Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigu niður 27 metra háan vegg: Miklu erfiðara en að ganga upp á fjöll Sig- og björgunarsveitarmennirnir Andrés Róbertsson og Jónas Grétar Sigurðsson, kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að mikilli hæð. Nú í kvöld ráku gestir Borgartúns upp stór augu í kvöld þegar þeir sáu kappana síga niður himinháan vegg. 4.5.2012 21:30
Heimavinnandi foreldri ekki með undir 560 þúsund í mánaðarlaun Heimavinnandi húsmóðir, eða húsfaðir, er ekki með lægri en 560 þúsund í mánaðarlaun samkvæmt útreikningum kjaramálasviðs Eflingar. Reykjavík síðdegis ræddi við Hörpu Ólafsdóttur, forstöðumanns kjarasviðsins, og báðu hana um að reikna mánaðarlaun heimavinnandi foreldra. Þannig voru ýmis störf tekin með í reikninginn sem heimavinnandi foreldri þarf að inna af hendi, svo sem matreiðslu, umönnun og þrif. 4.5.2012 21:00
Stakk af frá lögreglu og tilkynnti bílinn stolinn skömmu síðar Lögreglan þarf oft að takast á við furðulega einstaklinga í samfélaginu. Þannig lýsir lögreglan viðskiptum sínum við einn með eftirfarandi hætti: 4.5.2012 20:30
Aðstæður fjölskyldufólks oft til skammar í ósamþykktum íbúðum Meirihluti þeirra sem býr í ósamþykktu íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu er fjölskyldufólk en aðstæður þeirra eru oft til skammar og fær á slökkviliðsmenn að sögn slökkviliðsstjóra. 4.5.2012 20:00
Lítill drengur varð fyrir rafmagnslest Lítill drengur slasaðist fyrir skömmu á fæti eftir að hafa orðið fyrir rafmagnslestinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Verkefnastjóri slysavarna barna og unglinga segir fjölda slysa hafa orðið í garðinum. Nauðsynlegt sé að skilgreina mismunandi starfsemi garðsins. 4.5.2012 19:30
Ekki verið að fara bakdyraleið að samningum við Nubo Iðnaðarráðherra segir alls ekki verið að fara bakdyraleið að samningum við Huang Nubo með því að leigja honum land Grímssstaða á Fjöllum. Nubo sjálfur virðist kominn lengra í samningsferlinu en íslensk stjórnvöld, ef marka má yfirlýsingar hans í kínverskum fjölmiðlum í dag. 4.5.2012 19:00
Leiðrétting Vegna fréttar okkar í fyrrakvöld um að Umhverfisstofnun hefði rukkað kræklingabónda um 38 þúsund krónur fyrir áminningarbréf og afsökunarbeiðni, skal það leiðrétt að ekki var send rukkun fyrir afsökunarbeiðni. Umræddur reikningur var sendur fyrir mistök og var felldur niður þegar þau uppgötvuðust. 4.5.2012 18:38
Liðsmaður Beastie boys látinn Adam Yauch er látinn en hann var einn af liðsmönnum Beastie boys. Ekki er ljóst hvernig eða hvar Adam lést en hann greindist með krabbameinsæxli árið 2009. Tónlistarmaðurinn var kallaður MCA í Beastie boys og var 47 ára þegar hann lést. 4.5.2012 18:26
Karlar með 6,6% hærri laun en konur Föst laun karla á Íslandi eru 6,6% hærri en föst laun kvenna þegar búið er að taka tillit til helstu áhrifaþátta. Þetta er niðurstaða greiningar PwC á launamun kynjanna. Greiningin byggir á ítarlegum gögnum, sem fengin voru úr launakerfum liðlega 70 íslenskra fyrirtækja, yfir launagreiðslur í septembermánuði árið 2011. 4.5.2012 16:04
