Fleiri fréttir

Foreldrasamtökin segja RÚV brjóta lög

Foreldrasamtökin segja að RÚV hafi tekist með einstaklega óviðeigandi hætti að spyrða saman heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu og áfengisauglýsingum. Samtökin segjast að hafa fengið margar kvartanir vegna þessa síðustu vikurnar.

Leitin að morðingjanum í Bretlandi: „Læsið hurðum og lokið gluggum“

Lögregla hefur beint því til íbúa bæjarins Rothbury að sýna aðgætni í kjölfar nýjustu yfirlýsinga morðingjans Raoul Moat sem talinn er vera í bænum. Talið er að Raoul ógni almenningi, en upphaflega ætlaði hann að beina skotum sínum að lögreglu. Á blaðamannafundi í dag sagði lögreglan að fólk ætti að loka öllum gluggum og læsa hurðum. Þá var fólk kvatt til að vera ekki að þvælast um svæðið að óþörfu.

Þrot Landsbankans sýnir gölluð álagspróf

Álagspróf Fjármálaeftirlitsins voru meingölluð og tóku ekki nægjanlegt tillit til áhrifa af lausafjárskorti á alþjóðlegum mörkuðum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en þar er gamli Landsbankinn notaður sem dæmi til að sýna fram á gölluð eftirlitskerfi banka um allan heim.

Dregið úr heimildum sveitarfélaga til skuldsetningar

Dregið verður úr heimildum sveitarfélaga til skuldsetningar, samkvæmt samkomulagi ríkisstjórnarinnar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þetta á að setja í lög fyrir áramót, en von er á frumvarpi frá fjármálaráðherra um fjármál sveitarfélaganna á haustþingi.

Þyrluáhöfn hjálpaði hjartveikum manni að róa bát á Úlfljótsvatni

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar lenti í óvenjulegu útkalli síðdegis í dag þegar TF-GNA var á heimleið úr æfingu. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst aðstoðarbeiðni vegna báts sem var vélarvana á Úlfljótsvatni. Vegna hvassviðris rak bátinn stjórnlaust um vatnið en sagt var að um borð væri maður með þrjú börn. TF-GNA var komin að bátnum tíu mínútum eftir útkallið og var þá aðeins einn maður í bátnum.

Þurfti að lenda með veikan farþega

Farþegaþota, að gerðinni Airbus 333, á leið frá Amsterdam til Detroit í Bandaríkjunum þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli í kringum hádegið í dag. Um borð var veikur farþegi sem þurfti að komast undir læknishendur.

Fagna ákvörðun Samtaka fjármálafyrirtækja

Hagsmunasamtök heimilanna fagna ákvörðun Samtaka fjármálafyrirtækja um að boðið verði upp á greiðslu á gengistryggðum íbúðalánum. Greiðslur íbúðalána í erlendri mynt verða lækkaðar og festar tímabundið. Frá 1. ágúst geta lántakendur greitt 5 þúsund krónur af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls og þá verður réttur lántakenda tryggður.

SA um sveitarfélögin: Gætu hagrætt um 20 milljarða

Sveitarfélögin á landinu hafa verulegt svigrúm til þess að bæta rekstur sinn að mati Samtaka atvinnulífsins. Í grein á heimasíðu samtakanna segir að sveitarfélög verði að setja sér haldgóðar fjármálareglur sem tryggi eftir föngum hallalausan rekstur þeirra. Í tillögum SA að umbótum í fjármálum hins opinbera er fullyrt að hægt sé að hagræða á vettvangi sveitarfélaga fyrir um 20 milljarða á ári.

Miklatún skal heita Klambratún

Miklatún heitir frá og með deginum í dag Klambratún eftir að borgarráð samþykkti tillögu Jóns Gnarrs þessa efnis í dag.

Ræða samræmdar reglur um náttúruauðlindir

Til greina kemur að samræma reglur um nýtingu orku-, vatns og sjávarauðlinda þannig að nýtingarréttur verði bundinn við ákveðinn árafjölda. Starfshópur á vegum sjávarútvegsráðherra vinnur nú að skýrslu þessa efnis en deilt er um tímalengd nýtingarréttarins.

Regnboginn verður „Heimili kvikmyndanna"

Borgarráð hefur samþykkt að veita hlutafélagi um rekstur svokallaðs „heimilis kvikmyndanna" í Regnboganum 12 milljón króna rekstrar- og framkvæmdastyrk. Í tilkynningu frá borginni segir að félagið stefni að því að hefja að rekstur kvikmyndahúss í húsinu þann 1. september næstkomandi.

Hótaði að láta „stærstu glæpasamtök heims“ lemja ólétta konu

Hálffertugur karlmaður var dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi í dag fyrir að nefbrjóta karlmann og marglemja hann í bifreið. Samkvæmt dómsorði þá hótaði hann einnig manninum en hann sagði að faðir sinn væri hátt settur í „stærstu glæpasamtökum heims“ og að lítið mál væri að láta menn á hans vegum vinna barnshafandi konu fórnarlambsins mein.

Kærumálum eftir bankahrun fjölgar um 126 prósent

Kærðum málum til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra eftir efnahagshrun hefur fjölgað um 126 prósent. Um er að ræða mál frá ársbyrjun 2008 til 2009. Þetta kemur fram í ársskýrslu ríkislögreglustjóra.

Ástsjúkur eiturbyrlari

Sextán ára indverskur drengur hefur verið handtekinn fyrir að hella skordýraeitri í vatnsgeymi skóla síns til þess að hefna sín á nemendum sem honum fannst hafa niðurlægt sig.

Fögur fley á sjó

Ellefu stór seglskip eru nú í heimsókn í Cleveland í Ohio á hátíð háu skipanna eins og þau eru kölluð.

Braut bjórglas á andliti stúlku

Ung stúlka var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kasta bjórglasi í andlit á annarri stúlku á skemmtistaðnum Prikinu. Atvikið átti sér stað fyrir utan salerni skemmtistaðsins þar sem stúlkurnar rifust heiftarlega.

Baðströndin löðrandi í olíu

Olían úr Mexíkóflóa berst nú upp á æ fleiri strendur í Bandaríkjunum. Meðfylgjandi mynd var tekin á Appelsínuströndinni í Alabama.

Bæjarfulltrúar ræddu ráðningu Guðmundar Rúnars

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hittust á fundi í gær og ræddu um afsögn Lúðvíks Geirssonar, fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar segir ráðninguna í anda málefnasamnings flokksins og Vinstri Grænna.

Stal 50 þúsundum en þarf að endurgreiða 21 þúsund

Kassadama í Bónus-verslun í Holtagörðum var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að stela tæplega 50 þúsund krónum úr kassa búðarinnar. Konan, sem er fædd 1986, stal alls fimm sinnum úr kassa verslunarinnar, mest 15 þúsundum krónum í einu.

Fyrrverandi sjónvarpsstjörnur sækja um bæjarstjórastól

Tvær fyrrverandi sjónvarpsstjörnur eru á meðal umsækjenda um stöðu bæjarstjóra í Grindavík. Það eru þeir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur og Þorsteinn Gunnarsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, sem gegnir nú starfi upplýsingafulltrúa hjá Grindavíkurbæ.

Vitorðsmenn morðingja handteknir

Breska lögreglan hefur handtekið tvo menn sem hún segir að hafi verið í vitorði með Raoul Moat þegar hann særði fyrrverandi unnustu sína og myrti nýjan kærasta hennar.

Árborg glímir við lúxusvanda

Það stendur til að ráða framkvæmdastjóra yfir sveitarfélaginu Árborg fyrir mánaðamótin, segir Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs og oddviti sjálfstæðismanna.

Tæplega hundrað manns mótmæla fyrir framan AGS

Nokkuð hefur bæst í mótmælin sem voru áður fyrir utan Seðlabankann en mótmælendur hafa fært sig um set og mótmæla fyrir utan skrifstofu AGS núna. Um 70 mótmælendur lemja á potta og pönnur.

Örfáir mótmæla við Seðlabankann

Um þrjátíu mótmælendur mótmæltu fyrir utan Seðlabanka Íslands í hádeginu. Mótmælin fóru friðsamlega fram. Til stóð að mótmæla fyrir utan skrifstofu AGS einnig.

„Lúðvík sýndi mikið hugrekki“

„Ég er mjög sáttur við þetta. Rödd bæjarbúa heyrðist og það var tekið mark á henni,“ segir Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson, sem hefur verið iðinn við að safna undirskriftum hjá bæjarbúum til þess að knýja á íbúakosningu um ráðningu Lúðvíks Geirssonar, fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar, en hann tilkynnti afsögn sína sem bæjarstjóri í morgun.

Lúðvik Geirsson hættir sem bæjarstjóri

Lúðvík Geirsson hefur ákveðið að hætta sem bæjarstjóri í Hafnarfirði og var Guðmundur Rúnar Árnason ráðinn í stað hans. Meirihlutinn í Hafnarfirði hefur verið gagnrýndur töluvert eftir sveitastjórnarkosningarnar í maí fyrir að ráða Lúðvík í starfið þrátt fyrir að hann hafi ekki hlotið kjör sem bæjarfulltrúi í kosningunum.

Sló tönn úr manni fyrir framan kirkju

Maður á þrítugsaldri var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá annan mann hnefahöggi móts við Reyðarfjarðarkirkju á Reyðarfirði í febrúar á þessu ári.

SMS skilaboð geta reynst hættuleg

Það getur verið hættulegt fyrir fótgangendur að senda SMS skilaboð. Strangar reglur hafa verið settar í mörgum löndum um notkun farsíma í akstri.

Alvarlegum slysum hefur fækkað í ár

Þeim sem slasast alvarlega í umferðinni hér á landi hefur fækkað fyrstu fjóra mánuði ársins samanborið við sama tímabil í fyrra, samkvæmt slysaskráningu Umferðarstofu.

Fann óskemmdan iPod sem hafði legið úti í tvö ár

15 ára starfsmaður Vinnuskólans á Egilsstöðum, Þorgerður M. Þorbjarnardóttir, fann á dögunum iPod í svokölluðum Múla uppi á Jökuldal þar sem hún var að vinna að uppgræðslustörfum. Tækið hafði legið úti í tvö ár samkvæmt fréttavef Austurgluggans.

Grunuðum fíkniefnakóngi stefnt vegna barnsfaðernismáls

Sverri Þór Gunnarssyni hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í tengslum við barnsfaðernismál. Sverrir Þór hefur farið huldu höfði á Spáni síðustu ár. Hans hefur einnig verið leitað, meðal annars af Europol, í tengslum við skipulagðan innflutning á fíkniefnum frá Spáni.

Nánast allsstaðar vantar leikskólakennara til starfa

Erfiðlega gengur að ráða fagmenntaða leikskólakennara til starfa og nánast ekkert sveitarfélag á Íslandi getur uppfyllt lágmarksfjölda menntaðra leikskólakennara sem kveðið er á um í lögum frá árinu 2008. Ingunn Gísladóttir, starfsmannastjóri Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar, segir að ástæðan sé fyrst og fremst sú að allt of fáir hafi farið í leikskólakennaranám undanfarin ár.

Ögmundur: AGS afdráttarlaust á móti almennum lausnum

Ögmundur Jónasson alþingismaður VG segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi lagst afdráttarlaust gegn almennum lausnum á skuldavanda heimilanna. Þetta kom fram í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun þar sem Ögmundur ræddi meðal annars um sjóðinn ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur þingmanni Sjálfstæðisflokksins.

Þrír Al Kaida liðar handteknir í Noregi

Þrír liðsmenn Al Kaida voru handteknir í Noregi í morgun. Þeir eru sagðir hafa verið að undirbúa skæðustu hryðjuverkaárásir síðan árásin var gerð á Bandaríkin árið 2001.

Tveir á slysadeild eftir bílveltu

Bíll fór út af þjóðveginum efst í Hveradalabrekkunum í nótt og valt að minnstakkosti eina veltu áður en hann nam staðar á hjólunum.

Mannskæð sprengjuárás á pílagríma í Bagdad

Yfir 40 fórust og yfir 100 eru særðir eftir sprengjuárás á hóp Shia múslima í norðurhluta Bagdad í Írak í gærkvöldi. Múslimarnir voru í pílagrímaför að helgum stað í borginni.

Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax

Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land.

Ísraelskar vörur verði merktar

Félagið Ísland-Palestína vill að íslenskar verslanakeðjur hætti viðskiptum við Ísrael eða merki að minnsta kosti ísraelskar vörur sérstaklega svo neytendur geti sniðgengið þær.

Sjá næstu 50 fréttir