Fara langar leiðir til að sækja fisk á grillið 20. júní 2012 06:00 Hugsað stórt Fiskbúðin í Ólafsvík þjónustar nánast allt Vesturland enda enga aðra fiskbúð þar að finna. fréttablaðið/stefán
Fiskbúðin Sjávarkistan í Ólafsvík er eina fiskbúðin á Vesturlandi. Hún er aðeins rekin í þrjá mánuði á sumrin og verslar aðeins með fisk af Snæfellsnesinu. Sumarbústaðafólk leggur langa lykkju á leið sína til að komast í fiskbúð. Fiskbúðin Sjávarkistan í Ólafsvík á Snæfellsnesi er eina fiskbúðin á Vesturlandi. Hún sinnir Snæfellsnesinu eins og það leggur sig og dæmi eru um að sumarbústaðaeigendur í Borgarfirði aki alla leið á Snæfellsnes til þess eins að sækja sér fisk á grillið. Samkvæmt óvísindalegri rannsókn Fréttablaðsins er næstu fiskbúðir að finna í Mosfellsbæ og á Flateyri og Ísafirði. Sigurður Ingi Guðmarsson stendur vaktina í Sjávarkistunni og segir fisksöluna aðeins vera sumarverkefni. „Þetta er sumarverkefni og ekkert sem er komið til að vera. Við höfum aðeins opið hér yfir sumarmánuðina þrjá; júní, júlí og ágúst. Svo lokum við bara á veturna.“ „Það var Einar Magnús Gunnlaugsson sem fékk mig hingað og í þetta,“ segir Sigurður Ingi sem er aðfluttur úr Hafnarfirði. „Hann er höfuðið í þessu öllu saman.“ Sjávarkistan var opin í fyrrasumar líka en þá aðeins til klukkan sex á daginn. Sigurður Ingi segir að nú sé búðin opin til átta því eftirspurnin er meiri um kvöldmatarleytið. Boðið er upp á ferskan fisk, kryddleginn og tilbúna rétti. Verkefnið miðar að því að styðja við fyrirtækin á svæðinu. „Við reynum að selja eins ferskan fisk og við getum,“ segir Sigurður Ingi. „Við höfum eingöngu verið að fá frá fyrirtækjunum hérna í kring.“ Spurður hvaðan hráefnið komi helst segir hann að fiskurinn komi frá Ólafsvík ásamt hinum þorpunum á norðanverðu nesinu. „Við höfum fengið vörur úr öllum þorpunum í kringum okkur. Það eru Stykkishólmur, Grundarfjörður, Rif og Hellisandur. Við fáum hráefnið þaðan hvort sem það eru tilbúnir réttir eða ferskur fiskur.“ Sigurður Ingi bendir á að í fiskborðinu séu aðallega óhefðbundnar íslenskar fisktegundir. „Við erum ekki með þetta hefðbundna, heldur erum við með langlúru, lúðu, keilu, steinbít og skötusel. Hér seljum við aðeins fisk sem veiðist hér í Breiðafirðinum.“ birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Fleiri fréttir Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Launmorðingjar ráðnir hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Sjá meira