Frumvarp um gengislán lagt fram í ríkisstjórn 22. október 2010 14:30 Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um gengisbundin lán var lagt fram í ríkisstjórn í dag. Markmið frumvarpsins er að tryggja öllum einstaklingum sem tóku gengisbundin fasteignaveðlán eða bílalán lægri eftirstöðvar, til samræmis við dóm Hæstaréttar frá 16. september. Rúmlega 37 þúsund heimili eru með slík lán, en það eru þriðjungur heimila í landinu. Skuldir heimilanna lækka um 40-50 milljarða króna við þessa aðgerð, að meðaltali um nærri eina og hálfa milljón á heimili með gengisbundið lán. Markmið frumvarpsins er að tryggja sanngirni, það er að allir lántakendur fái þann ávinning sem dómur Hæstaréttar boðar, óháð orðalagi lánasamnings. Jafnframt verður skilvirkt uppgjör skulda tryggt og lánastofnunum veitt 30 daga hámark til að endurreikna gengisbundin lán eða 60 daga hámark í þeim tilfellum sem eigendaskipti hafa orðið. Í þeim tilfellum er jafnframt gengið úr skugga um að sá lántakandi sem varð fyrir tjóni vegna gengisbreytinga fái það tjón bætt úr hendi lánveitanda. Ef ábyrgðarmenn hafa greitt lán munu kröfur þeirra ganga fyrir öðrum kröfum. Álagning dráttarvaxta eða vanskilagjalda við uppgjör verður í öllum tilvikum óheimil. Verði frumvarpið að lögum gefst lántakendum færi á að halda láninu í erlendri mynt, kjósi þeir svo. Lántakendum með fasteignaveðlán býðst jafnframt að breyta lánum sínum yfir í verðtryggð kjör. Réttur lántakenda til að láta á mál sitt reyna fyrir dómstólum er ekki skertur. Unnið er að því að ljúka við einstök útfærsluatriði í frumvarpinu og beðið er skaðleysisyfirlýsinga frá fjármálastofnunum, sem tryggi að ekki verði beint kröfum á hendur ríkinu vegna löggjafarinnar. Vonir standa til að slíkar skaðleysisyfirlýsingar liggi fyrir af hálfu fjármálastofnana í næstu viku. Gert er ráð fyrir að mælt verði fyrir frumvarpinu um leið og Alþingi kemur saman að nýju þann 4. nóvember.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira