Var rekinn út af geðdeild - talsmaður sjúklinga skoðar málið Erla Hlynsdóttir skrifar 24. janúar 2012 19:30
Sjúklingur sem leitaði til geðsviðs Landspítalans segist þar hafa mætt niðurlægjandi hegðun læknis, sem á endanum hafi hent honum út úr viðtali. Talsmaður sjúklinga geðsviðs fær að jafnaði eitt erindi á viku. Kunningi mannsins sendi bréf sem hann skrifaði um reynslu sína, á þjóðmálavefinn Innihald þar sem það var birt í fyrradag og hefur vakið mikla athygli. Þar segist maðurinn til fjölda ára notið þjónustu geðsviðs. Í þetta skiptið var læknirinn hans í fríi og ákveðið að leggja hann ekki inn á hans föstu deild. Maðurinn segir það hafa valdið sér kvíða að fara á deild þar sem enginn þekkti hans mál. Siðar segist hann hafa lent í útistöðum við lækninn og kallað hann fífl. Þá hafi læknirinn rokið á fætur og öskrað á hann að koma sér út. Umræddur sjúklingur treysti sér ekki til að koma í sjónvarpsviðtal. Hann hefur hins vegar haft samband við talsmann sjúklinga á geðsviði, sem hefur komið málinu í ferli innan geðsviðs þar sem það verður skoðað nánar. Samkvæmt vinnureglu tjá starfsmenn spítalans sig ekki um málefni einstakra sjúklinga. Geðsvið er eina svið Landspítalans þar sem er starfandi talsmaður sjúklinga. Að jafnaði leitar einn sjúklingur til hans á viku, og eru erindin af ýmsum toga. Flest erindin varða upplifun sjúklings á andrúmslofti á deild sinni, að sjúklingi finnst hann ekki upplýstur um réttindi sín, eða að honum finnist hann ekki fá að hafa næg áhrif á eigin meðferð.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira