Innlent

Vélarbilun í tveimur strandveiðibátum

Vélarbilun varð í tveimur strandveiðibátum undir kvöld í gær. Annar var þá noðraustur af landinu og kom nálægur bátur bátsverjanum til hjálpar og dró bátinn inn til Bakkafjarðar.

Hinn bilaði út af Ströndum og dró fiskibátur hann inn til Hólmavíkur. Gott veður var á báðum svæðunum og er enn.

Fjöldi strandveiðibáta hélt til veiða undir morgun á svæðunum þremur, þar sem júní kvótinn er ekki búinn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×