Innlent

Sex kærðir fyrir vörslu fíkniefna í nótt

Sex voru kærðir fyrir vörslu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þar af var einn farþegi í bíl, sem var stöðvaður þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Auk þessa var einn stöðvaður fyrir að aka yfir gatnamót á rauðu, og annar fyrir hraðakstur, og loks var einn kærður fyrir að vera að spræna á almannafæri í Ingólfsstræti um klukkan hálf tvö í nótt. Slíkt athæfi er talið geta sært blygðunarkennd þeirra, sem á horfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×