök frjálslyndra flokka eru sigurvegarar þingkosninganna í Líbíu samkvæmt fyrstu tölum. 18.7.2012 07:13
Íshella á stærð við hálfa Reykjavík brotnar frá Grænlandsísnum Risavaxin íshella hefur brotnað af Peterman skriðjöklinum í norðurhluta Grænlands og flýtur hún nú suður á bóginn. 18.7.2012 06:59
Tvö ungmenni handtekin eftir árás á lögreglumenn Tvö ungmenni voru handtekin í kópavogi í nótt eftir að þau höfðu ráðist á lögreglumenn, sem sendir höfðu verið á vettvang vegna ölvunar og fleiru, eins og segir í skeyti löreglunnar, sem neitar að gefa frekari upplýsingar um málsatvik. 18.7.2012 06:44
Þýsku hjónin fundin Hjónin sem leitað hefur verið að eru fundin. Hjónin fundust nú rétt í þessu á gönguleiðinni milli Engjasels og Múlaskála, sem er á gönguleiðinni suður í Lón. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg eru hjónin við góða heilsu. Björgunarsveitamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar leituðu hjónanna fram til miðnættis í gær og hófst formleg leit aftur með morgninum. 18.7.2012 10:14
Vaðandi makrílgöngur víða um landið Makrílgöngur voru vaðandi upp í landssteinum á Eskifirði í gærkvöldi en í gærdag bárust fréttir af makrílgöngu við Hólmavík og reyndar víðar við Húnaflóa. 18.7.2012 08:00
Ekkert lát á bardögunum í Damaskus Ekkert lát er á bardögunum í Damaskus höfuðborga Sýrlands en barist var í borginni í alla nótt. 18.7.2012 07:51
Óvenjumikil berjaspretta í ár Berjaspretta er óvenjumikil miðað við árstíma og hefur Skessuhorn eftir starfsmönnum þjóðgarðsins Snæfellsjökuls að krækiberin séu þegar búin að taka lit. Þau séu því orðin æt, þó þau séu ekki orðin sæt og safarík eins og þau verða full þroskuð. 18.7.2012 07:24
Ostagerðarmaður handtekinn vegna mafíutengsla Lögreglan á Ítalíu hefur handtekið forstjóra einnar af stærstu mozzarella ostagerðar landsins vegna gruns um að hann hafi verið í nánum tengslum við mafínua. 18.7.2012 07:21
Kínverjar frelsa 26 gísla úr haldi sómalskra sjóræningja Kínverjar hafa tilkynnt um að þeim hafi tekist að frelsa 26 gísla úr haldi sjóræningja í Sómalíu. 18.7.2012 07:04
Úrskurður ekki fyrr en í haust Stjórnlagadómstóll Þýskalands ætlar að kveða upp úrskurð í haust um það, hvort nýr neyðarsjóður evruríkjanna stenst ákvæði þýsku stjórnarskrárinnar. 18.7.2012 07:00
Þegar uppselt á Bræðsluna Uppselt er á tónlistarhátíðina Bræðsluna sem haldin er á Borgarfirði eystri dagana 26. til 29. júlí næstkomandi. Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram laugardaginn 28. júlí. 18.7.2012 07:00
Formleg leit hefst að nýju að þýsku hjónunum Formleg leit hefst nú með morgninum að þýskum hjónum, sem saknað er við Eyjabakkajökul norðaustan af Vatnajökli, en eftirgrennslan að fólkinu stóð fram undir miðnætti. 18.7.2012 06:41
Uppþornaðar ár við gul tún Varla hefur væta komið úr lofti svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir á stórum hluta landsins. Fjölmargir bændur horfa á túnin brenna. Ástandið í laxveiðiám í Borgarfirði og Dalasýslu þykir vera grafalvarlegt. 18.7.2012 06:30