Sitja inni í tvo mánuði eftir sérstaklega hættulega líkamsárás Karl og kona um þrítugt voru dæmd í fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á veitingastaðnum Players í Kópavogi í janúar í fyrra. Fólkið lenti í deilum við mann inni á staðnum en þau voru þar að skemmta sér. 4.5.2012 15:08
Í fangelsi fyrir fjölmörg brot Fjórir piltar voru dæmdur í fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjölmörg brot víða um land. Brotin voru framin í fyrra og í ár en á meðal þess sem þeir voru sakfelldir fyrir voru þjófnaðir, eignaspjöll og umferðar- og fíkniefnalagabrot. Einn af mönnunum var dæmdur í 2 ára fangelsi, annars í 12 mánaða fangelsi og hinir tveir hlutu skilorðsbundna dóma í fjóra og sex mánuði. Þeir sem hlutu þyngsta og næst þyngsta dóminn voru sviptir ökurétti, annar í tvö ár en hinn ævilangt - sá er tvítugur að aldri. 4.5.2012 15:38
Viljum koma til móts við venjulega skákáhugamenn Þeir sem hingað til hafa gripið í tafl á kaffistofum fyrirtækja sér til skemmtunar geta nú sameinast í sveit og keppt fyrir hönd síns fyrirtækis á Firmamótinu í skák þann 9. maí frá 16 til 19 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Mótið er haldið af skákdeild Fjölnis í Grafarvogi. Formaður hennar er Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, en einnig vinnur Fjölnismaðurinn Héðinn Steingrímsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák, að framgangi mótsins. 4.5.2012 15:00
ESB blandar sér ekki í málefni iðnaðarráðuneytis Oddný Harðardóttir settur iðnaðarráðherra segir að hvorki sendiherra ESB, né nokkur annar á vegum sambandsins, hafi blandað sér í málefni ráðuneytisins. Þetta er svar ráðherra við fyrirspurn sem Ásmundur Einar Daðason þingmaður Framsóknarflokksins lagði fram á Alþingi. Ásmundur vildi fá að heyra skoðun ráðherrans á því að "ESB, með fjármunum og þáttöku sendiherra og sendiráðs“, hefði blandað sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem undir ráðuneytið heyri. 4.5.2012 14:22
Lýst eftir svörtum Clio Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýstir eftir Renault Clio sem stolið var í Garðabæ þann 17. apríl síðastliðinn. Bifreiðin er svört að lit, árgerð 1999 og með skráningarnúmerið RU-879. Ákoma er á vinstra framhorni bifreiðarinnar en lögregla telur mögulegt að skipt hafi verið um bílnúmer á bílnum. Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, eða í gegnum netfangið abending@lrh.is 4.5.2012 13:59
Líkja eftir flugslysi á Keflavíkurflugvelli Umfangsmesta flugslysaæfing landsins verður haldin á Keflavíkurflugvelli á morgun. Það er Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Isavia sem standa fyrir æfingunni. Líkt er eftir flugslysi við lendingu á Keflavíkurflugvelli og æfð samvinna viðbragðsaðila með áherslu á samhæfingu og virkni áætlunarinnar. 4.5.2012 13:50
Uglan lokaði í nokkrar mínútur - nemendur ósáttir Nemendur í Háskóla Íslands voru margir hverjir ósáttir þegar þeir fóru inn á innranet skólans, Ugluna, eftir hádegið í dag. Þar blasti við texti að henni hafi verið lokað tímabundið vegna viðhalds. Á Facebook sögðu margir nemendur að þetta væri ekki heppilegasti tíminn til að loka Uglunni, enda prófin í hámarki og á heimasvæðum nemenda sé mikið magn af gögnum sem tengjast kennslunni. Samkvæmt upplýsingum frá Reiknistofnun Háskóla Íslands er búið að opna Ugluna núna og var síðunni einungis lokað í stuttan tíma vegna uppfærslu. Ósáttir nemendur gátu því tekið gleðin upp á ný, nokkrum mínútum eftir að látið reiði sína í ljós á samskiptamiðlinum. 4.5.2012 13:39
