Þyrluáhöfn hjálpaði hjartveikum manni að róa bát á Úlfljótsvatni 8. júlí 2010 17:57
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar lenti í óvenjulegu útkalli síðdegis í dag þegar TF-GNA var á heimleið úr æfingu. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst aðstoðarbeiðni vegna báts sem var vélarvana á Úlfljótsvatni. Vegna hvassviðris rak bátinn stjórnlaust um vatnið en sagt var að um borð væri maður með þrjú börn. TF-GNA var komin að bátnum tíu mínútum eftir útkallið og var þá aðeins einn maður í bátnum. Seig sigmaður þyrlunnar strax niður í bátinn og fékk hann þá þær upplýsingar frá bátsverja að maðurinn hefði sett börnin í land nokkru áður en báturinn varð vélarvana. Náði hann ekki að koma bátnum í gang og vegna hjartasjúkdóms hafði hann ekki þrek til að róa bátnum að landi í hvassviðrinu. Tók þá sigmaður þyrlunnar, sem einnig er stýrimaður, við að róa bátnum í land. Flutti TF-GNA síðan bátsverjann til fjölskyldu sinnar sem stödd var hinu megin við vatnið ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum. Var maðurinn mjög þakklátur fyrir aðstoðina. Að sögn sigmanns þyrlunnar var ekki um raunverulega hættu að ræða en þar sem þyrlan var í nágrenninu þegar útkallið barst kom ekki annað til greina en að fara til aðstoðar, sagði hann það einnig hafa verið gaman að fá að róa í land enda hafði hann ekki snert við slíku nokkuð lengi.
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Erlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Erlent Fleiri fréttir Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Sjá meira