Lífeyrissjóður bankamanna átti engin hlutabréf í íslensku bönkunum Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 8. febrúar 2012 20:04
Lífeyrissjóður bankamanna átti ekki krónu í hlutabréfum íslensku bankanna þegar þeir hrundu í október 2008. Sjóðurinn kom langtum betur undan hruni en stærstu lífeyrissjóðir landsins. „Þegar að þessi markaður hrynur, þá hrynja lífeyrissjóðirnir að sjálfsögðu líka eða verða fyrir skakkaföllum, þetta er veruleikinn," sagði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, í viðtali um helgina - en það urðu ekki allir sjóðirnir fyrir sömu skakkaföllum samkvæmt úttetktarefnd lífeyrissjóðanna. Ef við skoðum raunávöxtun - sem þýðir ávöxtun peninganna umfram verðbólgu - þriggja sjóða frá árinu 2005 sést að stærsti lífeyrissjóður fólks á almennum vinnuarkaði - lífeyrissjóður verslunarmanna -hagnaðist vel árið 2005 um 16% (16,1%), ávöxtunin hrapar árið 2007 en síðan er fjórðungstap (mínus 24,2%) hrunárið. Svipað var uppi á teningnum hjá stærsta lífeyrissjóði landsins - LSR - sem var með fína ávöxtun 2005 (14,3%), rúm fjórtán prósent, lægri árið á eftir (10,9%) - en tapar svo gríðarlega hrunárið mikla, eða röskum 25 prósentum (mínus 25,3%). Staðan er hins vegar allt önnur hjá Lífeyrissjóði bankamanna, ávöxtun er ágæt - og býsna góð í annarri deild sjóðsins árið 2005, tæp ellefu prósent, (10,8%) sömuleiðis árið á eftir - en tapið á hrunárinu er ekkert í líkingu við tap stóru sjóðanna - eða mínus 9,6%. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bankamanna baðst undan viðtali í dag en svaraði spurningum fréttastofu í tölvupósti. Hann útskýrir hversu þokkalega sjóðurinn kom undan hruni - með því að Lífeyrissjóður bankamanna hafi að mestu fjárfest í ríkistryggðum skuldabréfum og verðtryggðum innlánsreikningum. Ekki mikil áhættusækni þar. Sjóðurinn hafi strax árið 2003 ákveðið að selja hlutabréf sem hann átti - og lokið því að mestu löngu fyrir hrun, eða árið 2005. Bankamenn höfðu því ekki meiri trú á bönkunum en svo að árið 2008 átti lífeyrissjóður þeirra ekki krónu í hlutabréfum í íslensku bönkunum.
Mest lesið Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Erlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Lögreglan leitar enn að Ernu „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Óvissa með kaffistofu Samhjálpar og listaverk Gerðar í hættu Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Sjá meira