Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Olíugóðærið lifir góðu lífi Þrátt fyrir að íslensku auðjöfrarnir séu hættir að fljúga erlendum poppstjörnum til landsins eða fá þær til að heiðra sig með nærveru sinni í afmælum eru arabískir olíufurstar enn í góðum gír. Það hefur löngum verið hefð fyrir því að moldríkir auðjöfrar fljúgi heimsþekktum poppstjörnum til sín og láti þær syngja fyrir sig og veislugesti sína. Soldáninn af Brunei ruddi brautina fyrir þessa hefð, hann hélt meðal annars upp á fimmtugsafmælið sitt með einkatónleikum Michaels Jackson og borgaði honum ríflega sautján milljónir dala. Önnur saga af honum er ekki síður fræg, en þá fékk hann Whitney Houston til að syngja fyrir sig og veislugesti sína og lét hana fá auðan tékka að launum; hún mátti sjálf fylla hann út. 2.1.2012 22:00
Anonymous sýnir klærnar Tölvuþrjótar á vegum Anonymous hafa birt rúmlega 800.000 netföng og lykilorð viðskiptavina bandaríska öryggisfyrirtækisins Stratfor. Gögnin voru birt á internetinu og hafa þau að geyma viðkvæmar upplýsingar um alþjóðleg fyrirtæki sem og hátt setta einstaklinga í opinberum stofnunum Bandaríkjanna. 2.1.2012 21:34
Auglýsingaherferð vegna offitu barna í Bandaríkjunum hneykslar Nýleg auglýsingaherferð gegn offitu barna í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur vakið hörð viðbrögð. Auglýsingarnar sýna sorgmædd börn sem lýsa einelti og öðrum erfiðleikum. Sérfræðingar segja að þetta sé gert til að varpa ljósi á alvarleika málsins á meðan gagnrýnendur segja að auglýsingarnar brjóti niður sjálfstraust barnanna. 2.1.2012 23:26
Innbrotsþjófar tilkynntu sjálfir um innbrot hjá sér Tveir karlmenn voru handteknir í austurborginni í nótt eftir að þeir höfðu hringt í lögreglu og tilkynnt um innbrot. Þegar lögreglumenn ræddu við þá á vettvangi voru mennirnir margsaga en einnig var ýmislegt í fari þeirra sem gaf sterklega til kynna að þeir hefðu komið við sögu í öðru innbroti, sem lögreglan hafði nýhafið rannsókn á. Það var framið skömmu áður á svipuðum slóðum. Í fórum mannanna fundust munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. 2.1.2012 20:39
Velti bíl í hálku Ökumaður velti bifreið sinni á Biskupstungnabraut í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi slasaðist enginn í veltunni. Full ástæða er til að vara fólk við hálku í Árnessýslu og víðar. 2.1.2012 20:08
Skotveiðimenn styrkja Landsbjörg Skotveiðifélag Íslands (SKOTVÍS) færði í dag Slysavarnafélaginu Landsbjörg góða peningagjöf. 2.1.2012 16:54
Svifrykið 17 sinnum yfir mörkum á síðasta ári Styrkur svifryks í Reykjavík var á mælistöðinni við Grensásveg um 61 míkrógramm á rúmmetra á nýársnótt 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og samgöngusviði borgarinnar. 2.1.2012 16:48
Eldur í Smárabíó Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um klukkan hálf átta í morgun um eld í Smáralind, nánar tiltekið í einum af bíósölum Smárabíós. Dælubíll var sendur á staðinn en þegar þangað var komið höfðu öryggisverðir slökkt eldinn sem var minniháttar. 2.1.2012 16:16
Tvö innbrot í Kópavogi í dag Tilkynnt var um innbrot í húsnæði við Nýbýlaveg í Kópavogi um klukkan tuttugu mínútur yfir tólf í dag. Að sögn lögreglu voru rúður brotnar og farið inn í húsnæðið. Ekki er þó ljóst hvort einhverju hafi verið stolið. Skömmu síðar, eða rétt fyrir klukkan tvö í dag var síðan tilkynnt um innbrot í bifreið við Skemmuveg, einnig í Kópavogi. Framhlið á bílaútvarpi var tekin og skemmdir unnar á innréttingu bílsins. Málin eru í rannsókn. 2.1.2012 16:14
