Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bestu opinberu vefirnir valdir Tryggingastofnun er með besta opinbera vefinn og Akureyrarbær með besta sveitarfélagsvefinn. Þetta er mat dómnefndar sem var fengin til að meta 267 opinbera vefi. 24.1.2012 03:00
Vill selja hlut í Faxaflóahöfnum Byggðaráð Borgarbyggðar ákvað á aukafundi á sunnudagskvöld að reyna að selja hlut sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum. Tilgangurinn er að fjármagna hluta Borgarbyggðar í átta milljarða króna lánveitingu eigenda til Orkuveitu Reykjavíkur. 24.1.2012 02:45
Málum fjölgaði um 40 prósent milli ára Á árinu 2011 bárust umboðsmanni Alþingis alls 519 kvartanir. Á sama tíma tók hann til athugunar níu mál að eigin frumkvæði. Skráð mál á árinu voru því alls 528 talsins, en það er 40 prósenta fjölgun frá árinu áður. 24.1.2012 02:45
Niinistö mætir Haavisto Sauli Niinistö, fyrrum fjármálaráðherra úr flokki íhaldsmanna, og Pekka Haavisto, þingmaður úr flokki græningja, munu mætast í annarri umferð finnsku forsetakosninganna. 24.1.2012 02:00
Hækkanir verði dregnar til baka Hækkanir á þjónustu Reykjavíkurborgar við aldraða koma mjög illa við eldri borgara. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir hækkununum í ályktun og skorar á borgina að draga þær til baka. 24.1.2012 02:00
Fimmtán hafa fundist látnir Talið er að laumufarþegar hafi verið um borð í ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, sem strandaði við strendur Toscana-héraðs á Ítalíu 13. janúar. Því má gera ráð fyrir að tala týndra sé hærri en greint var frá í fyrstu. 24.1.2012 01:00
Hafna hugmyndum Arababandalagsins Stjórnvöld í Sýrlandi höfnuðu í gær hugmyndum Arababandalagsins um að koma á friði í landinu. Þær fólu meðal annars í sér að Bashar a-Assad forseti færi frá völdum, þjóðstjórn yrði mynduð innan tveggja mánaða og lýðræðislegar kosningar færu fram undir alþjóðlegu eftirliti. 24.1.2012 00:30
Evrópusambandið í hart gegn Írönum Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í gær að öll olíuviðskipti við Íran verði bönnuð. Jafnframt verða eignir íranska seðlabankans í aðildarríkjum ESB frystar. 24.1.2012 00:00
Lítil stemning innan þingflokks VG Stemningin var lítil innan þingflokks vinstri grænna sem fundaði í Borgarnesi í dag eftir átök helgarinnar. Steingrímur J. Sigfússon segir það þó hljóta að vega þungt meðal þingmanna flokksins að glutra ekki árangri ríkisstjórnarsamstarfsins niður eftir allar fórnirnar sem hafi verið færðar. 23.1.2012 19:30
Segir gagnrýni byggða á misskilningi Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að gagnrýni flokkssystkina á ákvarðanir hennar í Landsdómsmálinu byggi á misskilningi. Að minnsta kosti fimm stjórnarþingmenn vilja að hún víki sæti sem forseti Alþingis. 23.1.2012 18:26
Outlaws-maður áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum af meintum skotárásarmönnum sem var handtekinn í nóvember síðastliðnum. Manninum er gefið að sök að hafa skotið á bifreið manns við Sævarhöfða þann 18. nóvember síðastliðinn en talið er að ástæðan sé óuppgerð fíkniefnaskuld. Maðurinn er talinn tengjast vélhjólagenginu Outlaws. 23.1.2012 17:21
Egill aftur kærður fyrir nauðgun Önnur kona hefur kært Egil "Gillzenegger" Einarsson fyrir nauðgun, samkvæmt því sem kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar segir að konan hafi farið til lögreglu í dag og lagt kæruna fram. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögeglunnar, vildi ekki staðfesta frétt RÚV í samtali við Vísi nú fyrir stundu. 23.1.2012 16:32
