Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fasteignagjöld hesthúsa hærri en á híbýlum manna "Kostnaður við hestahald hefur stóraukist á síðustu árum og eitt sem hestamenn eru hvað ósáttastir við er að sveitarfélögin hafi sett hesthúsin í flokk með iðnaðarhúsnæðum og því þarf að borga svívirðilega há fasteignagjöld af hesthúsunum,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landsambands hestamanna, sem ræddi við félagana í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 24.1.2012 21:45
Angry Birds fyrirbyggir Alzheimer Niðurstöður nýlegrar rannsóknar gefa til kynna að örvandi athafnir á borð við lestur, skrif og leiki geti minnkað líkur á Alzheimer. 24.1.2012 21:30
Einni klukkustund af efni hlaðið inn á YouTube á hverri sekúndu Myndbandavefsíðan YouTube hefur aldrei vinsælli en nú. Rúmlega 60 klukkustundum af efni er hlaðið inn á vefsíðuna á hverri mínútu. Um fjórir milljarðar heimsækja síðuna á hverjum degi. 24.1.2012 22:00
Var rekinn út af geðdeild - talsmaður sjúklinga skoðar málið Sjúklingur sem leitaði til geðsviðs Landspítalans segist þar hafa mætt niðurlægjandi hegðun læknis, sem á endanum hafi hent honum út úr viðtali. Talsmaður sjúklinga geðsviðs fær að jafnaði eitt erindi á viku. 24.1.2012 19:30
Bankastjóri Landsbankans gæti hækkað um eina og hálfa milljón í launum Mánaðarlaun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, gætu hækkað um allt að eina og hálfa milljón króna verði frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um kjararáð samþykkt. 24.1.2012 19:00
Eina leiðin að mynda meirihluta með sjálfstæðismönnum Eina leiðin til að mynda meirihluta í Kópavogi í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin er að Samfylkingin og Vinstri grænir nái samkomulagi við sjálfstæðismenn. Þetta segir oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogsbæ. 24.1.2012 18:30
Í gæsluvarðhald fyrir íkveikju - ætlaði að brenna sýkla í burtu Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhald yfir karlmanni sem hefur játað að hafa kveikt í íbúð sinni nærri Kleppsspítala 14. janúar síðastliðinn. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að maðurinn hefði játað að hafa kveikt í íbúð sinni. Hann virðist hafa notað blöð og pappír og borið eld að pappakössum með bókum í. 24.1.2012 17:30
Felli þingið rammasamning lendir styrkjakostnaður á skattgreiðendum Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að ef þingið samþykki ekki IPA-fjárstyrki frá Evrópusambandinu til verkefna innanlands greiðist kostnaður vegna þeirra úr ríkissjóði. 24.1.2012 18:45
Snjóhvítt Reykjavíkurskáld og sliguð tré - myndir Vetrarkonungur hefur farið mikinn í dag eins og íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa orðið varir við. Lítill vindur er á höfuðborgarsvæðinu og verður áfram í dag og í nótt. Þannig sligar snjórinn trjágreinar auk þess sem styttur mega sætta sig við hvíta hatta og snjóhvít föt. 24.1.2012 17:10
Dirty Night á Akureyri aflýst Samkomulag hefur náðst um að aflýsa Dirty Night-kvöldi sem halda átti á Sjallanum á Akureyri laugardagskvöldið 4. febrúar næstkomandi. 24.1.2012 16:31
Neyðarástandi aflétt á afmæli byltingar Herstjórnin í Egyptalandi hefur ákveðið að aflétta neyðarástandi á landinu á morgun. Ákvörðunin er táknræn en morgundagurinn markar ársafmæli byltingarinnar gegn fyrrverandi forseta landsins, Hosni Mubarak. 24.1.2012 15:52
Ný framboð hugnast kjósendum vel Markaðsrannsóknafyrirtækið MMR hefur kannað afstöðu fólks til þess að kjósa nokkur ný stjórnmálaöfl sem annaðhvort hafa lýst yfir framboði eða rætt hefur verið um að mæti til leiks fyrir næstu kosningar. Svo virðist sem Íslendingum hugnist ágætlega að kjósa eitthvað nýtt í næstu kosningum en 52 prósent þeirra sem taka afstöðu segja eitthvert framboðanna sem nefnt var koma til greina sem valkostur við næstu kosningar. 24.1.2012 15:36
Auðlindarentan verði sýnileg Nefnd um stefnumörkun ríkisins í auðlindamálum sem forsætisráðherra skipaði í júlí 2011 hefur skilað af sér minnisblaði um stöðu verkefnisins. Þar segir meðal annars að mikilvægt sé að svokölluð auðlindarenta og ráðstöfun hennar í þágu samfélagsins verði sýnileg. Í því sambandi sé mikilvægt að stofna auðlindasjóð. 24.1.2012 15:14
Ferðamaðurinn látinn Grískur ferðamaður sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í maí árið 2010 er látinn. Ríkissaksóknari hefur fengið þær upplýsingar frá Europol að hann hafi látist í desember síðastliðnum. Ekki er þó vitað hvort andlát hans tengist árásinni. Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir að ráðast á manninn en við aðalmeðferð málsins í morgun neituðu þeir sök. Í ákæru segir að mennirnir hafi veist að manninum, sem var grískur ferðamaður hér á landi, með ofbeldi, meðal annars með ítrekuðum höggum og spörkum víðsvegar um líkama hans, höfuð og andlit. Maðurinn hlaut 2 cm langt sár aftan á höfði, nefbrot, mar og yfirborðsáverka á andlit og yfirborðsáverka á kvið, bak, mjaðmagrind og á hendi, segir í ákærunni. Árásin átti sér stað aðfaranótt föstudagsins 7. maí árið 2010 í Þingholtsstræti og nokkru síðar í Bankastræti, til móts við veitingastaðinn Sólon. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu neituðu mennirnir þrír, sök við aðalmeðferðina í morgun og sögðust ekki muna eftir árásinni. 24.1.2012 14:57
Markmið endurskoðunar stjórnarskrár "óljós og umdeild" Fræðimenn í lögfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri gagnrýna tillögur stjórnlagaráðs í umsögn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, sem hefur tillögurnar til umfjöllunar. Þeir segja að markmið endurskoðunar stjórnarskrárinnar nú séu óljós og umdeild. 24.1.2012 13:45
Stuðningsmenn Gaddafís ná Bani Walid á sitt vald Stuðningsmenn hins fallna einræðisherra Múamars Gaddafís í Líbíu eru ekki af baki dottnir í baráttu sinni og í morgun náðu þeir borginni Bani Walid á sitt vald og flögguðu grænum fána Líbíu sem notaður var í valdatíð Gaddafís. 24.1.2012 13:44
Sextán látnir í Costa Concordia Tala látinna í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia er nú komin í sextán eftir að björgunarmenn fundu annað lík í skipinu í dag. Enn er 16 saknað. 24.1.2012 13:44
Hálka og erfið færð víðast hvar Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum og Mosfellsheiði er þungfær. Á Suðurlandi er víða þæfingur eða jafnvel þungfært í uppsveitum en annars staðar er snjóþekja eða hálka. 24.1.2012 13:38
Gunnar og Róbert eru nördar ársins Úrslitin í vali á nörd ársins voru kunngjörð á síðbúinni nýársgleði upplýsingatæknifyrirtækisins Advania sem fram fór um liðna helgi. Í tilkynningu frá Advania segir að í aðdraganda gleðinnar hafi verið efnt til samkeppni meðal viðskiptavina og samstarfsaðila fyrirtækisins og NÖRD ÁRSINS valinn. "Alls bárust um 630 tilnefningar frá 10 þúsund manns og þar af fengu 20 manns fleiri en fimm atkvæði. Dómnefnd fór síðan yfir tilnefningar og valdi NÖRD ÁRSINS með hliðsjón af þeim.“ 24.1.2012 13:26
Daginn lengt um eina og hálfa klukkustund Skammdegið víkur nú hratt og hefur daginn lengt um meira en eina og hálfa klukkustund frá því dagur var stystur þann 22. desember. Þá telst 24. janúar vera sá dagur þar sem mestar líkur eru á meira en 15 stiga frosti á Íslandi. En hver skyldi vera kaldasti dagur ársins að meðaltali? 24.1.2012 12:28
Sílikonbrjóstin farin að leka: "Maður er náttúrulega hræddur" Kona með PIP-sílíkonfyllingar fékk í gær staðfest að sílíkonið væri farið að leka um líkamann. Frá því fregnir bárust af mögulegri skaðsemi fyllinganna hefur hún hvergi fengið að panta tíma í ómskoðun, en með hörku fékk hún loks að fara í skoðun. 24.1.2012 12:16
Enginn vildi hitta þingmenn Norðurlandaráðs Engin beiðni barst frá íslenskum samtökum eða almenningi um að eiga fund með þingmönnum Norðurlandaráðs fyrir fund ráðsins sem hefst í Osló í Noregi í dag. 24.1.2012 12:15
Öflugur sólstormur á leið til jarðar Óvenju kraftmikill sólstormur skellur á jörðinni í dag og næstu daga en gríðaröflugt sólgos átti sér stað í gær á norðurhveli sólarinnar. Um er að ræða stærsta sólstorm síðustu sex ára. Að sögn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA mun stormurinn ekki hafa mikil áhrif á jörðunni en truflanir gætu þó orðið á gerfitunglum á braut hennar. 24.1.2012 11:55
Helmingur fórnarlamba umferðarslysa 17 ára og yngri Tólf manns létust í tólf umferðarslysum á árinu 2011 en helmingur þeirra voru 17 ára og yngri, en það telst óvenju hátt hlutfall miðað við undanfarin ár. 24.1.2012 11:33
Snjókoma í allan dag - og í kvöld Það var mörgum sem brá þegar þeir komu út í morgun enda var allt nánast á kafi í snjó og á sumum stöðum blasti við sjón sem ekki er óalgengt að sjá á póstkorti. Snjórinn sem nú er úti féll á aðeins tveimur klukkutímum í morgun og gefur það auga leið að það hafi snjóað nokkuð duglega. 24.1.2012 10:51
Harmleikur á Hótel Frón: Móðirin er sakhæf Agné Krataviciuté, litháísk kona, sem ákærð hefur verið fyrir að skilja nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í sumar, er sakhæf. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar mál hennar var tekið fyrir. 24.1.2012 10:23
Vöktu mikla athygli í Abu Dhabi Umhverfisvæn steinsteypa sem Ólafur H. Wallevik prófessor hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og erlendir samstarfsaðilar hafa þróað hefur vakið mikla athygli á Heimsþingi hreinnar orku sem fram fór í Abu Dhabi í síðustu viku. Kolefnisspor nýju steypunnar er aðeins 0,05 kg/kg eða rétt um fjórðungur þess sem steypa af sama styrkleikaflokki hefur. 24.1.2012 09:54
Rafmagnslaust um tíma á Vesturlandi Rafmagn fór af Borgarfirði og Snæfellsnesi þegar spennir leysti út í aðveitustöð við Vatnshamra um klukkan sjö í morgun. Rafmagn komst fljótlega aftur allt svæðið. Tæpum klukkutíma síðar leysti Reykholtsdalslína út en fljótlega tókst að koma rafmagni að Deildartungu og rétt fyrir klukkan níu komst rafmagn aftur á allt svæðið. Eiga nú allir notendur á að vera komnir með rafmagn að því er fram kemur í tilkynningu frá RARIK. 24.1.2012 09:37
Tvöfalt fleiri karlar en konur flytja frá landinu Í fyrra fluttu 986 fleiri karlar úr landi en til landsins og 418 fleiri konur fluttu frá landinu en til þess. 24.1.2012 09:26
Brottfluttir umfram aðflutta voru rúmlega 1.400 í fyrra Árið 2011 fluttust 1.404 fleiri frá landinu en til þess. Það dró úr brottflutningi á árinu miðað við árið áður, þegar 2.134 fluttust úr landi umfram aðflutta. 24.1.2012 09:20
Danir eignast nýja prinsessu Danir eignuðust nýja prinsessu í morgun en þá eignaðist Marie prinsessa, eiginkona Jóakims prins, dóttur sem vóg 12 merkur. 24.1.2012 09:12
Flughált og slæm færð víða Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víðast hálka, snjóþekja eða jafnvel þæfingur. Flughált er austan Hvolsvallar. 24.1.2012 08:06
Flugfélag Íslands frestar fyrstu ferðum í dag Flugfélag Íslands hefur frestað fyrstu ferðum sínum innnlands fram á níunda tímann vegna ófærðar og skólaakstur hefur verið felldur niður á Hvammstanga, þar sem ekkert ferðaveður er þar um slóðir. 24.1.2012 07:45
Töluvert tjón í eldsvoða á Skólavörðustíg Eldur kviknaði í eldhúsi veitingahússins Sjávargrillsins á horni Skólavörðustígs og Óðinsgötu um klukkan hálf tvö í nótt. 24.1.2012 07:40
Fundu einn af forfeðrum spendýra á jörðinni Vísindamenn hafa fundið steingerðar leifar rándýrs sem var uppi um 30 milljónum ára fyrir stórveldistíma risaeðlanna eða fyrir um 260 milljónum ára. 24.1.2012 07:38
Gingrich með afgerandi forystu í Flórída Newt Gingrich hefur tekið afgerandi forystu fyrir prófkjörið í Flórída samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. 24.1.2012 07:25
Stuðningsmenn Gaddafi ná bænum Beni Walid Stuðningsmenn Muammar Gaddafi fyrrum leiðtoga Líbýu hafa náð bænum Bani Walid á sitt vald að nýju eftir bardaga í gærdag sem kostaði fimm manns lifið. 24.1.2012 07:23
Tilnefningar til Óskarsverðlauna kynntar í dag Tilnefningar til næstu Óskarsverðlauna verða tilkynntar í dag. Fastlega er búist við að George Clooney og Meryl Streep muni leiða baráttuna um hver verði kosinn sem besti karl- og kvennleikarinn í aðalhlutverki. 24.1.2012 07:21
Samskipti Frakkland og Tyrklands í frostmarkinu Samskipti Frakkland og Tyrklands eru í frostmarkinu eftir að öldungadeild franska þingsins samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem felur í sér að refsivert sé að afneita fjöldamorðum Tyrkja á Armenum snemma á síðustu öld sem þjóðarmorði. 24.1.2012 07:19
Sjómælingum við Grænland verulega ábótavant Sjómælingum við Grænland er verulega ábótavant. Raunar eru aðeins til mælingar yfir 20% af farvatninu úti fyrir ströndum landsins. 24.1.2012 07:06
Vindhviðurnar náðu fellibylsstyrk Vindur fór upp í 47 metra á sekúndu í vindhviðu að Hvammi, austan við Markarfljót í nótt, en það er aftakaveður eða fellibylsstyrkur. 24.1.2012 07:03
550 sílíkonaðgerðir á ári Árlega láta að minnsta kosti 550 konur hér á landi stækka á sér brjóstin eða endurnýja gamlar sílíkonfyllingar. Er þessi fjöldi miðaður við síðustu þrjú ár. Hlutfall endurnýjana getur verið allt að fjórðungur af heildartölunni, en oftast er mælst til þess að púðar séu endurnýjaðir á fimm til tíu ára fresti. Brjóstastækkun kostar á bilinu 400 til rúmlega 520 þúsund krónur. 24.1.2012 07:00
Helmingur erlendra fanga búsettur hér Hlutfall erlendra fanga sem búsettir eru hér á landi hefur aukist mikið síðan árið 2000. Í dag býr um helmingur fanga hér, en árið 2000 sátu sjö erlendir einstaklingar í fangelsi á Íslandi og af þeim var einungis einn búsettur hér. 24.1.2012 06:30
Stundum er sígandi lukka best Íslendingar borða aðeins heilsusamlegri mat en síðast þegar mataræði þeirra var kannað árið 2002. Ný könnun sýnir að sykrað gos hefur látið undan síga en sykurlaust gos sækir á. Skortur á D-vítamíni er eitt alvarlegasta vandamálið sem taka þarf á. Ný skýrsla Landlæknis, Matvælastofnunar og Rannsóknastofu í næringarfræði sýnir stöðuna 2010-2011. 24.1.2012 06:00
Meiri ánægja með skýrslur í Barnahúsi Bæði börn og foreldrar eru ánægðari með skýrslutökur sem fara fram í Barnahúsi en í húsnæði dómstóla. 24.1.2012 05:30