Telja nýjar EES-reglur ekki standast stjórnarskrána 4. maí 2012 11:19
Nýjar reglur Evrópusambandsins (ESB) sem Íslandi ber að taka upp vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) stangast á við íslensku stjórnarskrána, samkvæmt mati sérfræðinga í stjórnskipunarrétti. Með reglunum setti ESB á fót stofnanir sem hafa eftirlit með fjármálamörkuðum Evrópuríkja. Stofnanirnar hafa meðal annars vald til að svipta banka starfsleyfi og taka fram fyrir hendur fjármálaeftirlita Evrópuríkja. Ekkert í stjórnarskránni heimilar svo víðtækt framsal á valdi ríkisins samkvæmt niðurstöðu lagaprófessoranna Bjargar Thorarensen og Stefáns Más Stefánssonar. Álitsgerðin sýnir að Ísland hefur tvo kosti í stöðunni, segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. „Annars vegar að ráðast í að breyta stjórnarskránni með þeim hætti að heimilt sé að framselja vald til yfirþjóðlegra stofnana. Hins vegar að enda að lokum í því að EES-samningurinn verði óvirkur og við jafnvel kunnum að hrökklast út úr honum." Össur segir seinni kostinn ekki koma til greina. „Ég tel að svar okkar eigi að vera að reyna að ná samstöðu um að ná fram breytingum á stjórnarskránni." Össur segir að þær breytingar sem gerðar hafa verið á EES-samningnum frá því hann var samþykktur árið 1992 geti þegar hafa leitt til þess að samningurinn eins og hann er framkvæmdur sé ekki í samræmi við stjórnarskrána. „Ég er þeirrar skoðunar að EES-samningurinn sé kominn út fyrir það sem stjórnarskráin heimilar," segir Össur. „Með þessu máli sem nú er komið upp er ljóst að við getum ekki lengur innleitt reglur sem okkur ber samkvæmt EES-samningnum án þess að brjóta stjórnarskrána. Þess vegna þarf að breyta henni, nema menn séu tilbúnir að fórna EES-samningnum, sem ég teldi mikið óheillaspor sem enginn vill stíga."
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira