Fjórðungur dauðra fálka finnst skotinn 30. apríl 2012 06:30 Fálkar eru ekki algeng sjón í byggð. Þessi hér að ofan gæddi sér á dúfu undir vegg Héraðsdóms Reykjavíkur í Austurstræti í desemberbyrjun 2006.Fréttablaðið/Vilhelm
Sjö högl fundust í hræi fálka sem nýverið fannst á Mýrum í Hornafirði. Í ályktunum aðalfundar Náttúrverndarsamtaka Austurlands (NAUST) frá því fyrr í mánuðinum er vakin á því athygli að í vöxt færist að alfriðaðir fuglar finnist skotnir. Rannsóknir Náttúrufræðistofnunar Íslands á undanförnum árum sýna að fjórðungur um það bil hundrað fálka, sem fundist hafa dauðir, hafði verið skotinn. Varp-stofn fálkans er talinn vera um 300 til 400 pör. Hann hefur verið á válista og stranglega friðaður frá því árið 1940. „Að skjóta friðaða fugla er ekki veiði heldur dráp sem kemur óorði á alla veiðimenn,“ segir í ályktuninni og bent er á að á sama tíma og áhugi á skotveiðum hafi aukist hafi dregið svo úr eftirliti að nær ekkert eftirlit sé með fuglaveiðum. „NAUST leggur til að koma upp kerfi eftirlitsmanna með fuglaveiði sem hafi heimild til að skoða afla og gera upptæk skotvopn finnist friðaðar tegundir í afla. Þá leggur NAUST áherslu á að þeir sem stoppa upp fugla stoppi ekki upp friðaða fugla heldur tilkynni til lögreglu þau hræ sem þeim berast.“ Eins er vakin athygli á því að eitthvað sé um ólögleg vopn við fuglaveiðar, hlaðin miklu fleiri skotum en leyfilegt sé. „NAUST skorar á stjórnvöld að takmarka strax innflutning á vopnum sem ekki uppfylla löggjöf um veiðar enda ekki ástæða til að heimila innflutning á vopnum sem ekki má nota. Herða þarf eftirlit, viðurlög og sektir“, segir þar. Elvar Árni Lund, formaður Skotveiðifélags Íslands (Skotvís), segir félagsmenn Skotvís vel meðvitaða um þessa umræðu, þótt ályktanir NAUST hafi ekki borist honum til eyrna. „Allt hefur þetta verið í umræðunni,“ segir hann og kveður skoðun Skotvís að stóraukið eftirlit leysi engan vanda. „Það þarf að upplýsa veiðimenn betur og leggja meiri áherslu á fræðslu. Fyrir því hefur Skotvís staðið í mörg ár,“ segir hann og telur að í raun hafi Grettistaki verið lyft í siðbót á meðal skotveiðimanna. Hins vegar þurfi ekki marga til að koma óorði á allan fjöldann. „Við erum á réttri leið. Þetta snýst um að vinna með veiðimönnum, upplýsa og fræða,“ segir Elvar Árni og kveður félagið í raun hafa sinnt í þeim efnum hlutverki sem stjórnvöld ættu að sjá um. Elvar Árni hvetur alla nýja veiðimenn til að ganga í Skotvís og undirgangast þar með siðareglur félagsins. „Með því má gera góða veiðimenn enn betri.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Innlent Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Innlent Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna Innlent „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent Fleiri fréttir Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Sjá meira