Fleiri fréttir Konan formlega tekin við af Karli Agnes M. Sigurðardóttir tók formlega við starfi biskups Íslands í dag. Dagurinn byrjaði klukkan níu á Biskupsstofu. Fyrsta formlega verkefnið var innanhúss helgistund. 2.7.2012 16:30 Sakborningur í mansalsmáli fær engar bætur frá ríkinu Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfu manns sem var handtekinn og sætti einangrun í þrjár vikur vegna mansalsmálsins 2009. Um er að ræða eina mansalsmálið sem hefur verið ákært í á Íslandi, en maðurinn var sýknaður af ákærunni. 2.7.2012 16:04 Gordon spilar ekki með Bretum á Ólympíuleikunum Það er nú ljóst að NBA-leikmaðurinn Ben Gordon mun ekki spila með breska landsliðniu á Ólympíuleikunum í Lundúnum sem hefjast síðar í mánuðinum. 2.7.2012 16:00 Hugo Chavez hefur kosningarherferð Forseti Venesúela, Hugo Chavez hélt stóra samkomu í gær og hóf formlega kosningarherferð sína fyrir komandi forsetakosningar í október síðar á árinu 2.7.2012 15:56 Ólíklegt að kosningarnar verði ógiltar Þó að framkvæmd atkvæðagreiðslu fatlaðra í forsetakosningunum á laugardag gæti talist ágalli á kosningunum er ólíklegt að það leiði til ógildingar þeirra. Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. 2.7.2012 15:53 Framleiðendur Oblivion vildu loka svæðinu yfir Veiðivötnum Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion óskuðu eftir því að flugbann yrði sett yfir svæðinu þar sem tökur fara fram á Veiðivatnasvæðinu. Eins og kunnugt er leikur Tom Cruise aðalhlutverkið í myndinni. Flugmálayfirvöld fengu beiðni um að svæðinu yrði lokað fyrir flugumferð þar sem einhverjar sprengingar voru fyrirhugaðar vegna töku kvikmyndar þar. 2.7.2012 15:42 Fræðsla um hjónabönd samkynhneigðra 2.7.2012 15:08
Sjá næstu 50 fréttir
Konan formlega tekin við af Karli Agnes M. Sigurðardóttir tók formlega við starfi biskups Íslands í dag. Dagurinn byrjaði klukkan níu á Biskupsstofu. Fyrsta formlega verkefnið var innanhúss helgistund. 2.7.2012 16:30
Sakborningur í mansalsmáli fær engar bætur frá ríkinu Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfu manns sem var handtekinn og sætti einangrun í þrjár vikur vegna mansalsmálsins 2009. Um er að ræða eina mansalsmálið sem hefur verið ákært í á Íslandi, en maðurinn var sýknaður af ákærunni. 2.7.2012 16:04
Gordon spilar ekki með Bretum á Ólympíuleikunum Það er nú ljóst að NBA-leikmaðurinn Ben Gordon mun ekki spila með breska landsliðniu á Ólympíuleikunum í Lundúnum sem hefjast síðar í mánuðinum. 2.7.2012 16:00
Hugo Chavez hefur kosningarherferð Forseti Venesúela, Hugo Chavez hélt stóra samkomu í gær og hóf formlega kosningarherferð sína fyrir komandi forsetakosningar í október síðar á árinu 2.7.2012 15:56
Ólíklegt að kosningarnar verði ógiltar Þó að framkvæmd atkvæðagreiðslu fatlaðra í forsetakosningunum á laugardag gæti talist ágalli á kosningunum er ólíklegt að það leiði til ógildingar þeirra. Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. 2.7.2012 15:53
Framleiðendur Oblivion vildu loka svæðinu yfir Veiðivötnum Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion óskuðu eftir því að flugbann yrði sett yfir svæðinu þar sem tökur fara fram á Veiðivatnasvæðinu. Eins og kunnugt er leikur Tom Cruise aðalhlutverkið í myndinni. Flugmálayfirvöld fengu beiðni um að svæðinu yrði lokað fyrir flugumferð þar sem einhverjar sprengingar voru fyrirhugaðar vegna töku kvikmyndar þar. 2.7.2012 15:42
Vinna hafin við þriðja bindi sögu Akraness Samningar um að hefja vinnu við þriðja bindið af sögu Arkaness voru samþykktir í bæjarráði Akraness í júní. Vinnan við þriðja bindi sögunnar er því hafin og sem fyrr sér Gunnlaugur Haraldsson um ritunina. Upphæðin sem samþykkt var fyrir þetta ár var 4,2 milljónir króna en í heild sinni er gert ráð fyrir að vinnan við bindið kosti 14 milljónir. 2.7.2012 14:54
Eldri borgarar biðla til borgarfulltrúa Eldri borgarar úr Gerðubergi í Breiðholti afhentu borgarfulltrúum í dag bænaskjal þar sem þess er farið á leit að starfi eldri borgara í Gerðubergi verði bjargað. Undirskriftir 450 manns sem tengjast starfinu voru afhentar borgarfulltrúunum. Á meðal þeirra sem hittu borgarfulltrúana var Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður velferðarráðs. 2.7.2012 14:24
Romney vill afnema "Obamacare" Mitt Romney hyggst afnema ný lög hæstaréttar um heilsutryggingar í landinu. 2.7.2012 14:10
Tökur á Oblivion enn í gangi Það ræðst líklega á morgun hvenær tökum á myndinni Oblivion, sem skartar Tom Cruise í aðalhlutverki, mun ljúka. Þetta staðfestir talsmaður tökuliðsins við Vísi. Tökur hafa farið fram undanfarna daga samkvæmt áætlun, þrátt fyrir þrálátar sögusagnir í erlendum miðlum um að Tom Cruise hafi yfirgefið landið eftir að Katie Holmes sótti um skilnað frá honum. Tökur fara fram núna á Suðurlandi, í nágrenni við Veiðivötn. 2.7.2012 14:04
Berst gegn glæpum Nýkjörinn forseti Mexíkó ætlar að leggja áherslu á að draga úr glæpum í landinu. Í valdatíð Felipe Calderon, fyrverandi foseta landsins frá 2006 hafa yfir 50 þúsund manns verið drepnir í fíkniefnatengdum glæpum 2.7.2012 13:21
Leita vitnis að umferðarslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Nýbýlavegi í Kópavogi um hádegisbil föstudaginn var. Í hringtorgi á móts við Toyota-umboðið var svörtum Range Rover ekið í veg fyrir bifhjól með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á hjólinu, ók á vegkant og féll síðan af því. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. 2.7.2012 13:13
Guðmundur: Forsetinn kominn í pólitík Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir þjóðina hafa sent þau skilaboð í forsetakosningunum að forsetinn eigi að láta til sín taka í umræðunni um hin stærstu mál. Guðmundur Steingrímsson, formaður stjórnmálaflokksis Bjartrar framtíðar, segir að með þessu sé forsetinn kominn í pólitík og að breytingar þurfi að verða á embættinu í samræmi við það. Skoðanir forsetans geti ekki komið úr vernduðu umhverfi. 2.7.2012 12:17
Telpurnar fluttar til Danmerkur í gær Telpurnar þrjár, sem voru teknar með lögregluvaldi af móður sinni á föstudag, voru fluttar úr landi síðdegis í gær til Danmerkur. Lögmaður móðurinnar furðar sig á að börnin hafi ekki verið kyrrsett á Íslandi. 2.7.2012 12:11
Tom Cruise niðurbrotinn maður Parið prýðir forsíðu People tímaritsins í dag og segir meðal annars í grein blaðsins og Cruise sé niðurbrotinn maður og hafi ekki búist við skilnaðinum. 2.7.2012 11:54
Brotist inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ Brotist var inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ og nokkrum verkfærum var stolið. Tilkynning um innbrotið barst lögreglunni um hálftíuleytið í morgun. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki en þeirra er leitað. 2.7.2012 11:52
Fangar framleiða rafmagn Nú gefst brasilískum föngum tækifæri að minnka dóm sinn með að framleiða rafmagn. 2.7.2012 11:35
Leyndarmál úr herbúðum Facebook opinberuð Fyrrum starfsmaður Facebook opinberar nokkur óþægileg leyndarmál úr innsta kjarna fyrirtækisins í nýrri bók sem nefnist "The Boys Kings: A journey into the heart of the Social network". 2.7.2012 11:17
Hundruð handverkakvenna óttast um hag sinn Verulegur hiti er meðal handverkakvenna sem hafa haft lífsviðurværi sitt af því um árabil að selja ferðamönnum prjónaðar vörur og annað íslenskt handverk. Stórfyrirtæki á Íslandi eru farin að senda lopa til Kína þar sem íslenskir minjagripir eru framleiddir. Í morgun greindi Verkalýðsfélagið Framsýn greindi frá því að félagið hyggðist kanna hver kjör kinversk verkafólks væru. 2.7.2012 10:38
