Innlent

Hvítá notuð til vökvunar

Karen Kjartansdóttir skrifar
Þurrkar hafa verið miklir í sumar og hvað gera bændur þá? Við Hvítá hefur vökvunarbúnaði verið komið fyrir svo hægt sé að vökva grænmetisgarðana við bakka hennar með árvatninu, dag og nótt.

Á Flúðum fagnar fólk því ekki að lítið rigni enda veltur lífsafkoma þess á regninu. Miklir þurrkar framan af sumri hafa kallað á skipulega vökvun á túnum.

Friðrik Rúnar Friðriksson ræktunarstjóri á Jörfa fagnar því að Hvítá liðast fögur við hlið grænmetisbeðana.

Á myndskeiðinu sem fylgir fréttinni má sjá Friðrik tengja slöngu ofan í ána, vatnið er því næst leitt með slöngu í dælu sem dreifir því um kálgarðana.

„Hérna erum við að vökva spergilkál og hvítkál með gæsinni okkar," segir Friðrik Rúnar Friðriksson, ræktarstjóri á Jörfa. „Við dælum yfir nótt og dag 400 lítrum af vatni á mínútu. Það hefur ekki rignt hérna í bráðum mánuð, utan þess að það komu smá skúrir í gær, þannig við verðum að bjarga okkur á þessu."

Og ekki er annað að sjá en að grænmetið í beðunum spretti vel.

„Þetta er algjör björgun hérna núna, hér á bökkum Hvítár er sendinn jarðvegur sem þornar mjög skart en það er gott að rækta í honum þegar við náum að koma vatni á þetta."

Hann segir sveitunga sína grípa til ýmissa ráða til að bjarga uppskeru sinni og fleiri hafi keypt búnað sem þennan.

„Þeim er alltaf að fjölga svo eru menn að grípa í haugsugurnar og nota alls konar tanka og ílát til að keyra á kálið."



Ekki þarf að aka vélinni heldur fer hún sjálf eftir slöngunni. Hins vegar þarf að vaka vel yfir henni þótt bændur reyni að hvílast inn á milli.

„Svo á nóttunni þá leggur maður nálægt henni svo hrekkur maður við þegar maður fær gusuna á sig," segir Friðrik að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×