Hannar glugga fyrir Elísabetu drottningu 17. apríl 2012 07:00 Á næstu dögum verður verkinu pakkað saman og það flutt til London, þar sem það verður sett upp í maí. Fréttablaðið/stefán
Leifur Breiðfjörð listamaður var valinn úr hópi fjörutíu listamanna til að gera glugga í dómkirkju í London. Glugginn er tileinkaður Elísabetu drottningu og verður vígður á sextíu ára valdaafmælinu. „Þetta er búið að vera feikilega áhugavert verkefni og er mikill heiður,“ segir Leifur Breiðfjörð listamaður sem var valinn úr hópi fjörutíu listamanna til þess að gera glugga í dómkirkjunni Southwark í London. Glugginn er tileinkaður Elísabetu annarri drottningu, og verður vígður á valdaafmæli hennar í byrjun júní. „Mér þótti vænt um að fá þetta verkefni og ég ákvað strax að vinna þetta allt sjálfur, alveg frá byrjun.“ Ákveðið var að efna til samkeppni fyrir tveimur árum og var um fjörutíu glerlistamönnum boðið að taka þátt. Leifur er sá eini sem er ekki frá Bretlandi. Í fyrrasumar var honum tilkynnt að hann hefði unnið keppnina. Að því loknu fór málið fyrir fimm nefndir, bæði innan kirkjunnar og í húsafriðunarnefnd. Þegar allar nefndirnar höfðu samþykkt verkið þurfti að kynna það í 28 daga í kirkjunni. Því var ekki ljóst fyrr en í janúar að af verkinu yrði, en Leifur tók sénsinn og byrjaði að vinna í október, segir Sigríður Jóhannsdóttir kona hans. Leifur segir merkileg og skemmtileg tengsl við dómkirkjuna í Reykjavík í verkinu. Hann notar meðal annars gler sem áður var í gluggum kirkjunnar. „Þegar ég var að velja glerið í þessa mynd vantaði mig ákveðna liti. Ég fór að kíkja á allt glerið sem ég átti og fann þetta.“ Hann segir að þegar kirkjunni var breytt árið 1985 hafi hann haft milligöngu um kaup á nýju gleri í kórglugga. Henda átti glerinu sem tekið var úr, en hann fékk að eiga búta af gula glerinu og hefur geymt þá allar götur síðan. Southwark-kirkjan er meðal elstu gotnesku bygginganna í London. Sá hluti kirkjunnar þar sem glugginn verður er frá því um 1215. Leifur mun á næstu dögum pakka verkinu saman til flutnings og eftir helgi verður það sent með hraðpósti beint í kirkjuna í London, þar sem það verður sett upp í maí. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira