Innlent

Mikil aukning í sjúkraflugi hjá Mýflugi

Sjúkraflugum Mýflugs til Grænlands fer fjölgandi og þannig sótti félagið tvo sjúklinga til Kulusuk í fyrradag og flutti þá á sjúkrahús í Reykjavík.

Annars var farið í átta sjúkraflug í fyrradag og voru um tíma tvær flugvélar í loftinu í einu. Það sem af er mánuðinum hefur félagið sinnt 33 útköllum.

Vélarnar eru gerðar út frá Akureyri og í áhöfn eru flugstjóri, flugmaður, sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði Akureyrar og læknir af Fjórðungssjúkrahúsinu, þegar þörf krefur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×