Fleiri fréttir

Stakk logandi pappír inn um bréfalúgu

Logandi pappír var stungið inn um bréfalúgu í heimahúsi á Akranesi nú um helgina samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Húsráðendur urðu varir við reyk og slökktu eldinn sem var kominn í gólfteppi og mottu auk þess sem útidyrahurðin sviðnaði. Talsverður reykur var í íbúðinni og var slökkvilið kallað á vettvang til að reykræsta. Málið er í rannsókn.

Fyrsta degi réttarhalda lokið - Breivik tjáir sig í fyrramálið

Fyrsta degi réttarhaldanna yfir Anders Behring Breivik lauk í Osló eftir hádegið í dag. Í ræðu sinni sagði Geir Lippestad verjandi Breiviks að svo gæti farið að hann biðji um frestun sökum þess að saksóknari skilaði inn miklu magni gagna þremur dögum áður en réttarhöldin hófust.

325 þúsund nöfn í málaskrá lögreglunnar

Alls eru 325 þúsund nöfn einstaklinga skráð í málaskrá ríkislögreglustjóra sem annars kerfisbundna skráningu upplýsingar um lögreglumálefni. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurnum Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar.

Þjófóttar konur tóku börnin með í leiðangur

Þrjár konur voru handteknar skömmu eftir hádegi á föstudag vegna gruns um þjófnað í versluninni Ozone við Austurveg á Selfossi. Konurnar höfðu verið á ferð í versluninni daginn áður og þá stolið fatnaði fyrir á annaðhundrað þúsund krónur að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á Selfossi.

Brenndi sig á sjóðandi heitum jarðvegi

Kona rann til á aurblautum stíg í Grænadal, norðan við Hveragerði, og sökk ofan í svörðinn en þar undir reyndist jarðvegurinn sjóðandi heitur.

Konur í fitness: Svefntruflanir og röskun á tíðarhring

"Það kom manni kannski mest á óvart þessi andlegi þáttur sem stelpurnar þurftu að takast á við eftir á,“ segir Sigurður Kristján Nikulásson sem ásamt skólafélaga sínum, Sigurði Heiðari Höskuldssyni, könnuðu líkamleg og andleg áhrif undirbúnings og þátttöku kvenna í Íslandsmótinu í Fitness árið 2011.

Krefjast Norðfjarðarganga án tafar

Íbúar Fjarðabyggðar hafa hert baráttu sína fyrir Norðfjarðargöngum og í dag og næstu daga verður gengið í hvert hús í þessu stærsta sveitarfélagi Austurlands til að safna áskorunum til Alþingis og ríkisstjórnar um að hefja framkvæmdir nú þegar.

Sæbraut lokuð eftir umferðarslys

Sæbraut hefur verið lokað til suðurs frá Holtavegi í óákveðin tíma. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ástæðan umferðarslys við Sæbraut Skeiðarvog.

Bjóst við afsökunarbeiðni frá Alistair Darling

"Þetta var einstaklega erfið ákvörðun, sérstaklega í fyrsta skiptið,“ sagið Ólafur Ragnar Grímsson forseti í ítarlegu viðtali við Buisness Insider þegar hann lýsti því hversu erfitt það hefði verið að hafna fyrri lögunum um Icesave. Hann segir í viðtalinu að hann hafi verið undir gríðarlegum þrýstingi frá Evrópu um að samþykkja lögin sem og eigin þjóð.

Vél Iceland Express þurfti að lenda á Stansted

Flugvél Iceland Express sem lenda átti á Gatwick flugvelli í Lundúnum 12:10 að íslenskum tíma varð að lenda á Stansted flugvelli vegna nauðlendingar Virgin vélarinnar sem varð til þess að flugvellinum hefur verið lokað. Í tilkynningu frá Iceland Express segir að níutíu og níu farþegar séu um borð í flugvél Iceland Express sem bíður nú færis á að komast á Gatwick.

Þurfti að nauðlenda á Gatwick

Öllum flugum á Gatwick-flugvellinum í London í dag hefur verið aflýst um tíma eftir að flugvél á vegum flugfélagsins Virgin þurfti að nauðlenda á vellinum fyrir stundu vegna tæknilegra vandamála. Um 300 manns voru í vélinni og 13 áhafnarmeðlimir. Að sögn flugfélagsins ákvað flugstjórinn að koma inn til lendingar í öryggisskyni en ekki er ljóst hvað bilaði. Öllum flugbrautum hefur verið lokað og má búast við seinkunum á vellinum í dag. Flugvél á vegum Iceland Express sem átti að fara í loftið frá Gatwick kl. hálf tvö seinkar eitthvað vegna þessa.

Stefna á að lækka útsvarið á Seltjarnarnesinu

Með samstilltu átaki bæjarstjórnar og starfsmanna Seltjarnarnesbæjar varð reksturinn árið 2011 mun betri en árið á undan að því er fram kemur í tilkynningu frá bænum. Þar segir að reikningar bæjarins fyrir nýliðið ár gera ráð fyrir afgangi upp á 93 m.kr. en sambærileg tala fyrir árið 2010 var 1 m.kr.