Chen getur sótt um skólavist í Bandaríkjunum Kínversk stjórnvöld segja nú að andófsmaðurinn Chen Guancheng, sem flúði úr stofufangelsi og leitaði skjóls í sendiráði Bandaríkjanna í Kína um tíma, geti nú sótt um háskólavist í Bandaríkjunum. 4.5.2012 13:30
Samningur við Nubo ræddur á ríkisstjórnarfundi Fyrirhuguð leiga kínverska fjárfestisinins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum var rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir samninginn sem bjóða á Nubo hafi ekki verið lagðan fyrir fundinn. Iðnaðarráðherra, sem hefur forræði yfir málinu, kynnti stöðuna fyrir ráðherrum ríkisstjórnarinnar í morgun. Ögmundur Jónasson er meðal þeirra ráðherra sem þar óskaði eftir frekari upplýsingum. "Við höfum ekki séð samninginn. Samningurinn var í rauninni ekki kynntur heldur svona farið almennum orðum um málið.En að sjálfsögðu hljóta menn að vilja sjá þennan samning," segir hann. "Þetta er meira en að segja það að ráðstafa landi, hvort sem það er eignarlandi eða afnotaréttur að landi, sem liggur að öræfum Íslands, að ráðstafa slíkum rétti út fyrir landssteinana. Það verður ekkert gert bara eins og að drekka úr vatnsglasi. Við þurfum að skoða það mjög vandlega. Sú umræða hófst í morgun en henni var ekki lokið," segir Ögmundur. Meðal þess sem Ögmundur óskaði upplýsinga um er sú fyrirtækjasamsteypa sem þarna á í hlut, nánari gögn um áformin og hvernig að þessu verði staðið. Sem kunnugt er lagðist Ögmundur mjög gegn kaupum Nubo á Grímsstöðum, og hefur verið rætt um að verið sé að fara einskonar bakdyraleið með því að leigja honum landið. Mál Nubo hefur áður verið rætt á ríkisstjórnarfundi. "Þetta er í öðrum farvegi núna. Nú eru menn að skoða lög sem heimila ívilnanir fyrir erlendar fjárfestingar, og með þeim hætti er hægt að ná kannski sömu markmiðum og áður var rætt um, en í öðru ferli. Ég hef verið með ákveðin varnaðarorð uppi og það hefur ekkert slegið á mínar efasemdir í þessu máli," segir Ögmundur. 4.5.2012 12:28
Fréttu af leigjendunum fyrir nokkrum dögum Talsmaður Dróma segir fyrirtækið hafa frétt af leigjendum og ástandi brunavarna í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í Kópavogi fyrir nokkrum dögum. Eignin er í eigu fyrirtækisins en leigusamningur var gerður við fyrrum eiganda. 4.5.2012 12:00
Berklameðferðir hafa skilað góðum árangri "Þetta er viðráðanlegt mál og þær meðferðir sem er boðið upp á hér á landi ganga vel,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir um berkla. Krummi Björgvinsson, oft kallaður Krummi í Mínus, greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi að hann hefði farið í rannsóknir á lungnadeild Borgarspítalans sem hafi leitt í ljós að hann gæti verið með berkla. Það skýrist þó bráðlega hvort það sé rétt. 4.5.2012 11:19
Telja nýjar EES-reglur ekki standast stjórnarskrána Nýjar reglur Evrópusambandsins (ESB) sem Íslandi ber að taka upp vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) stangast á við íslensku stjórnarskrána, samkvæmt mati sérfræðinga í stjórnskipunarrétti. 4.5.2012 11:19
Vel horfir með Evrópustyrk til rannsókna á eldfjöllum Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands mun í samvinnu við Veðurstofu Íslands leiða samevrópskt verkefni 26 rannsóknastofnana og fyrirtækja sem góðar líkur eru á að verði fjármagnað með styrk frá Evrópusambandinu. Verkefnið nefnist Evrópsk ofurstöð í eldfjallafræði á Íslandi (FutureVolc). 4.5.2012 11:00
Bremsulaus vörubíll með of þungan farm Lögreglan hafði afskipti af vörubíl með eftirvagn í austurborginni í gærmorgun en grunsemdir vöknuðu um að verið væri að flytja farm sem væri í engu samræmi við heimild. 4.5.2012 10:44
Krummi í einangrun - gæti verið með berkla Það skýrist bráðlega hvort að Krummi Björgvinsson, oft kallaður Krummi í Mínus, sé með berkla. Hann var lagður inn á lungnadeild Borgarspítalans í gær og hefur verið í einangrun síðan. 4.5.2012 10:31
Greenpeace stöðvar finnskan ísbrjót í annað sinn Hópi fólks frá Greenpeacesamtökunum hefur aftur tekist að stöðva ferð finnska ísbrjótsins Nordica sem er á leið til Alaska. 4.5.2012 09:47
Þetta á ekki að vera styrjöld Styr hefur staðið um frumvörp Steingríms J. Sigfússonar um fiskveiðistjórnunarkerfi og veiðigjöld. Fjöldi umsagna hefur litið dagsins ljós og eru þær nánast allar neikvæðar. Á miðvikudag var lagt fram álit sérfræðinga atvinnuveganefndar sem segja frumvarpið munu ganga af fjölda sjávarútvegsfyrirtækja dauðum. 4.5.2012 09:45
Persónuvernd varar við töfum Þrátt fyrir að málum sem berast Persónuvernd hafi stöðugt fjölgað hefur starfsmönnum þar fækkað. „Það sem af er þessu ári hafa 612 ný mál verið skráð hjá stofnuninni. Til samanburðar voru nýskráð mál þann 1. maí 2008 alls 361. Er því um 75 prósenta aukningu að ræða á fjórum árum,“ segir í frétt Persónuverndar. 4.5.2012 09:30
Stjórnarskráin stöðvar eftirlitsstofnanir Íslandi ber vegna aðildar að EES að innleiða reglugerðir um nýjar evrópskar stofnanir með miklar heimildir tengdar fjármálamörkuðum. Sérfræðingar í stjórnskipunarrétti telja að með því myndu stjórnvöld brjóta stjórnarskrá. 4.5.2012 09:00
Sigurlíkur Sarkozys virðast hverfandi Sarkozy tókst engan veginn að tryggja sér sigur með frammistöðu sinni í sjónvarpskappræðum á miðvikudagskvöld. Hollande varðist harðskeyttum árásum Sarkozys af fimi og virðist hafa komið á óvart. Kosið verður á sunnudag. 4.5.2012 08:45
Ísland vill fá að sleppa við sumartímann Samningsafstaða Íslands varðandi flutningastarfsemi annars vegar og frjálsa vöruflutninga hins vegar í samningaviðræðum Íslands og Evrópusambandsins hefur verið kynnt framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjunum. Meðal þess sem þar kemur fram er að Ísland vill sleppa við að taka upp sumartíma, komi til aðildar. 4.5.2012 07:45
Guðrún J. Halldórsdóttir látin Guðrún J. Halldórsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur og alþingismaður fyrir Kvennalistann, lést miðvikudaginn 2. maí 77 ára að aldri. 4.5.2012 07:30
Húsmóðir fann loftstein sem er milljóna virði Fólk flykkist nú til smábæjarins Lotus í El Dorado sýslu í Kaliforníu í leit að loftsteinum. Enn sem komið er hefur aðeins heimavinnandi húsmóðir í bænum dottið í lukkupottinn. 4.5.2012 07:26
Íbúar í Mosfellsbæ vilja ekki Sorpu áfram Íbúafundur sem haldinn var í Mosfellsbæ í gærkvöldi um starfssemi Sorpu í Álfsnesi, skorar á stjórn Sorpu og aðildarsveitarfélög að finna nýtt framtíðarsvæði fyrir starfssemi Sorpu, en sorphaugar eru í Álfsnesi. 4.5.2012 07:09
Tveir á sjúkrahús eftir eldsvoða á Akureyri Eldur kviknaði í tauþurrkara í þvottahúsi í sambýlishúsi á Akureyri á tólfta tímanum í gærkvöldi. 4.5.2012 07:06
Rússar hóta loftárásum gegn Bandaríkjamönnum Rússar hafa hótað Bandaríkjamönnum að beita loftárásum til að stöðva fyrirhugað eldflaugavarnarkerfi sem Bandaríkjamenn ætla að setja upp í austurhluta Evrópu. 4.5.2012 07:04
Erfitt að halda athöfn með presti Theodór Kr. Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarfirði og Dölum, segir líkgeymslumál í Borgarfirði í ólestri. Vandamálið sé í senn viðkvæmt og aðsteðjandi og nauðsynlegt að bregðast við því hið fyrsta. 4.5.2012 07:00
Staða íslenska laxins góð í alþjóðlegu tilliti Íslenski laxastofninn stendur frekar vel. Af 400 laxám í Noregi hefur verið lokað fyrir veiði í 124 ám. Vestanhafs er Atlantshafslax á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Mjög misjafnt er milli landa hversu miklu af veiddum laxi er sleppt. 4.5.2012 07:00
Allt að 90% nemenda í stórborgum Asíu þjást af nærsýni Ný rannsókn sýnir að allt að 90% af þeim nemendum sem útskrifast úr skólum í stórborgum í Asíu þjást af nærsýni. 4.5.2012 06:59
Miðjumaður jarðar framboð Sarkozy Miðjumaðurinn Francois Bayrou hefur svo gott sem jarðað möguleika Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta á að ná endurkjöri í seinni umferð forsetakosninganna í Frakklandi um helgina. 4.5.2012 06:56
Annar hver kirkjugestur í Danmörku er innflytjandi Annar hver kirkjugestur sem sækir guðsþjónustur á sunnudögum í Danmörku er innflytjandi til landsins. 4.5.2012 06:52
Lögreglan þurfti að taka drukkinn breskan sjóliða úr umferð "What shall we do with a drunken sailor", spurðu lögreglumenn sig í nótt, þegar þeir þurftu að hafa afskipti af drukknum breskum sjóliða í Reykjavík. 4.5.2012 06:50
Nærri 15% jarðarbúa trúa á heimsendi í ár Nærri 15% jarðarbúa trúa því að heimsendir verði á þessu ári og 10% þeirra telja að dagatal Mayanna gefi í skyn að svo muni verða en dagatalinu lýkur þann 12. desember næstkomandi eftir að hafa spannað undanfarin 5.125 ár. 4.5.2012 06:45
Hægfara þing haldi áfram fram á sumar Alþingi mun starfa fram í júní eða júlí gerist þess þörf. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í þinginu í gær. Hún sagði þó að vel ætti að vera hægt að ljúka þingstörfum fyrir 31. maí eins og starfsáætlun gerir ráð fyrir, ef vilji væri fyrir hendi. 4.5.2012 06:15
Erfitt að tæma ósamþykkta brunahúsið „Við tæmum yfirleitt svona hús en þarna er leigusamningur í gildi þannig að við getum í rauninni ekki tæmt það,“ segir Magnús Steinþór Pálmarsson, talsmaður eignaumsýslufélagsins Dróma, um ósamþykkt íbúðarhúsnæði að Vesturvör 27 í Kópavogi, þar sem eldur kom upp í fyrrinótt. 4.5.2012 06:00
Viðræður að komast í þrot „Okkur hefur ekki tekist að finna lausnir sem gagnkvæm sátt væri um,“ sagði Anatólí Serdjúkov, varnarmálaráðherra Rússlands, um viðræður við Bandaríkjamenn um flugskeytavarnir, sem Bandaríkin vilja setja upp í austanverðri Evrópu. 4.5.2012 04:00