„Mestu fjöldauppsagnir í sögu Reykjavíkurborgar“ 22. október 2010 08:49
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að fjöldauppsagnir hjá Orkuveitu Reykjavíkur séu nú orðnar að veruleika. „Með þessum fjöldauppsögnum hefur nýr meirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur horfið frá þeirri stefnu, sem mörkuð var og samþykkt af öllum flokkum í borgarstjórn Reykjavíkur haustið 2008, til að bregðast við áföllum í efnahagslífi landsins. Sú stefna fól meðal annars í sér að ekki yrði gripið til fjöldauppsagna hjá Reykjavíkurborg og fyrirtækjum hennar heldur lögð áhersla á að verja störf fastráðinna starfsmanna," segir í tilkynningu. Á grundvelli þessarar stefnu hefur verið hagrætt um milljarða króna á vegum Reykjavíkurborgar og náðst hefur að fækka starfsmönnum verulega án þess að grípa til fjöldauppsagna. Hjá Orkuveitunni einni hefur verið hagrætt fyrir á annan milljarð króna síðan haustið 2008 og þar hefur starfsmönnum fækkað verulega „Um er að ræða mestu fjöldauppsagnir í sögu Reykjavíkurborgar. Það eru ekki síður vonbrigði að Jón Gnarr Kristinsson borgarstjóri og Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, skyldu standa þannig að þessu pólitíska stórmáli að reynt var að hrinda því í framkvæmd án þess að það kæmi til viðeigandi umfjöllunar í borgarráði eða borgarstjórn. Þegar málið var rætt í borgarstjórn sl. þriðjudag, samkvæmt beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sá enginn borgarfulltrúi meirihlutans sér fært að taka þátt í málefnalegri umræðu um það, hvort æskilegra væri að fara leið fjöldauppsagna eða starfshlutfallsskerðingar til að fækka starfsmönnum fyrirtækisins. Tillaga Sjálfstæðisflokksins um að mildari leiðin yrði farin, var síðan felld af borgarfulltrúum meirihlutans," segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Innlent „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Innlent Fleiri fréttir „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór Sjá meira