Dæmigerðir ferðamenn: Barnlausir Ameríkanar sem eyða 370 þúsundum Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vöru og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur, ef marka má niðurstöður könnunar sem Ferðamálastofa lét framkvæma síðasta sumr á meðal erlendra ferðamanna. Sagt er frá könnuninni á vef iðnaðarráðuneytisins í dag um leið og þess er getið að rúmlega 565 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt Ísland á síðasta ári. Þar er um að ræða 15,8 prósent fjölgun frá fyrra ári. "Mikilvægi ferðaþjónustunnar fer stöðugt vaxandi fyrir samfélagið og hún er komin á bekk með sjávarútveginum og stóriðjunni þegar kemur að sköpun gjaldeyristekna,“ segir ennfremur. 23.1.2012 16:06
Framfleytti sér og fjölskyldu sinni með vændi í fimm ár Í Íslandi í dag í kvöld kemur fram kona sem leiddist út í vændi vegna fátæktar og framfleytti sér og börnum sínum samhliða láglaunaðri vaktavinnu í fimm ár. Hún hélt því leyndu fyrir fjölskyldu sinni og var með 10-15 kúnna. 23.1.2012 16:00
Sykurminna morgunkorn Á næstunni munu morgunkornin Cocoa Puffs og Honey Cheerios fara í sölu með nýrri uppskrift í verslunum um land allt. "Þessar tegundir sem auðkenndar eru með bláum topp og íslenskum umbúðum munu leysa eldri tegundir af hólmi á næstu vikum. Þær innihalda mun lægra magn sykurs en forverar þeirra ásamt því að innihalda minni fitu og salt. Þessar breytingar á uppskrift eru gerðar til að koma til móts við auknar kröfur neytenda um minni sykur og salt í matvöru,“ segir í tilkynningu frá Nathan & Olsen. 23.1.2012 18:00
Þrettán undir áhrifum Þrettán ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta af þeim voru ölvaðir undir stýri en þetta voru sjö karlar á aldrinum 23 til 70 ára og ein kona, 17 ára. Þá voru fimm sem óku undir áhrifum fíkniefna en um er að ræða fjóra karla á aldrinum 23 til 36 ára og eina konu, 24 ára. Fjórir af ökumönnunum þrettán höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. 23.1.2012 16:04
Fimmtánda fórnarlambið fundið Björgunarmenn á Ítalíu hafa fundið tvö lík í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia. Tala látinna er því komin upp í 15 og er 18 enn saknað. Kafarar leita enn á neðri dekkjum skipsins. 23.1.2012 15:51
Steven Tyler fór illa með þjóðsöng Bandaríkjanna Söngvarinn og Idol-dómarinn Steven Tyler flutti þjóðsöng Bandaríkjanna þegar ruðningsliðin New England Patriots og Baltimore Ravens mættust í undanúrslitum Ameríska fótboltans í gær. Miðað við framistöðuna í gær hefði Tyler eflaust ekki komist áfram til Hollywood. 23.1.2012 15:34
Endurgerð fyrstu Star Wars myndarinnar birt á Youtube Tveggja klukkutíma endurgerð á fyrstu Stjörnustríðsmyndinni hefur verið birt á Youtube. Þetta er þó engin venjuleg endurgerð því það voru ofurvenjulegir Stjörnustríðsnördar sem sáu um framleiðslu myndarinnar. 23.1.2012 15:14
PIP-málið: Tveir læknar búnir að svara landlækni "Við erum líklega komin með svör frá tveimur lýtalæknum og munum funda með læknafélaginu á morgun til þess að athuga hvernig við getum fengið þessar upplýsingar eins hratt og hægt er,“ segir Geir Gunnlaugsson, landlæknir. 23.1.2012 14:47
Klippt af 160 ökutækjum Um helgina voru skráningarnúmer fjarlægð af eitt hundrað og sextíu ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þau hafi verið ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja. 23.1.2012 14:37
Íslendingar taka sig á í mataræðinu Niðurstöður landskönnunar á mataræði landsmanna 2010-2011 benda til þess að mataræði mataræði Íslendinga hefur þokast nær ráðleggingum um heilsusamlegt mataræði frá árinu 2002. 23.1.2012 14:20
Mikil leit gerð að morðingja sem slapp úr haldi Mikil leit er nú gerð á Englandi að fanga sem slapp úr haldi lögreglu þegar verið var að flytja hann úr fangelsi og í dómshús. Maðurinn var ákærður í síðustu viku fyrir morð en félagar hans óku í veg fyrir fangaflutningabílinn og hótuðu ökumanninum með hnífi. Lögregla lýsir manninum sem mjög hættulegum morðingja og hefur víðtæk leit verið gerð að honum frá því atvikið átti sér stað snemma í morgun. 23.1.2012 13:45
Ákærður fyrir aðild að úraráni - átti að koma þýfinu úr landi Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir aðild sína að ráni í úra- og skartgripaversluninni Michelsen á Laugavegi í október síðastliðnum Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi eftir að þýfið fannst í fórum hans en talið er að hann hafi átt að koma því úr landi. 23.1.2012 13:31
ESB samþykkir olíuviðskiptabann á Íran Íranskir ráðamenn segja nú fullvíst að Hormuz sundi verði lokað. Evrópusambandið hefur nú formlega ákveðið að setja viðskiptabann á olíu frá Íran en bannið tekur þó ekki gildi fyrr en 1. júlí. 23.1.2012 13:23
Heimaeyjargosið hófst fyrir 39 árum Í dag eru þrjátíu og níu ár liðin síðan að Heimaeyjargosið hófst í Vestmannaeyjum. Gosið var fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi en jörðin austan við Kirkjubæ opnaðist rétt eftir miðnætti 23. janúar 1973. Gosið stóð til 3. júlí sama ár en fjölmörg hús fóru undir hraun. Á vef Eyjafrétta segir að vel hafi tekist að koma Eyjamönnum frá Heimaey þar sem flotinn hafi verið að mestu leyti í landi vegna óveðurs daginn áður en gosið hófst. 23.1.2012 13:16
Vinstri grænir ánægðastir með Skaupið - sjálfstæðismenn ósáttari Áramótaskaupið virðist hafa fallið flestum landsmönnum vel í geð, ef marka má nýja könnun MMR. Þar var fólk spurt hvað því fannst um Skaupið og sögðu 64,8 prósent þeirra sem afstöðu tóku að þeim hefði fundist það gott. 18 prósent fannst það bæði gott og slæmt og 17,2 prósent voru á því að það hefði verið slakt. 23.1.2012 12:18
Krefjast afsökunarbeiðni frá Jay Leno Spjallþáttastjórnandinn Jay Leno sætir nú harðri gagnrýni fyrir að hafa smánað helga byggingu Síka á Indlandi. Í þætti sínum sagði Leno að Hið Gullna Hof væri sumarbústaður forsetaframbjóðandans Mitt Romney. 23.1.2012 12:12
Fagnar hertum reglum um klámefni Forstöðumaður Barnahúss fagnar nýju frumvarpi innanríkisráðherra sem flokkar bæði teiknimyndaklám og klám þar sem fullorðnir eru barngerðir sem barnaklám. Hann segir að þannig sé hægt að draga úr líkunum á barnamisnotkun í framtíðinni. 23.1.2012 12:01
Óánægja með Ástu Ragnheiði - 5 stjórnarþingmenn vilja hana burt Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, telur rétt að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir láti af embætti forseta Alþingis. Hann ætlar að styðja tillögu þessa efnis sem nú er í undirbúningi. Mikil óánægja er með störf Ástu Ragnheiðar meðal þingmanna Samfylkingarinnar eftir atkvæðagreiðsluna um Landsdómsmálið á föstudag. 23.1.2012 12:00
Sveik út 450 þúsund - sagði tvífara sinn vera þjófinn Kona á sextugsaldri var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjársvik. Konan notaði tvo greiðslukort sem hún komst yfir í 23 skipti til að kaupa vörur að andvirði 446 þúsund króna. Brotin áttu sér stað í febrúar og nóvember árið 2009. 23.1.2012 11:50
Stofnandi Megaupload fer fram á lausn gegn tryggingu Stofnandi skráarskiptasíðunnar Megaupload fer fram á að verða látin laus gegn tryggingu. Hann var dreginn fyrir dóm í Nýja-Sjálandi í gær en hann er sakaður um að hafa haft rúmlega 500 milljónir dollara af skemmtanaiðnaðinum í Bandaríkjunum. 23.1.2012 11:33
Þrettán látnir í Costa Concordia Björgunarmenn á Ítalíu hafa fundið lík konu í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia. Tala látinn er nú komin í 13 en 20 er enn saknað. 23.1.2012 11:12
Gabrielle Giffords hættir þingmennsku Bandaríski demókratinn Gabrielle Giffords hefur ákveðið að segja af sér embætti. Á síðustu árum hefur Giffords gegnt embætti í fulltrúadeild Bandaríska þingsins. Fyrir rúmi ári var Giffords skotin í höfuðið á kosningafundi í Arizona. 23.1.2012 10:47
Helstu átökin nú innan ríkisstjórnarinnar Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur og kennari í Háskólanum á Bifröst, segir deilurnar innan ríkisstjórnarinnar blasa við öllum, í kjölfar þeirra ákvörðunar þingsins að fella tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga ákæru á hendur Geir H. Haarde til baka. 23.1.2012 10:39
Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld Boðað hefur verið til borgarafundar í Háskólabíóí í kvöld þar sem staða lánþega verður í brennidepli. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur í tvo tíma. Auk reynslusagna verður farið í það hvernig verðtryggingin virkar og bent á lausnir. Fundurinn er sjálfstætt framhald fjölmenns fundar sem haldinn var á sama stað síðastliðið haust. Fundarstjórar verða þau Eiríkur S. Svavarsson og Rakel Sigurgeirsdóttir. 23.1.2012 10:34
Guðrún enn spurningarmerki - viðræðurnar ekki komnar langt "Það er eitt af þessum málum sem þarf að fara virkilega vel yfir," segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi, aðspurður hvort að Guðrún Pálsdóttir haldi áfram sem bæjarstjóri. Nú um helgina hófust formlegar viðræður á milil Sjálfstæðisflokksins, Y-Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins um að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn. 23.1.2012 10:06
Samráð við íbúa um Hljómalindarreit Íbúar, hagsmunaaðilar og Reykjavíkurborg eiga að fá að vera með í ráðum um skipulag á Hljómalindarreitnum svokallaða sem afmarkast af Laugavegi, Hverfisgötu, Klapparstíg og Smiðjustíg. 23.1.2012 10:00
Ridley Scott dæmir í stuttmyndasamkeppni Youtube Leikstjórinn Ridley Scott og vefsíðan Youtube hafa tekið höndum saman og munu skipuleggja stuttmyndasamkeppni. Scott verður formaður dómnefndar og mun hann velja tíu stuttmyndir sem sýndar verða á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. 23.1.2012 09:44
Fjórir struku af unglingaheimili í nótt Fjórir unglingar fæddir árin 1994 til 1997 struku af unglingaheimilinu Lækjarbakka á Rangárvöllum í nótt. 23.1.2012 08:46
Þetta voru greinilega mistök hjá okkur Fyrirtækið Emmess hefur hætt dreifingu á stelpu- og strákaís vegna harðra viðbragða almennings. „Þetta voru greinilega mistök hjá okkur að gera þetta því við höfum fengið mjög hörð viðbrögð,“ segir Leifur Grímsson, markaðsstjóri Emmess. 23.1.2012 08:00
Bjarga skipsflaki með 96 milljarða virði af gulli innanborðs Ákveðið hefur verið að bjarga flaki 300 ára gamals bresks herskips af hafsbotninum við Ermasundseyjarnar. Eftir töluverðu er að lægjast því talið er að gull að verðmæti yfir 96 milljarða króna sé í flakinu. 23.1.2012 07:39
Engar beinar sannanir um tilvist G-blettarins Ný umfangsmikil könnun á 60 ára sögu læknarannsókna um hvort G-bletturinn sé til hjá konum eða ekki sýnir að enn hafi ekki komið fram beinar sannanir um að þessi blettur sé til. 23.1.2012 07:35
Yfirlýsing frá ESB í dag um að banna olíukaup frá Íran Búist er við að utanríkisráðherrar Evrópusambandsins muni gefa yfirlýsingu síðar í dag um bann við innflutningi á olíu frá Íran. Ráðherrarnir funda um málið í Brussel en þetta bann hefur verið lengi í bígerð. 23.1.2012 07:24
Töluvert tjón af leka í heilsugæslustöð Töluvert tjón varð í heilsugæslustöð Seltjarnarness, þegar kaldavatnskrani fór að leka og vatn flæddi um allt og niður í kjallara. 23.1.2012 07:22