Laugardalslaug lokuð næstu daga

Laugardalslaug er lokuð í dag og næstu tvo daga vegna endurbóta. Laugin opnar á ný á sumardaginn fyrsta, að því er fram kemur á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Konan sem lenti í köfunarslysinu við góða heilsu

Konan sem lenti í köfunarslysi í Silfru á Þingvöllum í síðustu viku, er nú við góða heilsu samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi. Konna, sem er kanadísk, fipaðist við köfun og sökk til botns í gjánni, og endaði á um 14 metra dýpi.

Breivik grét í dómsal - myndband

Norski fjöldamorðinginn Anders Breivik grét í dómsal í dag en réttarhöldin yfir honum hófust í morgun. Hann felldi ekki tárin vegna samvisku eða eftirsjár vegna fjöldamorðanna í Útey heldur spilaði saksóknarinn í málinu áróðursmyndband sem hann útbjó stuttu fyrir voðaverkin. Norskir fjölmiðlar segja að hann hafi verið svo stoltur af myndbandinu þar sem hann lýsir öfgafullum skoðunum sínum að hann hafi ekki getað haldið aftur tárunum. Breivik lýsti sig sekan um öll 77 morðin en þeim var lýst ítarlega í dómsal í morgun.

Grunaðir raðmorðingjar handteknir

Lögreglan í Frakklandi hefur nú handtekið tvo menn sem grunaðir eru um aðild að fjórum morðum sem framin voru í landinu. Talið er að um raðmorðingja sé að ræða en fyrsta morðið var framið í nóvember í fyrra og það fjórða í byrjun þessa mánaðar.

Ætla að byggja dómkirkju úr pappa

Í bígerð er að byggja 25 metra háa dómkirkju í Nýsálensku borginni Christchurch en sú sem fyrir var í borginni eyðilagðist í jarðskjálftanum í fyrra. Nýja kirkjan verður 25 metrar á hæð og með sæti fyrir 700 manns.

Bréfdúfur í kappflugi landshorna á milli

„Þetta er bara eins og hvert annað áhugamál,“ segir Eiríkur Ingi Kristinsson, bréfdúfnabóndi í Mosfellsbæ. „Ég var í þessu sem ungur strákur og byrjaði aftur núna á fertugsaldri.“ Hann segist hafa haft aðstöðu í garðinum heima hjá sér sem barn. „Það var annar hver krakki með dúfur fyrir svona 30 árum,“ bendir hann á.

Pippa Middleton í alvarlegum vandræðum í París

Pippa Middleton, systir Kate eiginkonu Vilhjálms Bretaprins, hefur verið yfirheyrð af frönsku lögreglunni og á yfir höfði sér handtöku og ákæru vegna atburðar sem gerðist á götu í París í gærdag.

Ríkið ætlar að veita aukið fjármagn í Íbúðalánasjóð

Stjórnvöld stefna enn að því að leggja Íbúðalánasjóði til aukið eigið fé svo að eiginfjárhlutfall hans verði að lágmarki 5 prósent. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Til þess þarf sjóðurinn að fá um tíu milljarða króna. Ekki hefur verið ákveðið hvenær féð verður lagt til en Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, sagði í Fréttablaðinu fyrr í þessum mánuði að rætt hafi verið um að eiginfjárframlagið yrði reitt fram á þessu ári. Á fjárlögum þessa árs er ekki gert ráð fyrir auknu framlagi til sjóðsins úr ríkissjóði.

Fyrri ferð Herjólfs til Þorlákshafnar í dag

Vegna ölduhæðar og óvissu um dýpi í Landeyjahöfn siglir Herjólfur að minnsta kosti fyrri ferð dagsins til Þorlákshafnar. Nú er ölduhæð í Landeyjahöfn 2.9 metrar og vindur 17 m/s.

Bardagarnir í Kabúl stóðu yfir í 18 tíma

Bardögum í Kabúl, höfuðborg Afganistan lauk ekki fyrr en um sjöleytið á mánudagsmorgun að staðartíma. Höfðu þeir þá staðið sleitulaust í eina 18 tíma eftir að Talibanar og skæruliðar þeim hliðhollir efndu til fjölda árása í Kabúl og víðar í landinu.

Fjórir fluttir á slysadeild eftir árekstur

Fjórir voru fluttir á slysadeild Landsspíatlans, þar af tvö börn, eftir að tveir bílar, sem komu úr gagnstæðum áttum, skullu saman á Vesturlandsvegi á móts við Saltvíkurafleggjarann um kvöldmatarleitið í gærkvöldi.

Batamerki berast nú frá byggingarfulltrúa

Byggingariðnaðurinn á höfuðborgarsvæðinu virðist vera byrjaður að rétta úr kútnum ef marka má ársskýrslu byggingarfulltrúans í Reykjavík sem sýnir þrefalda aukningu á samþykktu byggingarmagni í borginni í fyrra miðað við árið 2010.

Vopnahléið að leysast upp í ófrið

Vopnahlé stríðandi fylkinga í Sýrlandi leystist upp í átök í gær einungis fjórum dögum eftir að því var lýst yfir. Stjórnarherinn skaut sprengjum á íbúðahverfi í borginni Homs þar sem stjórnarandstaðan ræður ríkjum.

Breivik vill flytja nýja stefnuyfirlýsingu

Anders Behring Breivik vill lesa upp nýja stefnuyfirlýsingu þegar hann mætir fyrir rétt á morgun. Odd Gron, starfsmaður hjá Lippestad, verjanda Breiviks, segir að líklegast muni dómari banna honum að lesa hana upp.

Mannhaf fagnaði áætlunarflugi til Húsavíkur

Um þrjúhundruð manns mættu á Húsavíkurflugvöll nú síðdegis til að fagna fyrsta áætlunarflugi þangað eftir tólf ára hlé. Núverandi og fyrrverandi ráðherrar flugmála, þeir Ögmundur Jónasson og Kristján L. Möller, voru meðal farþega í þessu flugi sem forystumenn Þingeyinga vonast til að marki tímamót en þeir mættu með blóm, sem þeir færðu Herði Guðmundssyni og hans fólki hjá Flugfélaginu Erni.

Bílslys við Saltvík

Tveir bílar skullu saman á Kjalarnesi, rétt við Saltvík, á áttunda tímanum í kvöld. Alls voru fjórir í bílunum, samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliðinu. Þeir munu hafa sloppið án mikilla meiðsla. Umferð var takmörkuð eftir að slysið varð en hún er nú í eðlilegu horfi.

Einungis 2% til framkvæmda í Reykjavík

Fjárframlög til nýframkvæmda í Reykjavík hafa aðeins verið tæplega tvö prósent af heildarfé sem veitt er til vegaframkvæmda og viðhalds á landinu undanfarin ár. Þingmaður Sjálfstæðisflokkins segir stöðuna ólíðandi og borginni til skammar.

Datt af vélhjóli

Kona var flutt með sjúkrabíl á slysadeild þegar hún missti stjórn á vélhjóli sem hún ók á Sævarhöfða um hálffjögur í dag. Konan datt á hliðina en mun ekki hafa slasast alvarlega.

Hélt sína fyrstu ræðu

Kim Jong-un, nýr leiðtogi Norður Kóeru hélt sína fyrstu ræðu í dag í Pyongyang. Hann sagði að hann myndi heiðra arfleið föður síns og afa og leggja höfuðáherslu á her Norður-Kóreumanna. Hann lagði áherslu á það að Norður-Kóreumenn byggju yfir her sem væri reiðubúinn undir stríð hvenær sem er.

Hefur beðið í tvo mánuði eftir umræðu um Evrópusambandsviðræður

Jón Bjarnason, þingmaður VG, hefur beðið í tæpa tvo mánuði eftir því að fá sérstaka umræðu á Alþingi um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Jón segir í samtali við Vísi að hann hafi fyrst farið fram á umræðurnar þann 21. febrúar síðastliðinn.

Dýrasta bókin á markaðnum

Hátíðarútgáfa bókarinnar Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson sem frumsýnd var á Benediktsmessu 21. mars er dýrasta bókin á íslenskum bókamarkaði um þessar mundir. Hún kostar fullu verði 230 þúsund rónur og fæst aðeins hjá útgefanda, bókaútgáfunni Crymogeu.

Krefjast þess að framkvæmdir hefjist nú þegar

Það stendur til að ganga í hvert hús í Fjarðabyggð í dag og næstu daga til þess að safna undirskriftum íbúa til að skora á Alþingi og ríkisstjórn Íslands um að framkvæmdir hefjist nú þegar við gerð Norðfjarðarganga. Meðlimir félagasamtaka, bæjarfulltrúar, bæjarstjóri, stjórnendur fyrirtækja og stofnana í Fjarðabyggð verða meðal þeirra sem ganga á milli húsa í bæjarhverfunum sex til þess að safna undirskriftum.

Samskiptin við ESB rædd með utanríkisráðherra

Utanríkismálanefnd mun hitta Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fljótlega til að fara yfir pólitísk samskipti við Evrópusambandið. Ástandið er þátttaka framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Icesavemálinu gegn Íslandi og fleiri atriði sem komið hafa upp. Aðspurður segist Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, að ekki hafi reynt á það hvort skoðanamunur sé á milli stjórnarflokkanna um það hvernig bregðast eigi við ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að taka þátt í málaferlunum gegn Íslandi.

Létu lífið í skýstrókum

Að minnsta kosti tveir létu lífið þegar öflugir skýstrókar gengu yfir miðvestur ríki Bandaríkjanna í nótt. Skýstrókarnir ollu miklum skemmdum á mannvirkjum en bærinn Thurman í Iowa-ríki varð verst úti en stór hluti bæjarins er rústir einar eftir óveðrið. Að minnsta kosti 39 látið lífið í Bandaríkjum af völdum skýstróka það sem af er þessu ári.

Sjá næstu 50 fréttir