Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stal ítrekað númerplötum og bensíni Rétt rúmlega tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjölmörg afbrot árið 2008. Maðurinn var dæmdur í Madríd á Spáni í sex ára fangelsi fyrir tveimur árum síðan þegar hann, ásamt konu, reyndi að smygla rúmlega fimm kílóum af kókaíni til landsins. 17.4.2012 13:13
Breivik segist iðrast einskis Fjöldamorðinginn Anders Breivik segist iðrast einskis og fer fram á að hann verði sýknaður. Hann flutti yfirlýsingu í réttarsal í morgun þar sem hann hélt hatursáróðri sínum á lofti. 17.4.2012 12:05
Fjórir viðriðnir fíkniefnasmyglið Fjórir hafa verið handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamálsins sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þrír hafi verið úrskurðaðir í varðhald til 30. apríl en sá fjórði til 23. apríl. Mennirnir voru allir handteknir á sunnudagsmorgun. Einn var tekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar og tveir þegar þeir voru á leið til höfuðborgarinnar. Sá fjórði var síðan handtekinn heima hjá sér en hann er búsettur hérlendis. Mennirnir eru allir erlendir ríkisborgarar og höfðu þremenningarnir komið hingað til lands frá Póllandi. 17.4.2012 11:51
Hélt að verið væri að steikja flatkökur Eldur kom upp í lítilli íbúð á Selfossi klukkan rúmlega tíu í morgun. Íbúðin er inn af bílskúr en eldurinn kom upp í svefnherberginu. Slökkvilið telur að kviknað hafi í út frá rafmagni en það gekk vel að slökkva eldinn. Það var póstburðarkona sem tilkynnti um eldinn, en hún fann sérkennilega lykt koma frá bílskúrnum. Slökkviliðsmaður sem fréttastofa ræddi við segir að konan hafi haldið í fyrstu að verið væri að steikja flatkökur en lét slökkvilið engu að síður vita. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. 17.4.2012 11:23
Í einangrun eftir að kókaín fannst í sjampóbrúsa Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem var tekinn með tæplega 190 grömm af kókaíni á Keflavíkurflugvelli í byrjun þessa mánaðar. 17.4.2012 11:05
Herjólfur siglir seinni ferð dagsins til Þorlákshafnar Herjólfur siglir til Þorlákshafnar frá Vestmannaeyjum í dag. 17.4.2012 12:48
Mál hundaníðings þingfest í dag Mál gegn tæplega þrítugum karlmanni sem sakaður er um að hafa drepið hundinn Kol, verður þingfest í Héraðsdómi Vestfjarðar eftir hádegið. Maðurinn, sem titlar sig sem tónlistarmaður, er ákærður fyrir að hafa bundið fram- og afturfætur hundsins við tvö bíldekk í desember síðastliðnum og því næst kastað hundinum ofan af vegbrú í botni Dýrafjarðar. Hundshræið fannst 8. desember í Hundshræið í Þingeyrarhöfn. 17.4.2012 10:21
Vilja að Kínverjar verði áheyrnarfulltrúar í Norðurskautsráðinu Kínverjar njóta stuðnings Svía til þess að verða áheyrnafulltrúar í Norðurskautsráðinu, en þeir sækjast nú eftir meiri áhrifum á svæðinu. Þetta kemur fram í frétt AP fréttastofunnar af blaðamannafundi sem Song Tao aðstoðar utanríkisráðherra Kína hélt í gær í tilefni af heimsókn forsætisráðherrans Wen Jiabao til Íslands, Svíþjóðar, Þýskalands og Póllands. Ekki er minnst á hvort Íslendingar styðji það að Kínverjar verði áheyrnarfulltrúar en búast má við því að það verði rætt á fundum Jiabao með íslenskum ráðamönnum. 17.4.2012 10:09
