Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölskylda slapp ósködduð úr eldsvoða Fjögurra manna fjölskylda slapp ósködduð út, eftir að eldur kviknaði í íbúðarhúsi á Siglufirði um klukkan fjögur í nótt. 9.2.2012 06:51
ESB undirbýr refsiaðgerðir gegn Sýrlandi Rússar vilja reyna að koma á viðræðum milli stjórnar og uppreisnarmanna í Sýrlandi. Nýjar refsiaðgerðir gegn Sýrlandsstjórn eru í smíðum. 9.2.2012 06:45
Akureyringar ósáttir við tillögu Mikil andstaða virðist vera meðal Akureyringa við deiliskipulag sem nú liggur fyrir um Drottningarbrautarreitinn svokallaða. Akureyrarbæ voru í gær afhentar um 2.000 undirskriftir þar sem skipulaginu er mótmælt. 9.2.2012 06:00
Vilja sjöfalda fiskeldi sitt í Ísafjarðardjúpi Hraðfrystihúsið Gunnvör hyggst koma á fót samtals sjö þúsund tonna fiskeldi á nokkrum stöðum í Ísafjarðardjúpi. Hingað til hefur Gunnvör mest náð að framleiða eitt þúsund tonn af þorski á ári. Bæta á við laxi og regnbogasilungi. 9.2.2012 05:30
Möguleikar skyndibílakerfis kannaðir hérlendis Hugmyndir eru uppi hér á landi um að koma á laggirnar nýju samgöngukerfi sem miðar að því að fjölga valkostum í samgöngum og draga úr þörf almennings á að eiga marga bíla á hverju heimili. 9.2.2012 05:00
Yfir 200 þúsund tonn á land Víkingur AK, skip HB Granda, er á leið til Akraness eftir vel heppnaða veiðiferð á loðnumiðin á Grímseyjarsundi. Þar fengust um 1300 tonn af góðri loðnu í fjórum köstum yfir daginn. 9.2.2012 04:00
Romney tapaði fyrir Santorum í þremur ríkjum Mitt Romney, sem tapaði fyrir Rick Santorum í forkosningum Repúblikanaflokksins í þremur ríkjum Bandaríkjanna á þriðjudag, segist þrátt fyrir það nokkuð viss um að verða forsetaefni flokksins. 9.2.2012 03:00
Sakaður um að nauðga stúlku Sautján ára gömul stúlka hefur kært Helge Solum Larsen, varaformann stjórnmálaflokksins Venstre og bæjarstjórnarmann í Stavangri, fyrir nauðgun. Brotið mun hafa átt sér stað á ársfundi Rogalands-deildar Venstre um síðustu helgi. 9.2.2012 00:30
Elstu tvíburar í heimi Tvíburasysturnar Edith Ritchie og Evelyn Middleton eru elstu tvíburar í heimi samkvæmt heimsmetabok Guinness. Þær eru 102 ára gamlar. 8.2.2012 23:35
Nota nætursjónauka við leitina - þyrlan gæti verið kölluð út Unglingspiltarnir tveir sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði síðdegis í dag eru ófundir en um fimmtíu björgunarsveitarmenn leita þeirra nú í Svartárdal, inn af Húnaveri. Björgunarsveitarmenn eru á fjórhjólum og bílum en ef þeir finnast ekki á næstu klukkutímum gæti þurft að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðstoðar. 8.2.2012 22:37
Um 50 björgunarsveitarmenn leita tveggja strokupilta Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Húnavatnssýslum og Skagafirði leita nú unglingspilta er struku af meðferðarheimili í Skagafirði fyrr í dag. 8.2.2012 21:54
Mögnuð ferð með þyrlu Landhelgisgæslunnar Fjöldi manna á líf sitt að launa nætursjónaukum. Um tíu ár eru liðin frá því Landhelgisgæslan tók sjónaukana til notkunar, og á þeim tíma hafa þeir skipt sköpum í björgun hundraða manna. Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, í Íslandi í dag, kynnti sér málið og fékk að prófa á eigin skinni hvernig það er, að vera hífð upp úr sjó með aðstoð sjónaukans. 8.2.2012 20:45
Stebbi Hilmars vill sönglagakeppni fyrir Norðurlöndin "Ég hef lengi verið á því að það væri fín hugmynd að halda samnorræna sönglagakeppni, hafa Færeyjar líka með, 2-3 lög frá hverju landi, jafnvel fleiri. Eurovision er orðið of mikið monster," segir Stefán Hilmarsson, tónlistarmaður á Facebook-síðu sinni. 8.2.2012 21:37
Vilja að Ísland dragi sig úr Eurovision Á stjórnarfundi Ungra vinstri grænna í kvöld var samþykkt ályktun þess efnis að Ísland dragi sig úr Söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva í ár. Í ályktuninni segir að Ísland eigi að nýta þá fjármuni sem annars færu í keppnina til að efla tónlistarkennslu hér heima fyrir. 8.2.2012 20:23
Denzel er svalari í eigin persónu en í bíómyndunum Baltasar Kormákur segir að Denzel Washington sé svalari í eigin persónu en í bíómyndunum. Að loknum tveggja tíma fundi þeirra í Los Angeles ákvað Denzel að leika aðalhlutverk í nýjustu mynd Baltasars. 8.2.2012 19:57
Sextíu og tvær milljónir til Finnlands og Noregs Einn Finni og einn Norðmaður voru með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld og fá þeir um 62 milljónir í sinn hlut. Einn Íslendingur var með 2. vinning og fær hann rúmlega 3 milljónir króna en spilarinn keypti miðann sinn í Happahúsinu í Kringlunni. 8.2.2012 19:12
Íhuga að kaupa Grímsstaði með láni frá Nubo og leigja honum Sveitarfélagið Norðurþing íhugar nú að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina gegn 25 prósenta hlut ríkisins. Bæjarstjóri Norðurþings er nú staddur í Peking til að hitta Nubo. 8.2.2012 18:52
"Við viljum ekki meiri stóriðju á Íslandi" Helstu félagasamtök um náttúvernd á Íslandi vilja að stjórnvöld fresti eða falli frá frekari uppbyggingu á vatnsaflsvirkjunum í neðri hluta Þjórsár. 8.2.2012 20:30
Lífeyrissjóður bankamanna átti engin hlutabréf í íslensku bönkunum Lífeyrissjóður bankamanna átti ekki krónu í hlutabréfum íslensku bankanna þegar þeir hrundu í október 2008. Sjóðurinn kom langtum betur undan hruni en stærstu lífeyrissjóðir landsins. 8.2.2012 20:04
Fundu amfetamín og eina og hálfa milljón í peningum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 300 grömm af amfetamíni við húsleit í íbúð í Hafnarfirði á föstudag og lagði jafnframt hald á verulega fjármuni, eða um eina og hálfa milljón króna. 8.2.2012 19:16
Tilkynnt um vatnsleka - fundu 80 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í gær. Við húsleit fundust tæplega 80 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, og um 1,4 kg af marijúana. 8.2.2012 19:04
Magni syngur á plötu tileinkaðri Kiss Ég var einmitt að reyna rifja það upp áðan og fór og skoðaði e-mail-ana. Þetta var eiginlega ekki merkilegra en það að minn maður hjá plötufyrirtækinu mínu úti sendi mér: Hæ, viltu vera með á Kiss tribute-i?“ segir tónlistarmaðurinn Magni Ásgeirsson, sem flytur lagið Love It Loud með hljómsveitinni Kiss á tribute plötu sem kemur út í Bandaríkjunum eftir nokkrar vikur. 8.2.2012 17:46
Óvíst að Aserum sé greiði gerður ef Íslendingar sitja heima Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það að hætta við þátttöku í Eurovision í Aserbaijan, segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Nafni hans, Páll Óskar Hjálmtýsson, hefur sagt opinberlega að hann vilji að Ísland taki ekki þátt í keppninni vegna mannréttindabrota í landinu. Nýjasta dæmi um þau er að íbúar í Bakú, höfuðborg landsins, hafa verið reknir af heimilum sínum og þau jöfnuð við jörðu. Þetta er gert til þess að hægt sé að byggja tónleikahöll fyrir keppnina. 8.2.2012 17:00
Þrír skotnir til bana á Grænlandi - tveir alvarlega sárir Þrír eru látnir og tveir alvarlega sárir eftir að maður gekk berserksgang á Grænlandi í dag. Maðurinn skaut fólkið en ástæða árásarinnar er enn óljós að því er fréttastofa AP hefur eftir lögreglunni. Árásarmaðurinn er í haldi en ódæðið var framið í bænum Nutaarmiut sem er 900 kílómetrum norðan við heimskautsbaug. 8.2.2012 16:42
Amnesty minnir á ófremdarástandið í Aserbaídjan Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á skýrslu um ástand mannréttinda í Aserbaídsjan, sem kom út í lok 2011. Landið, sem heldur Eurovision keppnina þetta árið hefur mikið verið í umræðunni í dag sökum þess að Páll Óskar Hjálmtýsson hvetur Íslendinga til þess að sniðganga keppnina í ljósi frétta af mannréttindabrotum gegn íbúm í höfuðborginni Bakú sem hafa verið flæmdir brott af heimilum sínum til þess að hægt sé að byggja Kristalshöllina sem á að hýsa keppnina. 8.2.2012 16:31
Heitavatnslaust í Fossvogi og nágrenni á morgun Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í fyrramálið í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að svæðið sem um ræðir afmarkist af byggð neðan Bústaðavegar frá Reykjanesbraut að Borgarspítala og íbúðabyggð neðan Sléttuvegar að Kringlumýrarbraut. Þá verður einni heitavatnslaust í Ásgarði, raðhúsum við Tunguveg, Stjörnu- og Blesugrófinni í Reykjavík sem og húsum sem standa við Fossvogsbrún í Kópavogi og í hverfinu við Lund í Kópavogi. 8.2.2012 15:51
Ólafur átti ekki að ráðstafa peningnum Reykjavíkurborg hefur verið dæmd til að greiða Frjálslynda flokknum tæpar 6,8 milljónir vegna fjárframlaga fyrir árin 2008-2009 sem áttu að fara inn á reikning flokksins eftir að hann fékk einn mann kjörinn í borgarstjórn árið 2006. 8.2.2012 15:45
Björguðu fólki í flotbúningum með hjálp nætursjónaukans Landhelgisgæslan hélt á dögunum æfingu í Patreksfirði um miðja nótt þar sem fólk í flotbúningum kastaði sér útbyrðis úr bátum út í ískaldan sjóinn. Þyrla gæslunnar flaug síðan yfir fjörðinn, fann fólkið með hjálp nætursjónauka og bjargaði því um borð. 8.2.2012 15:45
Mikilvægt að ná samstöðu um nafnið Samstöðu "Grundvallaratriðið er að það er aðeins ein Samstaða," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, varaformaður stjórnmálahreyfingarinnar Samstaða, flokkur um lýðræði og velferð. Þarna liggur einmitt kjarni málsins, hreyfingin heitir nefnilega líka flokkur um lýðræði og velferð. 8.2.2012 15:04
Eðlilegt að Ríkisútvarpið ræði ástandið í Bakú Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir eðlilegt að Ríkisútvarpið og önnur félög innan EBU, sem heldur Eurovision söngkeppnina, taki umræðu um mannréttindabrot sem kunna að vera framin í löndum sem eiga aðild að keppninni. Þetta segir hún aðspurð út í viðbrögð sín við skrifum Páls Óskars Hjálmtýssonar um Eurovision. 8.2.2012 14:28
Búið að bjarga Bretunum Búið er að bjarga Bretunum sem voru fastir uppi á Vatnajökli. Það var björgunarfélagið á Hornafirði sem fór eftir þeim um klukkan tíu í morgun. Mennirnir voru blautir og hraktir og tjald þeirra brotið þegar þeir sendu neyðarkallið. Mennirnir voru mjög vel búnir til ferðalagsins. 8.2.2012 14:25
Nostalgíustemning í apríl Það má búast við sannkallaðri nostalgíustemningu þegar breska hljómsveitin10cc heldur tónleika í Háskólabíói þann 21. apríl næstkomandi. Hljómsveitin er ábyggilega frægust fyrir lögin I´m Not In Love og The Things We Do For Love en öll þekktustu lögin verða flutt á tónleikunum. 8.2.2012 14:00
Fylgja Norðurlöndunum við innleiðingu á nýjum lyfjum Íslendingar stóðu á tímabili fremstir þjóða við innleiðingu á nýjum sjúkrahússlyfjum. Hins vegar hefur krafa á aðhald í rekstri heilbrigðiskerfisins aukist að undanförnu og nú er svo komið að Íslendingar reyna að fylgja hinum Norðurlöndunum við innleiðingu á lyfjunum. Þetta segir Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, í samtali við Vísi. 8.2.2012 14:00
Formenn Samstöðu funda á næstu dögum um hið eftirsótta nafn "Við Lilja [Mósesdóttir, innskt. blm.] ræddum saman í morgun og ætlum að setjast niður á næstu dögum og ræða málið frekar,“ segir Haukur Már Sigurðsson, formaður Samstöðu á Patreksfirði, en nýstofnaður flokkur Lilju reyndist bera sama nafn. Samstaða á Patreksfirði hefur hinsvegar verið til í fjórtán ár og þverpólitískt félag. Núna á það þrjá fulltrúa í bæjarstjórn Patreksfjarðar. Áður var það með meirihluta. 8.2.2012 12:58
Verið að klára samninga vegna myndar Baltasars og Denzels Bandaríski stórleikarinn Denzel Washington, sem er tvöfaldur óskarsverðlaunahafi, hefur samþykkt að leika í nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, 2 Guns. 8.2.2012 12:13
Breskir göngumenn í vandræðum upp á Vatnajökli Björgunarfélag Hornafjarðar var kallað út um klukkan hálf tíu í morgun til að sækja tvo breska ferðamenn sem eru í vandræðum í Norðlingalægð á miðjum Vatnajökli. Eru þeir blautir og hraktir og tjald þeirra brotið. 8.2.2012 11:48
Barnabílstóll innkallaður - Herdís uggandi vegna málsins Nýlega innkallaði Rúmfatalagerinn inn barnabílstól. Neytandastofa og Rúmfatalagerinn hafa staðið að innkölluninni eins og lög gera ráð fyrir. 8.2.2012 11:20
Pólskumælandi ráðgjafi kominn til starfa hjá Reykjavíkurborg Joanna Marcinkowska hefur verið ráðin sem pólskumælandi ráðgjafi innflytjenda hjá Reykjavíkurborg. Joanna starfar á þjónustuskrifstofu Reykjavíkurborgar á Höfðatorgi og mun aðstoða og veita upplýsingar um þjónustu Reykjavíkurborgar á pólsku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 8.2.2012 10:43
Einna minnst fátækt á Íslandi Rétt tæplega 10% Íslendinga voru með tekjur við fátækramörk árið 2010 og um 1,8% Íslendinga bjuggu við aðstæður sem kalla mætti fátæktaraðstæður. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í morgun. 8.2.2012 10:40
Fréttaskýring: Skiptar skoðanir um sameiningar í grunnskólum Sameiningar grunnskóla í Reykjavík hófust um áramót þegar þrír nýir skólar urðu til úr sex. Fleiri breytingar eru á döfinni og foreldrar í sumum hverfum hafa verið mjög ósáttir við fyrirhugaðar breytingar. 8.2.2012 10:00
Hávaði úr Tjarnarbíói hrakti fólk að heiman „Þetta er alveg hrikalegt þegar maður er með lítið barn og getur ekki verið með það heima,“ segir Sergiy Okhremchuk, íbúðareigandi í Suðurgötu 15, sem fast er við Tjarnarbíó þaðan sem berst svo mikill hávaði að heilbrigðisreglugerðir bresta. 8.2.2012 10:00
Gamlinginn trónir enn á toppnum á sölulistum bókabúða Sænski rithöfundurinn Jonas Jonasson, sem skrifaði metsölubókina Gamlinginn sem skreið út um gluggann má vel við una á íslenskum sölulistum en bók hans er enn þá sú mest selda í Eymundsson vikuna 25. janúar til 31. janúar. 8.2.2012 09:45
Sýking algengari hjá körlum en konum Sýking í munni sem orsakað getur krabbamein í hálsi, á kynfærum, í ristli og í höfði er töluvert algengari í körlum en konum samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem gerð var á vegum Læknafélagsins í Bandaríkjunum. 8.2.2012 09:30
Augnlokin frusu saman í kuldanum „Það er búið að vera alveg ógeðslega kalt eða gusåkalt eins og Svíarnir segja alltaf,“ segir Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í fótbolta sem nýverið gerðist atvinnumaður með sænska liðinu Piteå í Svíþjóð. Gríðarlegur kuldi hefur verið í Evrópu undanfarna daga og þar á meðal í Piteå sem er í norðurhluta Svíþjóðar. 8.2.2012 09:00
Sautján settir í nálgunarbann Tíu voru úrskurðaðir í nálgunarbann í fyrra og sjö árið á undan. Árin á undan var úrræðið nánast ekkert notað, en er að sanna gildi sitt að mati aðstoðarlögreglustjóra. Sambúðarslit eru oft bakgrunnur málanna. 8.2.2012 09:00