Innlent

Milljón tonn á land

Á AFMÆLISDAGINN Skipið liggur við landfestar á Akranesi, tilbúið á loðnuveiðar. Litla myndin er tekin daginn sem Víkingur kom til Akraness í fyrsta sinn árið 1960.mynd/karl sigurjónsson
Á AFMÆLISDAGINN Skipið liggur við landfestar á Akranesi, tilbúið á loðnuveiðar. Litla myndin er tekin daginn sem Víkingur kom til Akraness í fyrsta sinn árið 1960.mynd/karl sigurjónsson

sjávarútvegur Það eru liðin 50 ár frá því að tog- og nótaskipið Víkingur AK 100 kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Akranesi. Þessa var minnst á Akranesi í gær með pompi og prakt. Víkingur hefur fært rétt tæplega milljón tonna afla að landi og því leitun að öðru eins happafleyi.

Að sögn Karls Sigurjónssonar, skipaeftirlitsmanns HB Granda á Akranesi, var skipið smíðað í Þýskalandi árið 1960 og var við komuna til landsins meðal stærstu og fullkomnustu fiskiskipa landsins. Víkingur átti þrjú systurskip, Maí GK 346, Frey RE 1 og Sigurð ÍS 33, sem öll reyndust afar vel.

Skipið hefur alla tíð verið gert út frá Akranesi og var upphaflega smíðað sem síðutogari til karfaveiða við Nýfundnaland. Víkingur hefur þó aðallega þjónað sem nótaskip og hefur frá upphafi ýmist verið aflahæsta skipið eða með þeim aflahæstu í sínum flokki. Aflinn á þessari hálfu öld er rúmlega 930 þúsund tonn og þar af er bolfiskaflinn frá togaraárunum um 46 þúsund tonn.

Víkingur hefur undanfarin ár lengst af legið í höfn á Akranesi en að sögn Karls er það klárt á loðnuveiðar. Fyrirtækið á Víking skuldlausan en það sem réttlætir tilveru hans eftir öll þessi ár er eftirfarandi:

„Það er hellingur eftir í þessari sjóborg þó að búnaðurinn sé kominn til ára sinna,“ segir Karl.

svavar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×