Hávaði úr Tjarnarbíói hrakti fólk að heiman 8. febrúar 2012 10:00 Í Tjarnarbíói Hljóðeinangrunin er svo léleg að íbúar í Suðurgötu 15 haldast varla við þegar rokktónleikar eru í Tjarnarbíói. Þungarokkshljómsveitin Skálmöld kom fram í húsinu í fyrra. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta er alveg hrikalegt þegar maður er með lítið barn og getur ekki verið með það heima,“ segir Sergiy Okhremchuk, íbúðareigandi í Suðurgötu 15, sem fast er við Tjarnarbíó þaðan sem berst svo mikill hávaði að heilbrigðisreglugerðir bresta. Sergiy segir að eftir að breytingar voru gerðar á Tjarnarbíói og það tekið aftur í notkun haustið 2010 hafi hávaðinn þaðan keyrt um þverbak. Virðist sem sú einangrun sem fyrir var hafi horfið í framkvæmdunum. Fjórar íbúðir eru í Suðurgötu 15, tvær eru í einkaeigu og tvær á Hjálpræðisherinn. „Þetta er farið að taka á taugarnar,“ segir Sergiy sem á þriggja ára son með konu sinni. „Tvisvar höfum við flúið með barnið á gistiheimili til að fá svefnfrið. Það var ekki hægt að vera þarna, sérstaklega þegar voru Airwaves-tónleikar. Það var eins og jarðskjálfti. Ljósin í loftinu og ísskápurinn titraði.“ Fyrir hönd eigendanna í Suðurgötu 15 hefur Sergiy leitað til ýmissa í borgarkerfinu til að fá lausn á málinu. Í minnisblaði frá fyrirtækinu Verkís um hugsanlegar endurbætur á hljóðeinangrun Tjarnarbíós kemur fram að ýmsar aðgerðir sem hafi verið reyndar hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Aðalvandinn er lágtíðnihljóð frá bassahátalara. Meðal annars hafi hátalarinn verið látinn hvíla á púða og hengdur í „fjaðrandi upphengi“ en án árangurs. Verkís leggur því til að veggirnir milli Suðurgötu 15 og Tjarnarbíós verði skornir í sundur, nýir veggir steyptir og hljóðeinangrun sett á milli. Þetta kosti um 20 milljónir króna. Aðrir valkostir séu að banna rafmagnaða tónlist í Tjarnarbíói eða leggja af íbúðirnar í Suðurgötu og nota húsið undir skrifstofur. Rekstrargrundvöllurinn sé horfinn með skorðum sem settar hafi verið við starfseminni í bíóinu. Borgarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi. Sergiy hefur ekki trú á þeim aðgerðum sem lagðar eru til. Miðað við núverandi stöðu sé varla mögulegt að selja íbúðirnar nema með talsverðum afföllum enda séu þær nánast óíbúðarhæfar. Það megi þó skoða sölu ef borgin vilji leysa íbúðirnar til sín á sanngjörnu verði. Það er hópur sjálfstæðra leikhópa sem rekur Tjarnarbíó með samningi við Reykjavíkurborg. Friðrík Friðriksson, sem situr í stjórn Tjarnarbíós, segir endurbæturnar á húsinu og aðstöðuna hafa verið eins og draum sem hafi ræst. Nú sé draumurinn að snúast upp í andhverfu sína því húsið nýtist ekki eins og til stóð. „Okkur langar ekki til að skila inn lyklinum heldur langar okkur til að leysa vandann. Þetta er hins vegar mjög, mjög erfitt,“ segir Friðrik. gar@frettabladid.is
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira