Erfitt að halda athöfn með presti 4. maí 2012 07:00 Theodór Kr. Þórðarson Yfirlögregluþjónn segir vandræði skapast ef geyma þarf fleiri en eitt lík í einu Borgarbyggð.
Theodór Kr. Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarfirði og Dölum, segir líkgeymslumál í Borgarfirði í ólestri. Vandamálið sé í senn viðkvæmt og aðsteðjandi og nauðsynlegt að bregðast við því hið fyrsta. Í bréfi Theodórs til byggðaráðs Borgarfjarðar segir hann vandann að hluta til felast í því hversu „líkhúsið“ í heilsugæslustöðinni í Borgarnesi sé lítið. „Séu þar fyrir eitt eða tvö lík þegar skyndilegt dauðsfall verður, til dæmis vegna umferðarslyss, er orðið mjög erfitt að athafna sig fyrir lögreglumenn, starfsfólk útfararstofnana og aðra sem að þessum málum koma. Að ekki sé minnst á þegar taka þarf á móti ættingjum í þessu herbergi að halda þar athöfn með presti og tilheyrandi,“ skrifar Theodór og þá er allur vandinn ekki upptalinn. „Fyrir utan nefnd þrengsli er í öðru lagi þarna aðeins lágmarks kælibúnaður sem hefur þar fyrir utan verið nokkuð bilunargjarn,“ lýsir yfirlögregluþjónninn sem segist vonast til að líkgeymslan verði stækkuð sem fyrst svo hún rúmi fjögur til sex lík í einu og að þar verði komið fyrir „viðeigandi og virkum kælibúnaði“. Byggðaráðið fól sveitarstjóranum að ræða við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um úrbætur.- gar
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira