Fleiri fréttir

Eftirlit og björgun mikilvægari

Staðsetning Íslands gerir það að verkum að landið verður í lykilstöðu nú þegar áhersla á norðurslóðir fer að aukast segir sérfræðingur í öryggismálum. Hlutverk Íslands verður ekki síst á vettvangi eftirlits- og björgunarmála á hafinu.

Síðustu hálkublettirnir að hverfa fyrir austan

Síðustu hálkublettirnir hverfa væntanlega af Mjóafjarðarheiði og Fjarðarheiði á Austufjörðum í dag, því eftir kalsaveður eystra að undanförnu hefur myndast hálka á fjallvegum þar.

Margar ábendingar um neyðarblys í gærkvöldi

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk margar ábendingar um tíu leitið í gærkvöldi um að neyðarblys hafi sést á lofti út af Álftanesi og var lögreglu gert viðvart og björgunarsveitarbátur sendur á svæðið til leitar.

Ægir kom með norska skipið til hafnar í Reykjavík

Varðskipið Ægir kom með norska línuveiðiskipið Toritu í togi til Reykjavíkur undir kvöld í gær, en norski skipstjórinn óskaði eftir aðstoð Gæslunnar eftir að aðalvél skipsins bilaði þegar það var á veiðum undan austurströnd Grænlands á miðvikudag í síðustu viku.

Eftirlitssveitir SÞ geta ekki stöðvað átökin í Sýrlandi

Robert Mood yfirmaður eftirlitssveitar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Sýrlandi er ekki bjartsýnn á framtíðina. Hann segir að jafnvel 1.000 eftirlitsmenn muni ekki geta stöðvað átökin í landinu en Sameinuðu þjóðirnar áforma að senda 300 eftirlitsmenn til Sýrlands.

Fjórðungur dauðra fálka finnst skotinn

Sjö högl fundust í hræi fálka sem nýverið fannst á Mýrum í Hornafirði. Í ályktunum aðalfundar Náttúrverndarsamtaka Austurlands (NAUST) frá því fyrr í mánuðinum er vakin á því athygli að í vöxt færist að alfriðaðir fuglar finnist skotnir.

Leynd aflétt af stjórnarskjölum

Aflétt hefur verið reglu sem sett var við samruna þriggja fyrirtækja í Orkuveitu Reykjavíkur um síðustu aldamót og fól í sér að fundargerðir og öll fundargögn stjórnar fyrirtækisins væru bundin trúnaði nema sérstök ákvörðun væri tekin um annað.

Karlmaður í vímu sekur um húsbrot í Kópavogi

Lögregla handtók ölvaðan og vímaðan karlmann í Kópavogi í gærkvöldi, nokkru eftir að hann hafði gerst sekur um húsbrot, eða ruðst óboðinn inn í íbúð, og beitt einhvern á heimilinu ofbeldi.

Mengun í Nígeríu mótmælt

Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International stóð nýverið fyrir mótmælum við bensínstöð Skeljungs við Vesturlandsveg.

Chen fer enn huldu höfði

Mál kínverska andófsmannsins Chen Guangcheng flækir samskipti Bandaríkjanna og Kína, en fullyrt er að hann hafist við í sendiráði Bandaríkjanna í Peking. Chen slapp úr stofufangelsi á heimili sínu í þorpinu Dong-shigu. Ljóst þykir að hann hafi fengið hjálp þorpsbúa við flóttann, en hann er blindur.

Telja virkjanir óásættanlegar

Virkjanir í Reykjanesfólkvangi eru óásættanlegar. Þetta er ályktun Náttúruverndarþings, sem fram fór á laugardag. Með virkjunum í Reykjanesfólk-vangi þykir meðal annars gengið gegn áformum um að vernda fólkvanginn og stofna þar eldfjallaþjóðgarð, sem náttúruverndarhreyfingin og Samtök ferðaþjónustunnar hafi áður bent á að rík tækifæri felist í.

Hefur fengið frábærar viðtökur

Samfélagsátakið Blái Naglinn hefur gengið vonum framar frá því að það hófst um síðustu mánaðamót. Það segir Jóhannes Valgeir Reynisson, upphafsmaður verkefnisins, en upphaf árverknis- og vitundarátaks um blöðruhálskirtilskrabbamein markaðist af frumsýningu heimildamyndar þar sem sagt var frá baráttu Jóhannesar við sjúkdóminn.