Jón var bara að grínast - ekki í framboði Jón Ólafsson athafnamaður vísar því alfarið á bug að hann hyggi á framboð til forseta Íslands. Fyrr í dag var sagt frá því að Jón hafi lýst því yfir í nýársfagnaði í gær að hann ætlaði að bjóða sig fram. Jón segir hinsvegar nú í samtali við Vísi að um gamanmál hafi verið að ræða. 2.1.2012 15:11
Varð fyrir árás Doberman-hunds Til stendur að aflífa Dobermanhund, sem beit sex ára gamla stúlku í matarboði á Akranesi á annan í jólum, á næstu dögum, segir Snorri Guðmundsson dýraeftirlitsmaður á Akranesi. 2.1.2012 14:57
Jón Ólafs lýsir yfir framboði og Jón Gnarr íhugar það Eftir yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar þess efnis að hann hyggi ekki á áframhaldandi búskap á Bessastöðum keppast menn nú við að finna mögulegan arftaka. Tveir Jónar hafa í dag bæst í hópinn, Jón Gnarr borgarstjóri sagðist í viðtali á Rás 2 í morgun vera að íhuga framboð. Jón Ólafsson, sem síðustu ár hefur einbeitt sér að því að selja vatn, er á Pressunni sagður hafa lýst yfir framboði á Nýársfagnaði í gær. Ekki hefur náðst í Jón til þess að fá þetta staðfest. 2.1.2012 14:29
Rætt um að Katrín taki við af Katrínu Þegar að Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fer í fæðingarorlof, sem reiknað er með að gerist á næstunni, er líklegt að ráðherra úr röðum VG haldi um stjórnartaumana í iðnaðarráðuneytinu. 2.1.2012 13:55
Tveir fjögurra bíla árekstrar á sama tíma Tveir fjögurra bíla árekstrar urðu á sama tíma í höfuðborginni á öðrum tímanum í dag. Einn varð á Kringlumýrarbraut í Fossvogi og hinn á Miklubraut til móts við Kringluna. Engin meiðsli urðu á fólki samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is. Mikil hálka er að myndast á götum borgarinnar og eru ökumenn beðnir um að fara sérstaklega varlega. 2.1.2012 13:37
Jólagjöfin í ár í Ameríku var byssa Bandaríska alríkislögreglan framkvæmdi bakgrunnskönnun á einni og hálfri milljón Bandaríkjamanna sem vildu kaupa skotvopn í nýliðnum desembermánuði. 2.1.2012 13:28
Telur líklegt að leið Ólafs liggi í stjórnmálin á ný Doktor í stjórnmálafræði telur leið Ólafs Ragnars Grímssonar nú liggja í stjórnmálin á nýjan leik, mögulega í gegnum flokkapólitík og þingkosningar. Í nýársávarpi sínu hafi hann sagt með afdráttarlausum hætti, að hann segi nú skilið við forsetaembættið. 2.1.2012 12:44
Eldsneyti hækkar - hömstruðu steinolíu fyrir helgi Örtröð myndaðist um áramótin á bensínstöðvum, þar sem menn voru að hamstra steinolíu, sem hækkaði um 39 prósent um áramótin. Þá er hækkun á vöru- og kolefnagjöldum ríkisins þegar farin að hækka verð á bensíni og dísilolíu. 2.1.2012 12:17
Framkvæmdastjóri LÍÚ: Verið að taka hjartað úr sjávarútvegsráðuneytinu Framkvæmdastjóra LÍÚ líst illa á fyrirhugaðar breytingar á ráðuneytum. Hann segir það vera eins og taka hjartað úr sjávarútvegsráðuneytinu að flytja Hafrannsóknastofnun frá því. 2.1.2012 12:13
Tekinn ölvaður undir stýri: Ákvað að taka "sénsinn" Þrír ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Einn af þeim, sem tekin var við Flúðir á nýársnótt, sagði við lögreglumenn að hann ákveðið að taka "sénsinn" þar sem lögreglumenn væru lítið á ferðinni á svæðinu. Annað kom þó í ljós og fær hann eflaust ákæruna senda heim til sín á næstu vikum. 2.1.2012 12:02
Sækir um skilnað 99 ára gamall - kom upp um 60 ára gamalt framhjáhald Ítalskur maður hefur sótt um skilnað við eiginkonu sínu. Það er kannski ekki sérstaklega merkilegt eitt og sér en maðurinn er 99 ára gamall og konan er 96 ára og hafa þau verið gift í 77 ár. 2.1.2012 11:45
Lítið var laust á hótelum yfir hátíðarnar Áætlað er að ríflega 4.000 ferðamenn hafi heimsótt Reykjavík nú um áramótin. Í fyrra er talið að um 3.500 ferðamenn hafi sótt borgina heim, að mati Höfuðborgarstofu. 2.1.2012 11:15
Fagna því að konur séu í meirihluta í ríkisstjórn Íslands Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fagnar því að í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins er kona fjármálaráðherra og konur í meirihluta í ríkisstjórn landsins, samkvæmt tilkynningu sem stjórnin sendi frá sér í dag. 2.1.2012 11:04
Ætlar ekki að rústa öllu því sem Steingrímur hefur gert Oddný G. Harðardóttir býst við að stíga úr stóli fjármálaráðherra í lok sumars. Ráðherranefnd mun endurskipuleggja stjórnarráðið. Verkefni efnahags- og viðskiptaráðuneytis gætu skipst á milli þriggja annarra. 2.1.2012 11:00
Fjöldi nýnema mætir aldrei Brottfall 1. árs nema við Háskóla Íslands er of hátt. Hafi skráningarhlutfall ekki breyst eftir hrun hafa 1.500 stúdentar ekki mætt, hætt snemma eða fallið á prófi. Stöðupróf eru íhuguð til að mæta brottfalli. 2.1.2012 11:00
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fram á mánudag Vegna ölduspár og dýpis í Landeyjahöfn mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar að minnsta kosti til mánudagsins 9. janúar. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan átta og hálf fjögur. 2.1.2012 10:47
Hægt að fylgjast með ferðum strætó á vefnum Með nýju rauntímakorti á vef Strætó bs. er nú hægt að fylgjast með ferðum strætisvagna í rauntíma. Þannig geta strætófarþegar með hjálp nýjustu tækni séð hvar vagninn sem þeir ætla að taka sér far með er staddur á hverjum tíma. 2.1.2012 10:31
Stríðsbrúðurin: Dóttir Larrys og ættleidd systir hittust á kaffihúsi Patti Allen og Melissa Gavin hittust á dögunum á kaffihúsi. Það var ekki fyrr en fyrir skömmu sem þær komust að tilvist hvorrar annarrar. Faðir Melissu er Larry Gavin, sem var giftur íslensku konunni, Rögnu Esther Sigurðardóttir, sem hvarf á dularfullan hátt árið 1951. 2.1.2012 10:20
Norðurpóllinn á þunnum ís Bráðnun íssins við Norðurpólinn er mun meiri en áður var talið. Ísinn hefur minnkað um allt að 75% á síðastliðnum 100 árum. 2.1.2012 10:14
Aðeins helmingur flugferða á réttum tíma Aðeins um helmingur véla Icelandair og Iceland Express frá landinu var á réttum tíma seinnihluta desember. Álíka hlutfall af ferðum Icelandair til Keflavíkur stóðst hinsvegar áætlun. Þetta kemur fram á vefsíðunni túristi.is. 2.1.2012 09:44
Frummatsskýrsla um snjóflóðavarnir kynnt Frummatsskýrsla um "ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla á Ísafirði“ hefur verið lögð til athugunar og kynningar hjá Skipulagsstofnun. Skýrslan fer í auglýsingu rétt fyrir eða eftir áramót og hefst þá formlega kynningarferlið. Skýrsluna er hægt að nálgast á vef Náttúrufræðistofnunar Vestfjarðar ásamt teikningum og fylgiskjölum. 2.1.2012 09:43
Aftur dauðir svartþrestir um allt í smábæ í Arkansas Að þúsundir spörfugla falli dauðir af himni ofan er sjaldgæft. Og að slíkt gerist í sama bæjarfélaginu tvo nýársdaga í röð er sennilega eindæmi í sögunni. 2.1.2012 07:46
