Innlent

Sæbraut opin á ný

Umferð hefur nú verið hleypt á Sæbraut í báðar áttir. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Umferð hefur nú verið hleypt á Sæbraut í báðar áttir. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Sæbraut hefur nú verið opnuð á ný en henni var lokað til suðurs frá Holtavegi fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var ástæða lokunarinnar umferðarslys við Sæbraut Skeiðarvog.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu lentu bifhjól og bifreið saman. Ökumaður bifhjólsins slasaðist töluvert og hefur verið fluttur á slysadeild.

Umferð hefur nú verið hleypt á Sæbraut í báðar áttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×