Hægfara þing haldi áfram fram á sumar 4. maí 2012 06:15 Steingrímur J. Sigfússon stjórnmál efnahagsmál gengisdómur þingmenn Bjarni Benediktsson
Alþingi mun starfa fram í júní eða júlí gerist þess þörf. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í þinginu í gær. Hún sagði þó að vel ætti að vera hægt að ljúka þingstörfum fyrir 31. maí eins og starfsáætlun gerir ráð fyrir, ef vilji væri fyrir hendi. Stjórnarliðar og stjórnarandstöðuþingmenn tókust á í umræðum um störf þingsins og lengd þess í gær. Fjöldi mála bíður afgreiðslu þingsins og var samþykkt í gær að funda fram á kvöld. „Það er öllum ljóst að þetta þing er í miklum hægagangi og hér er mikið málþóf í gangi,“ sagði Jóhanna. Forsætisráðherra sagði Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn aðeins hafa það markmið að koma í veg fyrir að mál, sem þjóðin hefði beðið eftir lengi, næðu fram að ganga. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði stjórnarþingmenn eiga að líta sér nær, það væri á ábyrgð ríkisstjórnarinnar en ekki stjórnarandstöðunnar að þingið stæði í þessum vanda. Hann sagði umræðuna jafnframt hlægilega. „Við erum tilbúin til að vera hér alveg sleitulaust fram að næstu kosningum,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, um þingflokk sinn. Hún sagði forsætisráðherra vera með hótanir og sagði núverandi stöðu þingsins tilkomna vegna þrjósku hans. „Það er alveg ljóst hvað er hér í gangi. Það standa hörð átök um völdin á Íslandi og Sjálfstæðisflokkurinn er brjálaður yfir því að vera ekki við völd,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna við Fréttablaðið í gær. Steingrímur segir Sjálfstæðisflokkinn vilja gera ríkisstjórninni allt til bölvunar og skeyti ekkert um þjóðarhag í þeim efnum. - þeb, kóp
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira