Innlent

Öflugur sólstormur á leið til jarðar

Gríðarlega öflugt sólgos átti sér stað á sólinni í gær.
Gríðarlega öflugt sólgos átti sér stað á sólinni í gær. Mynd/NASA
Óvenju kraftmikill sólstormur skellur á jörðinni í dag og næstu daga en gríðaröflugt sólgos átti sér stað í gær á norðurhveli sólarinnar. Um er að ræða stærsta sólstorm síðustu sex ára. Að sögn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA mun stormurinn ekki hafa mikil áhrif á jörðunni en truflanir gætu þó orðið á gerfitunglum á braut hennar.

Þungamiðja stormsins mun ekki skella á jörðinni heldur fara framhjá henni. Árið 1989 olli sólstormur viðamiklu rafmagnsleysi í Qebec í Kanada. Ein áhrif stormsins gætu þó orðið þau að Norðurljósin sjáist mun sunnar á jörðinni en vant er í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×