Upprættu ólöglegan fíkniefnamarkað á netinu Bandarísk lögregluyfirvöld segja að þau hafi upprætt leynilegan og ólöglegan markað með fíkniefni á netinu. 17.4.2012 09:55
Teknir með töluvert magn af amfetamíni Þrír karlmenn voru handteknir á Reykjanesbrautinni á sunnudagsmorgun með töluvert magn af amfetamíni fórum sínum. Mennirnir höfðu stuttu áður komið með flugvél frá Varsjá í Póllandi. 17.4.2012 09:49
Neðanjarðarbörn berjast áfram Munaðarlaus börn í Rúmeníu voru kvikmynduð í lífsbaráttu sinni í heimildarmyndinni um Neðanjarðarbörnin sem kom út árið 2001. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Magnús Halldórsson skoðaði sögu barnanna sem hin verðlaunaða heimildarmynd fylgdi eftir og hvernig þeim hefur gengið á lífsins leið síðan. Hún hefur verið þyrnum stráð, svo ekki sé meira sagt. 17.4.2012 09:30
Rugluð yfirlýsing Breivik vakti furðu í réttarsalnum Yfirlýsing sú sem fjöldamorðinginn Anders Breivik fékk að lesa upp í réttarhöldunum í Osló í morgun vakti furðu viðstadda. 17.4.2012 08:53
Sjóræningjar saman í sæng Svokallaðir „sjóræningjaflokkar“ í Evrópusambandsríkjum hyggjast bjóða sig fram sem einn flokk í næstu kosningum til Evrópuþings. 17.4.2012 08:30
Íþróttakrakkar fá hærri einkunnir í skóla Börn sem eru í skólaíþróttum fimm sinnum í viku auk fleiri líkamsæfinga eru ekki bara í betra líkamlegu formi en börn sem eru í skólaíþróttum tvisvar í viku heldur fá þau einnig hærri einkunnir. 17.4.2012 08:00
Stefnt á siglingu Herjólfs til Landeyjahafnar í dag Stefnt er á siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar í dag, þriðjudag, en brottför hefur verið frestað. 17.4.2012 07:42
Oftaka vatn í Vatnsendakrika Orkustofnun hefur bent Kópavogsbæ á að sveitarfélagið taki nú meira neysluvatn úr Vatnskrika en því er heimilt. 17.4.2012 07:30
Njóta kyrrðarinnar í Skálholti Allir þrettán biskupar sænsku kirkjunnar, ásamt Anders Wejryd erkibiskupi, komu til landsins í gær. Þeir dvelja í Skálholti frá deginum í dag til föstudags og njóta kyrrðar og uppbyggingar undir handleiðslu Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands. 17.4.2012 07:30
Öflugasta tölva Íslands vígð Ofurtölva sem er samstarfsverkefni fjögurra norrænna rannsóknastofnana var vígð í gagnaveri Advania í gær. Gæti eflt upplýsingatæknigeirann hér á landi og verið fyrsta skrefið í átt að frekara samstarfi. 17.4.2012 07:30
Áskorun um ný göng undir Oddsskarð Bæjarstjórn Fjarðabyggðar ætlar að safna áskorunum bæjarbúa til Alþingis og ríkisstjórnar um að hefja framkvæmdir við ný sjö kílómetra göng undir Oddsskarð nú þegar. 17.4.2012 07:21
Leitað að tveimur mönnum sem rændu bakarí Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar en að tveimur ungum karlmönnum, sem vopnaðir hafanboltakylfum rændu peningum úr bakaríi í Hafnarfirði í gær. 17.4.2012 07:14
Romney með forskot á Obama í nýrri skoðanakönnun Ný skoðanakönnun á vegum Gallup sýnir að Mitt Romney hefur forskot á Barack Obama Bandaríkjaforseta í röðum skráðra kjósenda í Bandaríkjunum. Romney mælist með 47% fylgi en Obama með 45%. 17.4.2012 07:10
Íbúar El Salvador fögnuðu fyrsta morðlausa deginum í þrjú ár Íbúar í El Savador höfðu ástæðu til að fagna eftir síðustu helgi þegar í ljós kom að laugardagurinn hafði liðið án þess að morð væri framið í landinu. Íbúar þessa Mið-Ameríkuríkis höfðu fram að því ekki upplifað morðlausan dag í ein þrjú ár. 17.4.2012 07:06
Fjögur skip á leið til landsins með kolmunnafarma Fjögur íslensk fjölveiðiskip eru nú á leið til landsins með kolmunnafarma eftir veiðar suður af Færeyjum og eitt til viðbótar ætlar að landa í Færeyjum. 17.4.2012 07:00
Laxnessaðdáandi frá Japan fær styrk Fjórir fengu í gær styrki úr Watanabe-styrktarsjóðnum við athöfn í Háskóla Íslands (HÍ). Japanski athafnamaðurinn Toshiozo Watanabe stofnaði sjóðinn árið 2008 í þeim tilgangi að styrkja fræðileg tengsl Íslands og Japan. 17.4.2012 07:00
Gervigras sem kostaði tugmilljónir er gallað Skipta þarf út nýlegu gervigrasi í íþróttahöllunum í Reykjanesbæ og Grindavík. Grasið losnar af gólfmottunum. Framleiðandinn viðurkennir galla og verið er að semja um ný gólf. Þau kostuðu yfir 40 milljónir er þau voru keypt fyrir hrun. 17.4.2012 07:00
Hannar glugga fyrir Elísabetu drottningu Leifur Breiðfjörð listamaður var valinn úr hópi fjörutíu listamanna til að gera glugga í dómkirkju í London. Glugginn er tileinkaður Elísabetu drottningu og verður vígður á sextíu ára valdaafmælinu. 17.4.2012 07:00
Öflugur jarðskjálfti skók Chile í nótt Öflugur jarðskjálfti upp á 6,7 á Richter reið yfir miðhluta Chile í nótt en upptök hans voru skammt frá ferðamannabænum Valparaiso. 17.4.2012 06:55
Stúlkur í nunnubúningum fækkuðu fötum fyrir Berlusconi Heldur hallar á Silvio Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu í réttarhöldum sem nú standa yfir í Mílanó. Hann er ákærður þar fyrir kynferðilegt samræði við stúlkur undir lögaldri. 17.4.2012 06:42
Tókst að endurlífga rússneskan ferðamann á síðustu stundu Sjúkraflutningamönnum á sjúkrabíl tókst á síðustu stundu að endurlífga rússneskan ferðamann, sem missti meðvitund í alvarlegu krampakasti, þegar hann var ásamt konu sinni á ferð um sunnanvert Snæfellsnes í gær. 17.4.2012 06:35
Móðir Breivik þarf ekki að bera vitni í réttarhöldunum Réttarhöldin yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik hefjast að nýju nú klukkan sjö að okkar tíma. Réttarhöldin hefjast á því að Breivik mun lesa upp yfirlýsingu en lögmaður hans segir að sá upplestur muni taka um 30 mínútur. Í yfirlýsingunni mun Breivk ætla að verja gjörðir sínar. 17.4.2012 06:32
Fjögurra milljarða fjárfesting Samskip hafa fest kaup á flutningaskipunum Arnarfelli og Helgarfelli fyrir tæpa fjóra milljarða króna. 17.4.2012 06:30
Fimm milljarðar afskrifaðir Fyrrum eigendur Prentsmiðjunnar Odda eignuðust fyrirtækið nýverið eftir að hafa keypt það á 500 milljónir króna. Áður en Oddi var seldur höfðu Arion banki og Landsbankinn afskrifað um fimm milljarða króna af skuldum móðurfélags Odda, eignarhaldsfélagsins Kvosar ehf. Um er að ræða Þorgeir Baldursson, sem var stærsti einstaki eigandi Kvosar fyrir fjárhagslega endurskipulagningu félagsins, og aðila tengda honum. DV greindi frá málinu í gær. 17.4.2012 06:30
Sumir jöklanna virðast stækka Ný rannsókn á stærð jökla í Himalajafjöllunum sýnir að sumir jöklanna hafa stækkað umtalsvert á síðustu árum, á meðan aðrir hopa eins og jöklar annars staðar í heiminum á síðustu árum. 17.4.2012 06:00
Átök við landamæri Súdans Átök hafa að nýju brotist út við landamæri Súdans og nýja ríkisins Suður-Súdans síðustu daga. Tekist er á um yfirráð yfir nokkrum bæjum og svæðum við landamærin sem bæði ríki gera tilkall til. 17.4.2012 06:00
Karzai segir upplýsingaöflun hafa brugðist í aðdraganda árásar Talið er að hryðjuverkasamtökin Haqqani hafi staðið að baki árásum á opinberar byggingar og stofnannir í Kabúl, höfuðborg Afganistan á sunnudaginn. Forseti landsisn segir að brestur í upplýsingaöflun NATO hafi leitt til árásanna. 16.4.2012 23:48
Tupac flutti lag á Coachella hátíðinni í gær Rapparinn Tupac Shakur tróð upp á Coachella tónlistarhátíðinni í gær - þrátt fyrir að hafa verið látinn í meira en 15 ár. 16.4.2012 23:10
Obama með 9% forskot á Romney Barack Obama, Bandaríkjaforseti, virðist hafa nokkuð gott forskot á helsta keppinaut sinn í forsetakosningunum í nóvember. Þannig hefur Obama 9% forskot á Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóra Massachusetts. 16.4.2012 22:30
Rændu verslun vopnaðir hafnaboltakylfum Vopnað rán var framið í Bakaríi við Melabraut í Hafnarfirði í dag. Þá ruddust tveir menn inn í verslunina vopnaðir hafnaboltakylfum og ógnuðu starfsfólki. 16.4.2012 22:18
Vill hjálpa körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli Á hverju ári greinast 220 karlmenn með krabbamein í blöðruhálskirtli. Í hverri viku deyr einn karlmaður af völdum sjúkdómsins. 16.4.2012 21:15
"Ég mæli með því að fólk fái næringarráðgjöf hjá foreldrum sínum" Fjöldi fólks hefur keypt sér sérstakt tilboð í blóðskoðun hjá fyrirtæki sem segist skoða blóð undir öflugri smásjá sem tengd er við tölvu. Sérfræðingur í blóðmeinafræði segir að ekki þurfi mikla skynsemi til þess að sjá að það sem þarna sé á ferð standist enga skoðun. 16.4.2012 20:45
Þingeyingar bíða enn eftir stórframkvæmdunum Forystumenn Þingeyinga kalla eftir því að stjórnvöld sýni meiri festu í að koma stóriðjuframkvæmdum í gang. Formaður bæjarráðs Norðurþings segir skort á svörum frá ríkisstjórn tefja viðræður um kísilver. 16.4.2012 20:15
Sautján ára ökuníðingur skapaði mikla hættu Sautján ára piltur var staðinn að ofsaakstri á Þingvallavegi um kvöldmatarleytið á laugardag. Bíll hans mældist á 164 kílómetra hraða. 16.4.2012 20:13
Segir stjórnvöld sýna ættleiðingum lítinn áhuga Kona sem hefur beðið eftir að fá að ættleiða barn í tvö ár segist úrkulna vonar þar sem íslensk yfirvöld líti á málaflokkinn sem afgangsstærð. Hún segist sjálf þekkja til Íslendingar sem hafa misst af tækifærinu til að ættleiða vegna tregðu kerfisins. 16.4.2012 19:00
Sæbraut opin á ný Sæbraut hefur nú verið opnuð á ný en henni var lokað til suðurs frá Holtavegi fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var ástæða lokunarinnar umferðarslys við Sæbraut Skeiðarvog. 16.4.2012 18:30
Tvö prósent af vegafé fer til höfuðborgarinnar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar ræddi hann um samgöngumálin. Hann gagnrýnir stefnu ríkis og borgar í umferðaröryggismálum. 16.4.2012 17:26