Fordæmisgildi dóms gæti kostað milljarða 20. júní 2012 06:30 Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir ekki hægt að líta öðruvísi á dóminn að hann marki ákveðna stefnu. Fréttablaðið/Stefán
Dómur í máli Toyota gegn íslenska ríkinu í síðustu viku er fordæmisgefandi. Samkvæmt honum er vaxtakostnaður vegna öfugs samruna ekki frádráttarbær frá skatti. Tugir fyrirtækja hafa fengið sambærilega endurálagningu. Sýknudómur yfir íslenska ríkinu vegna kröfu Toyota á Íslandi á hendur þess í síðustu viku er fordæmisgefandi að mati ríkisskattstjóra. Verði hann staðfestur í Hæstarétti mun dómurinn leiða til þess að margra milljarða króna endurálagning embættis ríkisskattstjóra (RSK) vegna svokallaðs öfugs samruna félaga standi. Forsaga málsins er sú að Bergey ehf., félag sem Magnús Kristinsson átti, keypti P. Samúelsson hf., sem átti Toyota á Íslandi, í desember 2005 á 5,6 milljarða króna. Bergey fjármagnaði kaupin meðal annars með 3,25 milljarða króna láni frá Landsbankanum. Í kjölfarið tók P. Samúelsson ehf. Bergey yfir með öllum skuldum og eignum og var því farið að fjármagna kaupin á sjálfu sér að stórum hluta. Svona snúningur kallast öfugur samruni. Í kjölfarið reiknaði hið nýja félag öll vaxtagjöld vegna lánsins sem það veitti sjálfu sér til rekstrarkostnaðar og taldi þau þar með frádráttarbær frá skatti. Ríkisskattstjóri tók málið til skoðunar og úrskurðaði í nóvember 2010 að þetta mætti ekki. Hann endurálagði því kostnaðinn á Toyota á Íslandi ehf. Félagið, sem skipti um eigendur fyrir ári í viðamiklu skuldauppgjöri við Landsbankann, sætti sig ekki við úrskurðinn og höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu til að fá 93 milljónir króna endurgreiddar. Dómurinn féllst ekki á að vaxtagjöld væru frádráttarbær frá skattgreiðslum og ríkið því sýknað af kröfunni. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir ekki hægt að líta öðruvísi á dóminn en að hann marki ákveðna stefnu. „Það er líklegt að það verði að líta svo á að þetta sé fordæmisgefandi dómur. Það eru nokkur önnur svona mál í pípunum. Ég reikna samt frekar með því að þessum dómi verði skotið til Hæstaréttar.“ Að sögn Skúla eru nokkuð mörg fyrirtæki í svipaðri stöðu og Toyota á Íslandi var í. Fjárhæðirnar sem voru endurálagðar á þau séu þó ákaflega mismunandi.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Hyggst þyngja refsingar við að hagnýta börn til afbrota Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Sjá meira