Skip og bátar streyma á sjó eftir hátíðarnar Skip og bátar fóru að streyma úr höfnum umhverfis allt land upp úr miðnætti, eftir að jólaleyfi sjómanna var liðið. 2.1.2012 07:42
Rýmdu og lokuðu skemmtistað í Kópavogi í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rýmdi og lokaði skemmtistað í Kópavogi upp úr klukkan fimm í morgun, þar sem skemmtanahald var í fullum gangi og að minnsta kosti 50 gestir innandyra. 2.1.2012 07:40
Vill afturkalla eftirlitsmenn frá Sýrlandi Einn af ráðgjöfum Arababandalagsins, vill að bandalagið kalli eftirlitsmenn sína burt frá Sýrlandi. 2.1.2012 07:29
Íkveikjur á fjórum stöðum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu þurfti að slökkva í fjórum ruslagámum í gærkvöldi og í nótt, en hvergi hlaust alvarlegft tjón af. 2.1.2012 07:28
NASA kom tveimur gervitunglum á braut um tunglið Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, tókst um helgina að koma tveimur rannsóknargervitunglum á braut um tunglið. 2.1.2012 07:22
Brennuvargar herja á borgarbúa í Los Angeles Slökkviliðið í Los Angeles hefur þurft að glíma við yfir 40 íkveikjur í heimahúsum og bílum um áramótin og hefur fjöldi slíkra útkalla á einni helgi ekki verið meiri í borginni síðan í óeirðunum þar árið 1992. 2.1.2012 07:19
N1 hækkar verð á bensíni og dísilolíu Olíufélagið N1 hefur hækkað verð á bensíni um fjórar krónur og 50 aura og á dísilolíu um þrjár krónur og 40 aura. 2.1.2012 07:15
Umsóknir um skotvopnaleyfi slógu öll met vestan hafs Umsóknir um leyfi til að bera skotvopn slógu öll met í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 2.1.2012 07:06
Útsölur hefjast víða í dag Útsölur hefjast víða í dag, meðal annars í mörgum verslunum í Kringlunni og Smáralind, en sumstaðar hófust þær fyrir áramót. 2.1.2012 07:00
Vilja að Margrét Danadrottning víki fyrir Friðriki krónprins Ný skoðanakönnun sem birt er í blaðinu Politiken í dag sýnir að meirihluti Dana vill að Margrét Þórhildur Danadrottning víki sæti fyrir Friðriki krónprins strax eða á næstu fimm til tíu árum. 2.1.2012 06:57
Mitt Romney og Ron Paul með forystuna í Iowa Mitt Romney og Ron Paul eru með forustuna í baráttunni um útnefningu sem forsetaefni Rebúblikanaflokksins í prófkjörinu í Iowa á morgun, þriðjudag. 2.1.2012 06:46
Fyrrverandi meðlimur japanskrar trúarreglu gefur sig fram Fyrrverandi meðlimur trúarreglunnar Aum Shinrikyo í Japan hefur gefið sig fram eftir að hafa verið eftirlýstur í 17 ár. Söfnuðurinn stóð að baki efnavopnaárás í neðanjarðarlestarstöð í Tókýó árið 1995. 13 létust í árásinni og rúmlega 6.000 særðust. 1.1.2012 20:07
Krókódíla-hrekkur endar með skelfingu Þjálfari ruðningsliðs í Bandaríkjunum langaði aðeins að hrekkja liðsmenn sína og pumpa upp andann fyrir komandi leiktíð. Af því tilefni leigði hann lifandi krókódíl, kom með hann á æfingu og fékk krókódílatemjara til að klæða sig upp sem ruðningsmann og glíma við dýrið. Það fór þó ekki betur en svo að krókódílatemjarinn rann og datt í átökunum við dýrið og á svipstundu hafði krókódíllinn læst sig um lærið á honum. Ruðningsliðið fylgdist með í fullkominni skelfingu. 1.1.2012 20:01
Fann giftingarhringinn á gulrót eftir 16 ára leit Sænsk kona er skýjunum eftir að hún fann giftingarhring sem hún glataði fyrir 16 árum. Hringurinn fannst í matjurtargarði konunnar en hann var fastur utanum gulrót sem konan hafði beðið með að taka upp þangað til nú. 1.1.2012 19:38