Fleiri fréttir

Lögreglumenn börðust við eldsvoða

Þeir voru snarir í snúningi lögreglumennirnir á Akranesi sem komu að eldi í húsnæði á Vesturgötu á Akranesi í síðustu viku. Þegar lögreglu bar að logaði eldur í rafmagnsdós í lofi húsnæðisins. Lögreglumönnunum tókst þá að halda eldinum í skefjum með handslökkvitæki þar til slökkviliðið kom á vettvang.

Villikattaskytta grunuð um ölvun

Lögreglan á Akranesi fékk tilkynningu í síðustu viku um karlmann sem var vopnaður haglabyssu skammt fyrir utan bæinn. Lögreglan fór á vettvang og fann þá mann á ferli sem var sannarlega vopnaður haglabyssu.

Obama og Putin funduðu um málefni Sýrlands

Barack Obama Bandaríkjaforseti og Valdimir Putin Rússlandsforseti funduðu á hliðarlínunni á leiðtogafundi G20 ríkjanna í Mexíkó. Þar ræddu þeir málefni Sýrlands en þetta er fyrsti einkafundur þeirra tveggja síðan að Putin tók við forsetaembættinu að nýju fyrr í ár.

Fundu dularfullan hlut á botni Eystrasalts

Sænskir kafarar sem stunda fjársjóðsleit í Eystrasaltinu hafa rekist á dularfullan hlut á hafsbotninum þar. Einn kafaranna segir að hann hafi aldrei séð neitt þessu líkt á 20 ára köfunarferli sínum.

Stjórnmálamaður gripinn með buxurnar á hælunum

Stjórnmálamaður í Austurríki var gripinn með buxurnar á hælunum í bókstaflegri merkingu þegar myndavélar tóku upp ákafan ástarleik hans og óþekktrar konu í skógarjarðri í héraðinu Kartens.

Taugatitringur á leiðtogafundi G20 ríkjanna

Mikill taugatitringur virðist vera á fundi G20 ríkjanna sem nú stendur yfir í Mexíkó. Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins varð reiður þegar aðrir leiðtogar á fundinum gagnrýndu sambandið.

Breivik fær fjölda ástarbréfa

Hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hefur fengið ástarbréf og stuðningsyfirlýsingar í fangelsið þar sem hann dvelur. Hann hefur sýnt sálfræðingi sínum nokkur þeirra.

Verulega dregur úr bankaránum í Danmörku

Verulega hefur dregið úr bankaránum í Danmörku á síðustu árum. Alls var framið 21 bankarán í landinu á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta er 36% fækkun frá sama tímabili í fyrra og 61% fækkun frá árinu 2010.

Ný grísk ríkisstjórn í burðarliðnum

Allar líkur eru á því að ný ríkisstjórn verði mynduð í Grikklandi í dag. Þetta kemur fram á Reuters en heimildin er ónafngreindur háttsettur ráðamaður innan flokksins Nýtt lýðræði.

Kona meiddist í útafakstri

Kona meiddist, en þó ekki alvarlega, þegar hún missti bíl sinn út af Kaldárselsvegi við Hafnarfjörð um miðnæturbil.

Makrílvertíðin á rólegum nótum

Makrílvertíðin fer rólega af stað en nú eru nokkur skip að veiðum suður af Vestmannaeyjum og eitt eða tvö skip leita fyrir sér suðaustur af landinu.

Staðfestu viðtöku IPA-styrkja

Rammasamningur ríkisstjórnarinnar við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) um svonefnda IPA-styrki var samþykktur á Alþingi í gær. IPA-styrkirnir eru veittir vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB og eru hugsaðir sem fjárhagsaðstoð til Íslands vegna umsóknarferlisins.

Nú vitið þið að ég er enginn jólasveinn

Hannes Bjarnason kom óþekktur inn í baráttuna um forsetaembættið. Hann segir þá reynslu undarlega enda hafi margir haldið að hann væri einhver jólasveinn. Það álit hafi þó snarbreyst eftir að hann fór að kynna sig.

Veiðigjöld afgreidd en stjórnunin bíður

Alþingi lýkur störfum í dag samkvæmt samkomulagi flokkanna. Veiðigjald verður 12,7 til 13,7 milljarðar. Frumvarp um fiskveiðistjórnun og rammaáætlun bíða haustsins. Sérstakur samráðshópur mun fara yfir sjávarútvegsmálin.

Ríkissjóður endurgreiðir hluta AGS-lána

Ríkissjóður og Seðlabanki Íslands greiða í byrjun þessarar viku samtals 171 milljarð króna fyrir fram af erlendum lánum sínum. Er um að ræða lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum sem veitt voru í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS sem lauk á síðasta ári.

Grafið í öskuhaug frá þjóðveldisöld

Íslenskir og kanadískir fornleifafræðingar vinna nú að uppgreftri á Svalbarði við Þistilfjörð. Í sumar stendur til að grafa upp öskuhaug í Hjálmarsvík í Svalbarðstungu, en hann nær að minnsta kosti yfir tímabilið frá þjóðveldisöld og fram á þá fimmtándu.

Hjóla til styrktar Barnaheillum

Þrettán lið hjólreiðakappa munu næstu daga hjóla hringinn í kringum landið í alþjóðlegu hjólreiðakeppninni WOW Cyclothon. Liðin eru að safna áheitum vegna hjólreiðanna sem munu renna óskipt til áheitaverkefnis Barnaheilla sem nefnist „Hreyfing og líkamlegt heilbrigði barna“.

Bætur hækkaðar til þolenda ofbeldis

Ríkissjóður greiðir þolendum kynferðisbrota þrjár milljónir króna í hámarksbætur í stað 600 þúsunda. Hámarksbætur fyrir líkamstjón hækka úr 2,5 milljónum í 5 milljónir. Aðstoð við innheimtu mismunar dæmdra bóta og greiðslu ríkissjóðs.

Fordæma lokun útibúa

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi fordæmir nýlegar lokanir útibúa Landsbankans á Austurlandi í nýrri bókun.

Hrunið hafði lítil áhrif á viðskiptin

Bræðurnir Ólafur og Tyrfingur Leóssynir reka Jeppasmiðjuna sem er að finna skammt suður af Selfossi. Þeir eiga stóran hóp viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu sem setur það ekki fyrir sig að keyra tugi kílómetra eftir þjónustu þeirra.

Vilja mynda stjórn í dag

Mynda þarf ríkisstjórn með eins mörgum flokkum gríska þingsins og hægt er, sagði leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins í gær. Hann fékk stjórnarmyndunarumboð og vill breyta skilmálum björgunaráætlunar.

Langur hringur fyrir 20 manns

„Við erum ekki enn komin hringinn, en þess verður ekki langt að bíða úr þessu. Þetta stingur í augað en svona eru þessi blankheit“, segir Þorgrímur Hallgrímsson, rekstrarstjóri hverfastöðvarinnar á Njarðargötu, spurður um óslegnar umferðareyjar við Lönguhlíð. Þar virðist sem grasið sé að hafa betur en grenihríslurnar sem gróðursettar voru til að prýða umhverfið.

Kók loks fáanlegt í Mjanmar

Gosdrykkjaframleiðandinn Coca-Cola mun brátt hefja sölu á gosdrykkjum sínum í Mjanmar, áður Búrma, þar sem kók hefur ekki verið fáanlegt í ríflega sextíu ár. Á næstunni mun því löndum þar sem ekki er hægt að kaupa kók fækka úr þremur í tvö en utan Mjanmar fæst kók ekki á Kúbu og í Norður-Kóreu.

Mun ekki tjá sig um Monte Carlo

Stefán Eiríksson, Lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, mun ekki tjá sig um mál veitingastaðanna Mónako og Monte Carlo. Eigandi staðanna, Margeir Margeirsson, sagði í dag að hann hyggðist höfða mál gegn lögreglunni í Reykjavík sem og Reykjavíkurborg vegna þeirrar ákvörðunar að synja stöðunum um veitingaleyfi.

Bjartsýnir um stóriðjuframkvæmdir við Húsavík

Thorsil tilkynnti í dag um að fyrirtækið hefði gert raforkusamning við Landsvirkjun vegna kísilmálmverksmiðju við Húsavík. Stefnt er að því að 37 milljarða króna smíði verksmiðjunnar hefjist næsta sumar, sem kallar á mörghundruð störf fyrir norðan. Áform Thorsils fyrir tveimur árum að reisa verksmiðjuna við Þorlákshöfn urðu að engu vegna fjárhagsvanda Orkuveitu Reykjavíkur. Í

Ferðamannadagurinn mikli - Öngþveiti á Þingvöllum

Öngþveiti var á helstu ferðamannastöðum þegar metfjöldi kom til landsins með skemmtiferðaskipum. Áætlað er að farþegarnir og áhafnir hafi eytt rúmum hundrað milljónum í vörur og þjónustu á þessum eina degi.

Framseldur til Slóvakíu

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem ákvörðun innanríkisráðherra um framsal dansks ríkisborgara til Slóvakíu var staðfest. Maðurinn sætir farbanni hér á landi en hann liggur undir grun að hafa hlunnfarið starfsmenn félags sem hann rak í Slóvakíu.

Þrettán ára stúlka olli umferðaróhappi í Reykjavík

Þrettán ára stúlka olli umferðaróhappi á gatnamótum í Reykjavík eftir hádegi í gær. Þegar lögreglumenn komu á vettvang mátti sjá að þar hafði orðið aftanákeyrsla. Tjónvaldurinn reyndist vera stúlkan, en hún hafði tekið fjölskyldubílinn ófrjálsri hendi og stolist á rúntinn með fyrrgreindum afleiðingum. Með henni í för var stúlka á svipuðum aldri en báðar sluppu þær ómeiddar. Fimm voru í hinum bílnum og sakaði þá ekki heldur.

Eigandi Monte Carlo ætlar að stefna borginni og lögreglunni

Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Mónako og Monte Carlo á Laugavegi, ætlar að höfða skaðabótamál gegn lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavík vegna þeirrar ákvörðunar að synja stöðunum um veitingaleyfi. Ákvörðunin var tekin á grundvelli neikvæðrar umsagnar borgarráðs, en innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að með umsögninni hafi borgarráð farið út fyrir umsagnarsvið sitt og með því brotið gegn stjórnsýslulögum. Margeir segist í fréttastofu hafa varið um 10 milljónum króna í lögfræðikostnað vegna málsins.

Hundruð bifreiða á ferðinni með ferðamenn

Ferðaskrifstofan Atlantik er með 105 rútur og 25 jeppa á ferðinni í dag til að hafa ofan af fyrir þeim þúsundum útlendinga sem komu til landsins í dag. "Ég er ekki með nákvæmar tölur en mér skilst að það séu um 8000 manns sem við erum að þjónusta í dag," segir Erla Gísladóttir, fjármálastjóri fyrirtækisins.

Nýtt hjúkrunarheimili á Egilstöðum valið

Tillaga Hornsteina arkitekta ehf/Eflu var valin besta tillagan um nýtt hjúkrunarheimili á Egilstöðum, en dómnefndarálit var birt í dag. Efnt var til samkeppni um hönnun að byggingu nýs heimilisins.

Ók ölvaður á torfæruhjóli

Karlmaður á fertugsaldri ók torfæruhjóli á 122 kílómetra hraða á Sandgerðisvegi í gær, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum bar maðurinn einkenni ölvunar og var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann sviptur ökuréttindum. Tíu ökumenn til viðbótar reyndust aka yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar um helgina.

Viðræður við Svía og Finna verði innblástur

Skrifstofustjóri landbúnaðarmála hjá ESB segir sérstöðu Íslands liggja á mörgum sviðum. Margar hliðstæður séu við aðstæður sem Svíar og Finnar fengu sérlausnir út á á sínum tíma. Erfitt að segja hvenær landbúnaðarviðræður hefjast.

Enn reynt að ljúka þingstörfum

Við upphaf þingfundar í morgun sagði forseti Alþingis líta svo á að dagurinn í dag sé aukadagur til þess að reyna að ljúka þingstörfum. Þó þurfi að meta dagskrána í framhaldinu. Enn er þó óljóst hvenær þinginu lýkur enda hefur engin sátt fengist í sjávarútvegsmálin.

Kröfur um hafsbotn fyrir Grænland skarast við kröfur Íslands

Danmörk, sem fer með utanríkismál Grænlands, hefur skilað greinargerð um kröfur sínar vegna ytri marka hafsbotns Grænlands utan 200 sjómílna fyrir landsgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Kröfurnar skarast við kröfur Íslands og Kanada.

Tæplega sextíu innflytjendur í gæsluvarðhald á tíu árum

Fimmtíu og átta einstaklingar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli 29. greinar útlendingalaga á undanförnum tíu árum. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar.

Dæmdir fyrir líkamsárás á Selfossi

Þrír menn voru dæmdir fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Tveir þeirra fengu 30 daga skilorðsbundið fangelsi en einn 45 daga.

Offitusjúklingar stefna fæðuöryggi í hættu

Hætta er á að öll heimsbyggðin líði matarskort ef vandi offitusjúklinga er ekki leystur. Frá þessu greinir Sky fréttastofan í dag og vísar í nýja rannsókn máli sínu til stuðnings. Rannsakendur fullyrða að umfram matarneysla þeirra sem teljast of feitir jafnist á við það að einn milljarður manna bættist við mannkyn. Rannsakendurnir, sem starfa við London School of Hygiene and Tropical Medicine segja að fæðuþörf mannkyns sé ekki einungis háð fjölda heldur einnig heildarþyngd mannkynsins. Þess vegna sé mikilvægt að halda þyngd fólks í skefjum.

Hundrað lítrar af kjötsúpu á Þjórshátíð

Þjórshátíð var haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardaginn. Alls komu um 300-400 manns á svæðið, hlustuðu á tónlist, gæddu sér á íslenskri kjötsúpu og nutu þess að vera úti í sveit.

Ný tækni eykur lyfjaöryggi

Íslenskt fyrirtæki hefur þróað lyfjaskanna sem ber kennsl á lyf. Getur komið í veg fyrir nær öll mistök við skömmtun, pökkun og lyfjagjöf. Mikill áhugi er á skannanum erlendis. Framleiðslan verður á Íslandi.

Dómur gegn Vítisenglum kveðinn upp á miðvikudag

Búist er við því að dómur í máli Vítisengla sem grunaðir eru um alvarlega líkamsárás gegn konu í desember síðastliðnum verði kveðinn upp á miðvikudaginn. Gæsluvarðhald yfir þeim rennur út í dag og má búast við því að það verði því lagðar fram nýjar kröfur. Mennirnir eru grunaðir um alvarleg kynferðisbrot gegn konunni og að hafa veitt henni alvarlega líkamlega áverka. Þeir eiga yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsisdóm.

Sjá næstu 50 fréttir