Atvinnuleysi í sögulegu hámarki Atvinnuleysi náði hámarki á evrusvæðinu í maí þegar 88 þúsund manns misstu vinnuna. 2.7.2012 10:30
Viðbragðsáætlun virkjuð á Keflavíkurflugvelli Viðbragðsáætlun var virkjuð á Keflavíkurflugvelli nú á níunda tímanum vegna flugvélar sem á að lenda um klukkan korter í níu. Tilkynnt var um reyk í flugstjórnarklefa vélarinnar, en á þessari stundu er ekki vitað hvað veldur reyknum. Ekki hafa fengist um það upplýsingar á þessari stundu hvaðan vélin var að koma. 2.7.2012 08:38
Fimm milljónir glasabarna hafa fæðst í heiminum Fimm milljónir svokallaðra glasabarna hafa nú fæðst víðsvegar í heiminum. Fyrsta glasabarnið kom í heiminn í júlí árið 1978 í Bretlandi og hlaut nafnið Louise Brown. Móðir hennar lést nýlega. 2.7.2012 06:53
Þrumuveður í Bandaríkjunum Sautján manns hafa látið lífið í þrumuveðri í austurhluta Bandaríkjanna og um þrjár miljónir manna eru rafmagnslausar á heimilum sínum. Meiri hluta dauðsfalla eru vegna þess að tré hafa fallið á heimili og bíla. 2.7.2012 09:36
Vilja að lopapeysurnar séu prjónaðar á Íslandi Verkalýðsfélagið Framsýn íhugar að óska eftir upplýsingum frá íslenskum aðilum sem láta framleiða íslenskar lopapeysur í Kína til þess að selja á Íslandi. Óskað verður eftir upplýsingum um kjör og aðbúnað fólksins í Kína sem framleiðir lopapeysurnar fyrir markaðinn á Íslandi. Á vef Framsýnar segir að Kínverjar hafi fram að þessu ekki verið þekktir fyrir góð launakjör eða aðbúnað verkafólks, sé tekið mið af því sem gerist á Íslandi. 2.7.2012 08:52
Snjallsímaleiðsögn í boði um Austurland Austfirðingar hafa tekið nýjustu tækni í þjónustu sína til að auka gildi ferðalaga um fjórðunginn. Nýtt smáforrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur gerir ferðalöngum kleift að nálgast leiðsögn um sex aðskilin svæði á héraði og niðri á fjörðum. 2.7.2012 08:00
Sögulegur dagur í lífi Kristjaníubúa Sögulegur dagur var í lífi Kristjaníubúa í Kaupmannahön í gærdag þegar þeir, eða raunar sjóður í eigu þeirra, fékk opinberlega yfirráðin yfir íbúðasvæðinu á staðnum. 2.7.2012 07:19
Bílvelta á Mosfellsheiði Bílvelta varð á Mosfellsheiði í gærkvöld um tíu leytið. Tvennt var í bílnum, ungur ökumaður og stúlka. Þau slösuðust ekki að ráði, fengur skrámur og eymsli á öxl en voru flutt á slysadeild til skoðunnar. Bíllinn er hinsvegar stórskemmdur. 2.7.2012 07:03
Einn látinn á Hróarskelduhátíðinni Einn af veislugestunum á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku er látinn. Um er að ræða tvítugan Svía og talið er að hann hafi látist af ofstórum skammti eiturlyfja en lögreglan er með dauðsfallið til rannsóknar. 2.7.2012 06:50
Nieto náði kjöri sem forseti Mexíkó Fyrstu tölur benda til þess að Enrique Pena Nieto hafi sigraði í forsetakosningunum í Mexíkó sem haldnar voru um helgina. 2.7.2012 06:47
Um 1.000 manns flýja heimili sín undan skógareldum á Spáni Um 1.000 manns hafa neyðst til að flýja heimili sín undan skógareldum í Valencia héraði á Spáni yfir helgina. Um 2.000 slökkviliðsmenn berjast við skógareldana og hafa m.a. 40 þyrlur til þess. 2.7.2012 06:44
Berbrjósta mótmæli á undan Evrópuleiknum Hópur berbrjósta kvenna vopnaður gúmmíkylfum réðist á lögregluna í Kænugarði í gærdag í undanfara úrslitaleiksins í Evrópumótinu í fótbolta. 2.7.2012 06:34
Örtröð strandveiðibáta á miðin Um áttahundruð bátar hafa streymt á sjó í morgunsárið en öll svæði þar sem stunda má strandveiðar eru nú opin. 2.7.2012 06:29
Þvottastöðvar knúnar fótafli viðskiptavina Ef hugmyndir átta bandarískra listhönnuða ganga eftir verður ekki langt í að þvottastöðvar, sem í leiðinni verða hálfgerðar félagsmiðstöðvar, skjóti upp kollinum víða um land. 2.7.2012 06:00
Hægt að skilja börn eftir í kassa Nokkur Evrópuríki hafa sett upp box á víðavangi ætluð þeim sem vilja losa sig við hvítvoðunga. Þessi box ganga jafnan undir nafninu barnavöggur. 2.7.2012 06:00
Þóra var duglegust á samfélagsmiðlum Rannsóknir benda til þess að fylgni sé á milli úrslita kosninga og áhrifa frambjóðenda á samfélagsmiðlum. Þekkingarfyrirtækið Cloud engineering tók saman upplýsingar um virkni forsetaframbjóðenda á Facebook í aðdraganda kosninganna. Skemmst er frá því að segja að Þóra Arnórsdóttir og stuðningsmenn hennar nýttu samfélagsvefinn mest allra frambjóðenda til að kynna sig og eiga samskipti við kjósendur. Gagnasöfnunin um Facebook-notkunina spannaði allan júnímánuð. 2.7.2012 04:00
Einföld atriði útskýra dræma kjörsókn Kjörsókn í forsetakjöri hefur aðeins einu sinni verið lakari, árið 2004. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórmálafræði, segir augljós atriði skýra dræma kjörsókn nú. 2.7.2012 01:15
Sonur MJ handtekinn Marcus Jordan, sonur körfuboltasnillingsins Michael Jordan, var handtekinn í dag fyrir utan hotel í Omaha í Nebraska í Bandaríkjunum. Þegar lögreglumenn komu að hótelinu sáu þeir að öryggisverðir voru að reyna að yfirbuga Marcus. Hann hafði áður átt í útistöðum við tvær konur við innkeyrsluna að hótelinu. Marcus mun hafa látið mjög ófriðlega og verið mjög drukkinn. Fjölmarga lögreglumenn þurfti til að handjárna hann. Hann var kærður og því næst var hann látinn laus. 2.7.2012 00:57
Halda því fram að 800 manns hafi verið drepnir í síðustu viku Stjórnarandstaðan í Sýrlandi heldur því fram að átta hundruð manns hafi verið drepnir í átökum víða um landið í síðustu viku. Fáist það staðfest er um að ræða mestu blóðsúthellingar sem þjóðin hefur þurft að horfa upp á síðan uppreisnin gegn Bashar Assad hófst fyrir um fimmtán mánuðum síðan. 1.7.2012 16:12
Forsetakosningar í Mexíkó Það eru fleiri en Íslendingar sem kjósa sér forseta þessa helgi því forsetakosningar fara nú fram í Mexíkó í dag. Kosningarnar eru haldnar í skugga blóðugs fíkniefnastríðs sem geisar í landinu og bágs efnahagsástands. 1.7.2012 15:17
Úrslit kosninganna í takti við skoðanakannanir Úrslit kosninganna eru mjög í takt við skoðanakannanir sem birst hafa undanfarið. 1.7.2012 14:37
Borðuðu síðast saman á Sushi Samba - Tom tekur til varna Tom Cruise og Katie Holmes sáust síðast saman á íslenska veitingastaðnum Sushi Samba í miðborg Reykjavíkur þann 16. júní síðastliðinn. Þá voru þau með dóttur sína, Suri, með sér, en skömmu síðar átti Holmes eftir að sækja um skilnað, nokkuð sem virðist hafa komið stórleikaranum verulega á óvart. 1.7.2012 13:46
Enginn þingmaður hefur óskað Ólafi til hamingju Hvorki ráðherrar né þingmenn höfðu óskað Ólafi Ragnari Grímssyni til hamingju með kosningaúrslitin í hádeginu í dag. Hann segir það vera í góðu lagi því kosningarnar snúist ekki um ríkisstjórnina. "Þær eru um fólkið í landinu, vilja þess og framtíðarsýn," sagði Ólafur Ragnar Grímsson í samtali við Lóu Pind Aldísardóttur á Bessastöðum í dag. 1.7.2012 13:26
Fullur, próflaus og óviðræðuhæfur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan hálf átta í morgun um sérkennilegt aksturslag bifreiðar í austurbænum. Skömmu síðar fannst bifreiðin og rætt var við ökumann sem var ekki var kominn með bílpróf. Hann var sýnilega mjög ölvaður og óviðræðuhæfur af þeim sökum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 1.7.2012 13:04
Lokatölur yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi Auðir og ógildir seðlar í Norðausturkjördæmi voru 404, eða 1,9%, samkvæmt lokaskýrslu yfirkjörstjórnar þar. Á kjörskrá voru 29.003. Greidd atkvæði voru alls 20.884 sem þýðir 72,0% kjörsókn. Atkvæði féllu þannig: Andrea J. Ólafsdóttir 348 eða 1,7%. Ari Trausti Guðmundsson 1.882 eða 9,2%. Hannes Bjarnason 277 eða 1,4%. Herdís Þorgeirsdóttir 583 eða 2,8%. Ólafur Ragnar Grímsson 10.363 eða 50,6%. Þóra Arnórsdóttir 7.027 eða 34,3%. Auðir seðlar 344 eða 1,6% Aðrir ógildir seðlar 60 eða 0,3%. 1.7.2012 12:57