Stjórnarformanni Hafró skipt út 3. janúar 2012 06:00 Steingrímur J. Sigfússon tók við af Jóni Bjarnasyni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á föstudag. Fréttablaðið/daníel
Jón Bjarnason, sem lét af embætti sjávarútvegsráðherra á föstudag, lét það verða eitt af sínum síðustu verkum í embætti að biðja Friðrik Má Baldursson um að láta af embætti stjórnarformanns Hafrannsóknastofnunar. Varð Friðrik við þeirri bón á föstudag og tók Erla Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávariðjunnar á Rifi, við starfinu. Að sögn Friðriks Más hafði Jón samband við hann á fimmtudag og bað um að hann bæðist lausnar úr starfi. Á föstudag varð Friðrik svo við þeirri bón þar sem hann taldi sig ekki geta gegnt starfinu í óþökk ráðherra. Friðrik segir engan aðdraganda hafa verið að bóninni, og þá hafi honum verið þökkuð góð störf í lausnarbréfi sínu. Fréttablaðið náði ekki tali af Jóni Bjarnasyni í gærkvöldi en haft var eftir honum í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins að engar sérstakar ástæður hefðu verið fyrir skiptunum, þá hefði hann verið ánægður með störf stjórnarinnar. Ekki náðist heldur í Steingrím J. Sigfússon sem tekið hefur við embætti sjávarútvegsráðherra. Nýr stjórnarformaður, Erla Kristinsdóttir, hefur verið gagnrýnin á störf Hafrannsóknastofnunar. Í ræðu sem hún flutti í febrúar árið 2010 sagði hún þannig að sjávarútveginum stæði beinlínis ógn af vinnubrögðum stofnunarinnar og gaf í skyn að henni hefði tekist illa upp við að mæla stærð fiskistofna við Ísland.- mþl
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira