Fleiri fréttir

Hundur gómaði mink á Reykjanesi

„Það var skemmtilegt að lenda í þessu, sérstaklega miðað við það hvernig þetta endaði," segir Þröstur Halldórsson hundaeigandi í Reykjanesbæ.

Tilfinningarík stund þegar kraftaverkabarnið var kvatt

Það var tilfinningarík stund á ríkisspítalanum í Mugla í Tyrklandi í gær þegar syni hjónanna Dagbjartar Þóru Tryggvadóttur og Jóhanns Árnasonar var komið í umsjá íslenska konsúlsins í Tyrklandi.

Gunnfríður aðstoðar Jón Bjarnason

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ráðið Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur í starf aðstoðarmanns ráðherra. Í tilkynningu segir að hún hafi þegar hafið störf.

Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir Gunnari Rúnari

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í ágúst. Fjögurra vikna gæsluvarðhald Gunnars Rúnars rennur út í dag.

Allir heim að gera það - berbakt

Háttsettur embættismaður í Páfagarði hefur hvatt kristna Evrópubúa til þess að eignast fleiri börn. Ella segir hann að múslimar muni í framtíðinni yfirtaka Evrópu.

Signý nýr varaformaður

Signý Jóhannesdóttir, frá Stéttarfélagi Vesturlands, var fyrir stundu kjörin varaformaður ASÍ. Signý fékk 159 atkvæði eða 64 prósent. Guðrún J. Ólafsdóttir, úr VR, sem einnig bauð sig fram til varaformanns fékk 91 atkvæði eða 36 prósent.

Calvin Klein auglýsingar teknar niður

Risastór auglýsingaskilti frá Calvin Klein hafa verið tekin niður í Sydney og Melbourne í Ástralíu. Myndirnar þóttu klámfengnar og niðrandi gagnvart bæði konum og körlum.

Frumvarp um gengislán lagt fram í ríkisstjórn

Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um gengisbundin lán var lagt fram í ríkisstjórn í dag. Markmið frumvarpsins er að tryggja öllum einstaklingum sem tóku gengisbundin fasteignaveðlán eða bílalán lægri eftirstöðvar, til samræmis við dóm Hæstaréttar frá 16. september.

Til í vopnavald gegn stjórn Baracks Obama

Frambjóðandi til bandaríkjaþings sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann útilokaði ekki að steypa ríkisstjórn Baracks Obama með vopnavaldi ef ekki tækist að koma henni frá í kosningum.

Tunnum ASÍ - mótmælin hafin

Mótmæli undir yfirskriftinni „Tunnum ASÍ" eru hafin fyrir utan Nordica hótel þar sem ársfundur ASÍ stendur yfir. Um 40 mótmælendur hafa safnast þar saman og berst hávaðinn frá börðum tunnum vel inn á fundinn.

Gylfi ánægður með endurkjörið - Guðrún vill varaformanninn

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segist ánægður með endurkjörið en hann fékk um 73 prósent atkvæða, en 183 greiddu honum atkvæði sitt. Kosningin fór fram á ársfundi ASÍ sem nú stendur yfir. Mótframbjóðandinn, Guðrún J. Ólafsdóttir, fékk 64 atkvæði. Gylfi bendir á að þetta sé betri kosning en hann hlaut síðast þegar kosið var um embættið en hann fékk um 10 prósent fleiri atkvæði í þetta sinnið.

Sýking í tattúinu: „Reykjavík er þung byrði að bera“

„Hann fékk sýkingu í handlegginn og pensilín í æð," segir Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra. Sem kunnugt er fékk Jón Gnarr sér nýverið húðflúr með skjaldarmerki Reykjavíkur og virðist sýking hafa hlaupíð í húðflúrið. „Reykjavík er þung byrði að bera,“ segir Björn.

Gylfi endurkjörinn forseti ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, var endurkjörinn með miklum yfirburðum á ársfundi félagsins sem stendur nú yfir. Gylfi fékk um 73 prósent atkvæða, en 183 greiddu honum atkvæði sitt. Mótframbjóðandnn, Guðrún J. Ólafsdóttir, fékk 64 atkvæði.

Guðbjartur: Margar ástæður fyrir töfum

Guðbjartur Hannesson félagsmálaráðherra segir margar ástæður fyrir því að stórframkvæmdir hafi tafist og ekki sé hægt að kenna ríkisstjórninni alfarið um tafirnar. Forseti Alþýðusambandsins segir ríkisstjórnina í gíslingu fámenns hóps sem komi í veg fyrir framkvæmdir.

Býður sig fram gegn forseta ASÍ

Guðrún J. Ólafsdóttir, stjórnarmaður í VR, býður sig fram gegn sitjandi forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnssyni. Ársfundur ASÍ stendur nú yfir.

Fimm mæðrastyrksnefndir á landinum öllu

Mæðrastyrksnefndir eru starfandi á fimm stöðum á landinu. Sú elsta er í Reykjavík en auk hennar eru nefndir í Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri, auk Mæðrastyrksnefndar Vesturlands á Akranesi. Sú síðastnefndar er einnig sú nýjasta en eins og Vísir sagði frá í gær fengu um tíu prósent íbúa Akraness þar aðstoð fyrir síðustu jól.

Breskur kjarnorkukafbátur strandaður

Breskur kjarnorkukafbátur er strandaður við Isle of Sky undan strönd Skotlands. Varnarmálaráðuneytið hefur staðfest að kafbáturinn HMS Astute sé far fastur á klettum.

Baldur: Ég lýsi mig saklausan

Baldur Guðlaugsson fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins lýsti sig saklausan við þingfestingu ákæru á hendur honum í morgun. Hann er ákærður fyrir meint innherjasvik og brot í opinberu starfi.

Lífverðir sendir að heimili Rooneys

Manchester United sendi í gærkvöldi tíu öryggisverði að heimili Wayne Rooneys eftir að stuðningsmenn liðsins mættu þangað til þess að mótmæla væntanlegu brotthvarfi hans.

Heróín- og morfínfíklum fækkar

Heróín- og morfínfíkn var nær óþekkt á íslenskum meðferðarstofnunum fram til ársins 1998. En árið 1999 birtust allt í einu sjúklingar á Vogi sem voru að sprauta morfíni í æð. Þessum sjúklingum fjölgaði fram til ársins 2005 og úr varð mikill og alvarlegur vandi.

„Mestu fjöldauppsagnir í sögu Reykjavíkurborgar“

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að fjöldauppsagnir hjá Orkuveitu Reykjavíkur séu nú orðnar að veruleika. „Með þessum fjöldauppsögnum hefur nýr meirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur horfið frá þeirri stefnu, sem mörkuð var og samþykkt af öllum flokkum í borgarstjórn Reykjavíkur haustið 2008, til að bregðast við áföllum í efnahagslífi landsins. Sú stefna fól meðal annars í sér að ekki yrði gripið til fjöldauppsagna hjá Reykjavíkurborg og fyrirtækjum hennar heldur lögð áhersla á að verja störf fastráðinna starfsmanna," segir í tilkynningu. Á grundvelli þessarar stefnu hefur verið hagrætt um milljarða króna á vegum Reykjavíkurborgar og náðst hefur að fækka starfsmönnum verulega án þess að grípa til fjöldauppsagna. Hjá Orkuveitunni einni hefur verið hagrætt fyrir á annan milljarð króna síðan haustið 2008 og þar hefur starfsmönnum fækkað verulega

Landeyjahöfn áfram lokuð yfir helgina

Dælubúnaður um borð í sanddæluskipinu Perlu, bilaði í gær þegar efnisfarg neðansjávar, hrundi á dælurörið og það festist í botni.

Öflugur jarðskjálfti í Mexíkó

Öflugur jarðskjálfti varð á Kaliforníuskaganum í Mexíkó í gærkvöldi. Skjálftinn mældist 6,9 á richter og samkvæmt upplýsingum frá bandarísku jarðfræðistofnuninni voru upptök hans í Kaliforníuflóa á um 10 km dýpi.

Kjarnorkuhnappurinn hvarf úr fórum Bill Clinton

Hershöfðinginn Hugh Shelton, fyrrum yfirmaður bandaríska herrráðsins, segir að lykilgögn bandaríkjaforseta til að hefja kjarnorkustríð hafi týnst svo mánuðum skiptir þegar Bill Clinton gengdi forsetastöðunni.

Fjórir Litháar í haldi vegna umfangsmikils dópmáls

Fjórir litháískir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að tvo kíló af marijuana , auk anfetamíns og Kókaíns fundust í fórum þeirra við húsleit á fimm stöðum í Grímsnesi, Reykjanesbæ og Reykjavík á miðvikudag.

Tvær konur skotnar af leyniskyttunni í Malmö

Leyniskyttan í Malmö í Svíþjóð lét aftur til skarar skríða í gærkvöldi og skaut tvær konur inn um glugga á íbúð þeirra. Báða konurnar sluppu lifandi en illa særðar úr tilræðinu.

Launin geta fælt frá

Störfum í réttarkerfinu hefur verið fjölgað um um það bil eitt hundrað til að mæta auknu álagi við rannsókn og saksókn og í dómstólum vegna hruns bankanna.

Málið ekki á dagskrá fyrr en í nóvember

Flutningsmenn tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort draga skuli til baka aðildarumsókn Íslands að ESB samhliða stjórnlagaþingskosningu gagnrýndu fundarstjórn Alþingis harðlega í gær.

Milljón tonn á land

sjávarútvegur Það eru liðin 50 ár frá því að tog- og nótaskipið Víkingur AK 100 kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Akranesi. Þessa var minnst á Akranesi í gær með pompi og prakt. Víkingur hefur fært rétt tæplega milljón tonna afla að landi og því leitun að öðru eins happafleyi.

Mælt gegn notkun tækjanna

Göngugrindur eru sú barnavara sem orsakar flest slys á börnum í Evrópu. Níutíu prósent slysa í göngugrindum orsaka áverka á höfði og yfir 30 prósent valda áverka á heila barna. Kemur þetta fram í nýrri rannsókn evrópsku öryggissamtakanna The European Child Safety Alliance og evrópsku neytendasamtakanna Anec.

Orkan seld á næstu misserum

Iðnaðarráðherra boðaði ekki álver á Bakka með orðum sínum í fréttum í vikunni, þótt hún segði stórfellda atvinnuuppbyggingu vísa á Norðausturlandi. Þetta áréttaði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra eftir fyrirspurn Halldóru Lóu Þorvaldsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, á Alþingi í gær.

Sláturbóla herjar á starfsfólk sláturhúsa

Óvenjumikið hefur verið um það í haust að starfsfólk í sláturhúsum leiti læknis vegna veirusýkingar, sem nefnist sláturbóla. Þetta segir Arnar Þór Guðmundsson, yfirlæknir á heilsugæslunni á Selfossi.

Síldarkvótinn 144 þúsund tonn

Íslenskum skipum verður heimilt að veiða 144 þúsund tonn af norsk-íslenskri síld árið 2011. Samkomulag náðist um stjórnun veiða úr stofninum á fundi strandríkja í London í gær. Heildaraflinn verður 988 þúsund tonn sem er 33 prósenta lækkun milli ára.

Sjá næstu 50 fréttir