Börn lenda í hollustuklemmu

Velferð barna skal ávallt hafa forgang, samkvæmt þriðju grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Við erfiðan skilnað getur þetta ákvæði vafist fyrir foreldrum, þrátt fyrir góðan ásetning, og stjúpforeldrar geta aukið á flækjuna eins og Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi og formaður Félags stjúpfjölskyldna, gerði Gunnþóru Gunnarsdóttur grein fyrir.

Fyrrverandi olíumálaráðherra Líbíu fannst látinn í Vín

Fyrrverandi olíumálaráðherra Líbíu, Shukri Ghanem, fannst látinn í á í Vín í Austurríki í dag. Ghanem flúði Líbíu eftir að ástandið þar fór snöggversnandi, nokkrum mánuðum áður en uppreisnarmönnum tókst að fella Muammar Gaddafi.

Ár liðið síðan Osama var drepinn - hryðjuverkastríðið heldur samt áfram

Ár er liðið frá því að sérsveitir bandaríska hersins fundu og drápu hryðjuverkaleiðtogann Osama Bin Laden á felustað sínum í Pakistan. Sérfræðingar sem AP fréttastofan ræddi við segja að fráfall Bin Ladens dragi ekki úr hryðjuverkaógninni; enn sé óttast að Al Kaída reyni að ráðast á Bandaríkin.

Á leiðinni í gjaldþrot vegna umgengni leigjanda

1Hjón sem leigðu húsið sitt í Keflavík á meðan þau bjuggu og störfuðu í Noregi eru á leiðinni í gjaldþrot vegna leigjanda sem þau segja að hafi beinlínis eyðilagt allt inni í húsinu. Konan greinir frá reynslu sinni á Facebook og frásögn hennar er vægast sagt sláandi:

Borgarstjórinn með lungnabólgu - læknirinn hélt því skálarræðuna

Það var margt um manninn í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar sjötugir Reykvíkingar fögnuðu því að eiga afmæli á árinu. Borgarstjóri hefur boðið Reykvíkingu sem fagna þeim ágæta áfanga að ná sjötugsaldri árlega og er boðið upp á léttar veitingar við þessi ánægjulegu tímamót.

Vill kasta krónunni og búa til Nýkrónu

Lilja Mósesdóttir, formaður Samstöðu, vill búa kasta krónunni og búa til svokallaða Nýkrónu. Þetta kemur fram á heimasíðu Lilju þar sem hún ræðir meðal annars svokallaða snjóhengju. Hún samanstendur af aflandskrónum sem komið var í skjól með neyðarlögunum og eru í raun eignir kröfuhafa.

Gagnrýna skort á samráði og lýðræðislegum vinnubrögðum

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksin og Vinstri grænna eru ósáttir við tillögur meirihluta borgarstjórnar um skipulagsbreytingar á nokkrum fagsviðum borgarinnar. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum segir að tillögur þessar hafi ekki fengið neina efnislega meðferð hjá borgarstjórn, og séu því enn eitt dæmið um þann algjöra skort á samráði og lýðræðislegum vinnubrögðum sem einkennir störf núverandi meirihluta.

Hafa áhyggjur af fuglaveiðimönnum með ólögleg skotvopn

Félagar í Náttúruverndarsamtökum Austurlands (NAUST) hafa áhyggjur af því að fuglaveiðimenn sé á ferð með öflugri vopn en löglegt er. Þeir vilja að stjórnvöld herði eftirlit með slíkum vopnum. Þá hafa þeir áhyggjur af aukinni ásókn í eggjatínslu sem geti skaðað fuglastofna. Það er Austurglugginn sem greindir frá ályktunum frá aðalfundi samtakanna fyrir skemmstu.

Erlendir ríkisborgarar geta ekki lengur farið á hasskaffihús í Hollandi

Hollenskir dómstólar hafa úrskurðað að erlendir ríkisborgarar mega ekki kaupa og neyta kannabisefna á svokölluðum hasskaffihúsum í Hollandi. Landið er heimsfrægt fyrir umburðarlynda stefnu gagnvart kannabisnotkun þó það sé tæknilega séð ekki löglegt að neyta efnanna.

Gagnrýna fjölda skipulagsdaga leikskóla - foreldrar þöglir þolendur

Fjöldi skipulagsdaga á leikskólum hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum samkvæmt grein sem finna má á vef Samtaka atvinnulífsins þar sem þessi fjölgun er gagnrýnd til hliðsjónar af því að foreldrar þurfi að ganga á orlof sitt til þess að standa undir skipulagsdögum leikskólanna.

Varað við flóðum í Bretlandi

Bresk yfirvöld hafa varað við hugsanlegum flóðum í landinu vegna mikillar úrkomu en sérlega blautt og vindasamt verður á Bretlandseyjum næstu daga.

Segir gagnrýni Sigmundar Davíðs ekki standast skoðun

Formaður þingflokks vinstri grænna segir að yfirlýsingar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns framsóknarflokks um að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi valdið meiri skaða en hrunið sjálft séu kjánalegar og standist ekki skoðun.

ESB þrýsti á Geir um að tryggja hagsmuni erlendra kröfuhafa

"Ég fann fyrir miklum þrýstingi á þessum tíma. Meðal annars fékk ég símtal frá José Manuel Baroso um þetta mál. Ég fann að hann var með undirbúinn texta sem hann las að hluta til upp,“ lýsti Geir H. Haarde í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun, en þar lýsti fyrrverandi forsætisráðherrann því hvernig ESB þrýsti á Geir um að gera vel við erlenda kröfuhafa í hruninu.

Tugmilljóna stóðhestar í braut í dag

Stóðhestadagur Eiðfaxa verður haldinn hátíðlegur í dag. Nokkrir af glæsilegustu og hæst dæmdu stóðhestum landsins, sem og ungar vonarstjörnur, verða sýndir á Brávöllum, félagssvæði Sleipnismanna, á Selfossi í dag, sunnudag. Verðmæti hrossanna hleypur á tugum ef ekki hundruðum milljóna króna. ur ókeypis...

Flugslys í Sviss - sex létust

Sex létust þegar lítil flugvél fórst hálftíma eftir flugtak í nágrenni við þorpið Tatroz í vesturhluta Sviss í gærkvöldi.

Enn engar sannanir um að farsímar hafi skaðleg áhrif á heilsu

Enn hafa engar sannarnir sýnt fram á að farsímanotkun skaði heilsu fólks. Þetta segja breskir vísindamenn sem fóru yfir hundruð rannsókna á farsímanotkun sem gerðar hafa verið síðustu ár. Fjallað er um niðurstöður þeirra á vefsíðu breska ríkisútvarpsins, BBC.

Herskáir íslamistar réðust inn í háskóla í Nígeríu

Byssumenn hafa ráðist á háskólann í nígerísku borginni Kano auk þess sem sprengjur hafa sprungið nærri háskólanum. Samkvæmt frétt BBC stendur árásin enn yfir en talið er að árásin beinist að kristnum stúdentum í skólanum.

Harður árekstur á Miklubrautinni í gærkvöldi

Harður árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar um klukkan átta í gærkvöldi. Þannig lenti jeppabifreið á hliðinni eftir að hún lenti í árekstri við fólksbíl og var í fyrstu talið að ökumaður jeppans væri fastur í bílnum.

Sprautaði piparúða inn á Hressó - gestir hlupu út

Óprúttinn aðili sprautaði piparúða inni á skemmtistaðnum Hressó um klukkan hálf þrjú í nótt. Úðinn hefur töluverð áhrif á nærstadda og fundu gestir fyrir óþægindum þannig þeir hlupu á dyr eins og fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Staðurinn var loftræstur stuttu eftir atvikið og gátu gestir aftur snúið inn á staðinn innan skamms.

Ætlaði ekki að skrifa skvísubók

Rithöfundurinn og blaðamaðurinn Sólveig Jónsdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu skáldsögu, Korter, sem fjallar um fjórar ungar konur í Reykjavík. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá uppvexti í sveit, námi og starfi í Skotlandi og sínum næstu skrefum.

Margar leiðir til að flá kött

Líkamsræktarfrík og letihaugar eru á meðal fjölmargra dyggra lesenda Röggu Nagla. Hún heitir fullu nafni Ragnhildur Þórðardóttir og er sálfræðingur og einkaþjálfari sem hefur náð hundruðum Íslendinga upp úr feni misviturra upplýsinga um heilsurækt og hjálpað þeim að ná varanlegum árangri. Naglinn gaf Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur nokkur vel valin ráð.

Búið að opna Miklubrautina á ný

Búið er að opna Miklubrautina á ný en hún var lokuð vegna umferðaslyss. Harður árekstur varð á á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar. Einn var fluttur á sjúkrahús en ekki er vitað um ástand þeirra sem lentu í árekstrinum.

Stefna á hjólstólahandboltamót í Svíþjóð

Handbolti í hjólastólum er ekki ósvipaður venjulegum handbolta nema að liðsmenn eru allir bundnir hjólastól, dómarinn er utan vallar og mörkin hafa verið lækkuð. Upphafsmenn íþróttarinnar segja það hafa vantað hópíþrótt fyrir fatlaða.

Sjá næstu 50 fréttir