Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reykvíkingar fundu skjálfta Jarðskjálfti sem varð nærri Krýsuvík rétt eftir klukkan níu í kvöld fannst greinilega. Samkvæmt bráðabirgðamælingum Veðurstofu Íslands varð skjálftinn klukkan tólf mínútur yfir níu um 2,7 kílómetrum vestnorðvestan af Krýsuvík. Bráðabirgðamælingin sýnir að hann var 3,6 á Richterskvarða. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni varð jarðskjálftafræðingur á vakt enn að reikna út endanlegar niðurstöður. 3.1.2012 21:35
Leikfanga útgáfa af Steve Jobs væntanleg Brátt verður hægt að eignast frumkvöðulinn Steve Jobs í smækkaðri mynd. Meðfylgjandi eru litlar útgáfur af iPad og iPhone. 3.1.2012 19:48
Óvíst hvort nemendur geti komist í hverfisskólann Nemendur á leið í framhaldskóla næsta haust geta ekki gengið að því vísu að komast í sinn hverfisskóla þar sem innritunarreglum verður breytt vegna athugasemda frá Umboðsmanni Alþingis. 3.1.2012 19:12
Segja skotveiðarnar hafa lítil áhrif á fuglastofnana SKOTVÍS, Skotveiðifélag Íslands, telur að skotveiðar hafi lítil áhrif á viðkomu bjargfugla á Íslandi, því árlega séu skotnir nokkrir tugir þúsunda úr stofnum sem telja milljónir. 3.1.2012 17:54
Fær ekki bætur eftir að hafa misst tvær tennur í rennibraut Akureyrarbær var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af skaðabótakröfu föðurs tólf ára gamallar stúlku sem slasaðist í vatnsrennibraut í sundlaug Akureyrar árið 2007. 3.1.2012 16:26
Bátur og norðurljósatúristar í vanda Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar,Hannes Þ. Hafsteinn, er nú á leið til hafnar í Sandgerði með bát sem fékk net í skrúfuna um 13 sjómílur vestur af Sandgerði. Björgunarskipið fékk útkall um klukkan 13:40 og búist við að það komi með bilaða bátinn til hafnar um klukkan 17:00 í dag. 3.1.2012 16:21
Fjallað um landsfund Samfylkingarinnar í næstu viku Framkvæmdarstjórn Samfylkingarinnar mun koma saman í næstu viku til þess að fjalla um tillögu um auka landsfund á vordögum, sem níu flokksstjórnarmenn í Samfylkingunni lögðu fram á flokkstjórnarfundi 30. desember síðastliðinn. Tillagan var lögð fram eftir að hart var deilt um breytingar á ríkisstjórn. 3.1.2012 16:10
Ríkið dæmt til þess að greiða tæpar tólf milljónir vegna læknamistaka Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið til þess að greiða ellefu ára gömlu barni tæplega tólf milljónir króna fyrir læknamistök þegar það fæddist á Landspítalanum-háskólasjúkrahúsi árið 2000. 3.1.2012 15:34
Oddný ekki komin með aðstoðarmann Oddný G. Harðardóttir, nýskipaður fjármálaráðherra, er ekki búin að finna sér aðstoðarmann, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. 3.1.2012 15:13
2400 lítrar af heitu vatni á sekúndu Notkunin á heitu vatni frá Orkuveitu Reykjavíkur á síðasta ári nam 74,7 milljónum tonna sem svarar til 2.400 lítra á sekúndu árið um kring. Þetta er um milljón tonnum meira en árið 2010 og skýrist það að mestu eða öllu leyti af því að hitastigið var lægra, segir á vef OR. Jafngildishiti ársins 2010 var 0,5 gráðum hærri en á síðasta ári. 3.1.2012 14:52
Braut rúðu hjá björgunarsveitinni Unglingur á sautjánda ári braut rúðu í húsnæði Björgunarfélags Vestmannaeyja í reiðikasti. Lögreglan fékk tilkynningu um atvikið í vikunni sem leið. Pilturinn viðurkenndi að hann hefði brotið rúðuna eftir að hafa sinnast við félaga sinn. Hann lofaði svo að bæta tjónið. 3.1.2012 14:51
Stephen Fry í QI: Fræddi fólk um íslenskar nábrækur Stephen Fry og gestir hans í jólaþættinum spurningaþáttarins vinsæla QI tóku íslenskar nábrækur fyrir og leiddu að því líkum að nábrækur séu undirstaða íslensks efnahagskerfis. Þátturinn, sem nýtur mikilla vinsælda á BBC, gengur út á að Fry spyr gesti sína spurninga um allt á milli himins og jarðar og takmarkið er ekki endilega að svara rétt, heldur fremur að koma með nógu skemmtilega útskýringu á fyrirbærinu sem um ræðir. 3.1.2012 14:23
Little talks mest spilað á Bylgjunni árið 2011 Það var nóg um að vera á Bylgjunni á síðasta ári og alveg hellingur af lögum spiluð fyrir hlustendur. Af íslensku lögunum var lagið Little talks með hljómsveitinni Of monsters and men sem fékk mesta spilun á stöðinni á árinu 2011. Í öðru sæti var lagið Lengi skal manninn reyna með Megasi og Ágústu Evu. Óskabarn þjóðarinnar, Mugison, á svo næstu tvö lög í þriðja og fjóra sæti. 3.1.2012 14:05
Gamla lögreglustöðin í Reykjanesbæ full af heitu vatni "Það er búið að seytla þarna inn í um viku," segir Sigtryggur Magnason, einn af eigendum eignarhaldsfélagsins sem á gömlu lögreglustöðina í Reykjanesbæ. Þar uppgötvaðist í dag að heitavatnslögn hafði sprungið og flæddi sjóðandi heitt vatn um allt húsið. Talið er að lögnin hafi sprungið fyrir fjórum til sjö dögum síðan. 3.1.2012 14:04
Líkfundur á landareign Drottningar: Morðrannsókn hafin Lögreglan í Norfolk á Englandi hefur nú lýst því yfir að morðrannsókn sé hafin eftir að lík konu fannst á landareign Elísabetar Englandsdrottningar. Líkið fannst í grennd við Sandringham sveitasetrið sem er í afskektum hluta Norfolk héraðs en konungsfjölskyldan eyðir of fríum sínum þar á bæ. 3.1.2012 13:38
Stefna á að ljúka rannsókn á meintri nauðgun í lok vikunnar Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að embættið stefni á að rannsókn á meintri nauðgun pars í desember, ljúki í vikunni og verði sent ákæruvaldinu til frekari meðferðar. 3.1.2012 13:10
Björguðu tveimur hrossum: Voru búin að éta töglin hvort af öðru "Þau eru komin upp á kerruna og við erum búnir að gefa þeim hey,“ segir Þorsteinn Friðriksson, formaður björgunarsveitarinnar Ægis á Grenivík, sem lagði af stað í morgun í Gæsadal, sem liggur norður frá Víkurskraði, til að sækja tvö hross sem voru þar illa haldin. 3.1.2012 13:01
Ekki lagagrundvöllur fyrir breytingum á innritunarreglum Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra studdist ekki við fullnægjandi lagagrundvöll þegar breytingar voru gerðar á innritunarreglum framhaldsskóla árið 2010. Þetta er mat Umboðsmanns Alþingis. 3.1.2012 12:56
Fjögurra bíla árekstur - mikil hálka á vegum úti Fjögurra bíla árekstur varð um hádegisbilið í dag á Hafnarfjarðarvegi. Samkvæmt upplýsingum frá árekstri.is þá er nær öruggt að óhappið megi rekja til hálku á veginum. 3.1.2012 12:29
Hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún taki starfið Ekki er öruggt að nýskipaður stjórnarformaður Hafró ætli að taka við stöðunni en skipan hennar var eitt af síðustu verkum Jóns Bjarnasonar sem sjárvarútvegs og landbúnaðarráðherra. 3.1.2012 12:04
Vatnstjón í Hafnarfirði Nokkuð tjón varð þegar vatn flæddi um gólf íbúðar í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði um miðjan dag í gær. Einn maður var sofandi í íbúðinni þegar þetta gerðist en viðkomandi var vakinn upp af nágrönnum, sem höfðu greinilega tekið eftir einhverju óvenjulegu. Talið er líklegt að tappi í lagnagrind hafi losnað með fyrrgreindum afleiðingum. 3.1.2012 11:54
Ók í annarlegu ástandi og faldi sig svo í snjóskafli Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn um kvöldmatarleytið í gær en stuttu áður hafði hann verið dreginn upp úr snjóskafli í Háaleitishverfinu af lögreglumönnum. 3.1.2012 11:51
Ungur piltur ók á ljósastaur Bíll valt við gatnamót Laugavegs og Kringlumýrarbrautar í nótt en við stýrið var ungur piltur sem ók á ljósastaur með fyrrgreindum afleiðingum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu skemmdist bíllinn nokkuð og var fjarlægður af vettvangi með dráttarbíl. Til allrar hamingju virðast meiðsli ökumannsins hins vegar hafa verið minniháttar. 3.1.2012 11:40
Vilja friða fimm tegundir af svartfugli Starfshópur á vegum umhverfisráðherra leggur til að fimm tegundir svartfugla verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin. Fulltrúi bændasamtakanna sagði sig úr starfshópnum þegar tillögurnar lágu fyrir. 3.1.2012 11:32
Sex lentu í snjóflóði - mildi að ekki fór verr "Ég hef aldrei séð annað eins,“ segir Barði Sveinsson, bóndi á Innri-Múla, nærri Patreksfirði, en hann lenti óvænt í snjóflóði síðdegis í gær ásamt fimm öðrum. Barði var að sækja sjö kindur sem voru í sjálfheldu á Fuglbergi í Fossdal á Barðaströnd. 3.1.2012 11:01
Ráð gert fyrir fundi um kjötkvóta í mánuðinum Viðræður við ESB um aukningu á tollkvótum lambakjöts sem boðaðar voru í haust hafa tafist. Stefnt er að því að tvöfalda kvótann, úr 1.850 tonnum í 4.000 tonn. Heimila gæti þurft aukinn innflutning á móti. 3.1.2012 11:00
Allt skal vera opið og sýnilegt Dráttur sem orðið hefur á afgreiðslu fyrirspurnar erlendra mannréttindasamtaka um fangaflug leyniþjónustu Bandaríkjanna skýrist að hluta af því að opinbera hlutafélagið Isavia fellur ekki undir upplýsingalög. 3.1.2012 11:00
Flóttamenn frá Norður Kóreu skotnir á færi Mannréttindasamtök segja að þrír íbúar Norður Kóreu hafi verið skotnir til bana af landamæravörðum á dögunum. Fólkið freistaði þess að flýja yfir landamærin til Kína en Yalu áin sem skilur löndin að er nú í klakaböndum. 3.1.2012 10:56
Tuttugu tonnum af síld skolaði upp á land í Noregi Um tuttugu tonn af dauðri síld skolaði upp að ströndinni í sveitarfélaginu Nordreisa í Norður-Noregi í gærmorgun. Málið þykir afar dularfullt og hafa vísindamenn ekki getað gefið eina sérstaka ástæðu fyrir atvikinu. Íbúar í bænum segja það mjög sérstakt að sjá svona mikið magn af síld í ströndinni. 3.1.2012 10:36
Líkfundur á landareign Bretadrottningar Líkamsleifar manneskju hafa fundist á Sandringham sveitasetrinu sem er í eigu Elísabetar Bretadrottningar. Setrið er í afskekktum hluta Norfolk héraðs og konungsfjölskyldan eyðir of fríum sínum þar á bæ. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu fann almennur borgari líkamsleifarnar á Nýársdag í skóglendi á landareigninni. Landareignin er mjög stór og líkfundurinn er í um fimm kílómetra fjarlægð frá sjálfu setrinu. Nánari upplýsingar verða gefnar síðar í dag að því er lögreglan segir. 3.1.2012 09:59
Lilja boðar nýtt stjórnmálaafl "Við munum fljótlega kynna fleiri sem koma að þessum flokki,“ segir Lilja Mósesdóttir, óháður þingmaður, en hún boðar nýtt stjórnmálaafl þvert á alla flokka. Lilja er dul á framtíðaráætlanir þessa framboðs og segir í samtali við fréttastofu að fleiri nöfn verða kynnt á blaðamannafundi von bráðar. Lilja gat þó ekki sagt til um hvenær sá fundur yrði haldinn. 3.1.2012 09:22
Sex gripnir við hassreykingar Lögreglan á höfuðborgrsvæðinu hafði afskipti af sex manneskjum í tveimur bílum í nótt, vegna hassreykinga. 3.1.2012 07:47
Rafmagn aftur komið á bæi á Rangárvöllum Rafmagn komst aftur á bæi og þéttbýli á Rangárvölllum seint í gærkvöldi eftir að þar varð rafmangslaust fyrr um kvöldið. 3.1.2012 07:42
Pitsusendill slapp ómeiddur úr bílveltu Pitsusendill slapp ómeiddur þegar hann velti bíl sínum á mótum Laugavegar, Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar um klukkan tvö í nótt. 3.1.2012 07:39
Tveir í haldi grunaðir um íkveikjurnar í Hollywood Lögreglan í Los Angeles hefur handtekið tvo menn sem grunaðir eru um að hafa valdið nær 60 íkveikjum í borginni yfir áramótin, að mestu í Hollywood. 3.1.2012 07:37
Sex loðnuskip leita að loðnu norður af landinu Sex loðnuskip héldu úr höfn í nótt til leitar og veiða norður af landinu og annar eins fjöldi munu bætast í hópinn á næstu dögum, auk þess sem hafrannsóknarskip heldur til leitar í dag. 3.1.2012 07:29
Aretha Franklin ætlar að giftast á ný Söngkonan Aretha Franklin hefrur tilkynnt um trúlofun sína og vinar síns William Wilkerson kallaður Willie. 3.1.2012 07:25
Mikil stemming í Iowa fyrir prófkjörið í dag Mikil stemming ríkir í Iowa fyrir fyrsta prófkjör Repúblikanaflokksins um forsetaefni flokksins sem haldið verður í dag. Reiknað er með að metfjöldi, eða yfir 120.000 manns, muni taka þátt í prófkjörinu. 3.1.2012 07:21
Tugir þúsunda mómæla nýrri stjórnarskrá Ungverjalands Tugir þúsunda Ungverja mótmæltu nýrri stjórnarskrá landsins á götum Budapest í gærdag og langt fram á kvöld. 3.1.2012 07:19
Miklar breytingar á heimasíðu Google Valinn hópur tölvunotenda hefur fengið nýja útgáfu af heimasíðu Google leitarvélarinnar á netinu til notkunnar en hún fer síðan í loftið fyrir alla síðar í þessum mánuði. 3.1.2012 07:07
Enn óákveðið með aukalandsfund Tillögu um aukalandsfund Samfylkingarinnar á vordögum, sem fram kom á flokksstjórnarfundi fyrir helgi, var vísað til umræðu á næsta flokksstjórnarfundi, sem gert er ráð fyrir að verði í janúar. Ekki er því rétt sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga, meðal annars í Fréttablaðinu í gær, að tillagan hafi verið samþykkt. 3.1.2012 06:30
Ekki borin undir Neytendasamtökin Neytendasamtökin eru ósátt við að vera skrifuð fyrir greinargerð um fyrirhugaða ræktun á erfðabreyttum lífverum á Reykjum í Ölfusi. Á plagginu eru gerðar fjölmargar athugasemdir við að heimila skuli ræktunina, líkt og samtökin greina frá á heimasíðu sinni. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segist aldrei hafa samþykkt greinargerðina, þó svo að hún hafi verið til umfjöllunar af hálfu samtakanna. 3.1.2012 06:00
Stjórnarformanni Hafró skipt út Jón Bjarnason, sem lét af embætti sjávarútvegsráðherra á föstudag, lét það verða eitt af sínum síðustu verkum í embætti að biðja Friðrik Má Baldursson um að láta af embætti stjórnarformanns Hafrannsóknastofnunar. Varð Friðrik við þeirri bón á föstudag og tók Erla Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávariðjunnar á Rifi, við starfinu. 3.1.2012 06:00
Hlé á vinnslu nýtt til fræðslu HB Grandi nýtir vinnsluhlé yfir hátíðirnar til námskeiðahalds fyrir starfsfólk í landvinnslu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur haft þennan háttinn á síðustu ár og að þessu sinni tóku 25 nýir starfsmenn í fiskiðjuverinu á Norðurgarði í Reykjavík þátt í „starfsfræðslunámskeiði fiskvinnslunnar“ en slík námskeið hafa verið haldin allt frá árinu 1986. 3.1.2012 06:00
Nýtist til heilaskurðaðgerða Tekið hefur verið í notkun nýtt tölvustýrt staðsetningartæki á heila- og taugaskurðdeild Landspítala. „Tækið gerir að verkum að skurðaðgerðir á höfði verða bæði nákvæmari og öruggari. Það nýtist best við aðgerðir á æxlum í heila,“ segir á vef Landspítalans. Þá nýtist tækið við ýmsar aðgerðir háls-, nef- og eyrnalækna og bæklunarskurðlækna. Tækið, sem er um 25 milljóna króna virði, er gjöf frá Arion banka og sjóði sem verið hefur í vörslu hans og stofnaður var á sínum tíma til að styðja tækjakaup.- 3.1.2012 06:00