Fleiri fréttir

Éttu og haltu kjafti

Þar sem Norðmaðurinn Henrik Ulven sat í Ryanair flugvélinni frá Berlín til Rygge í Noregi ákvað hann að gera nú vel við sig.

Rækjuvinnslufólk styður ráðherra

Starfsfólk stærstu rækjuvinnslu á landinu hefur sent frá sér yfirlýsingu til stuðnings ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Framkvæmdastjóri vinnslunnar segir að með ákvörðun ráðherra aukist aðgengi að hráefni og atvinna aukist.

David Cameron gaf Obama graffitiverk

Nýi forsætisráðherra Breta var á töffaralegum nótum í gjafavali fyrir heimsókn sína til Washington. Þeir Obama skiptust á gjöfum í gær.

Metaðsókn í framhaldsskóla

Yfir tvö hundruð nemendur fengu ekki skólavist í þeim framhaldsskólum sem þeir settu í fyrsta eða annað val. Níutíu og fimm prósent nemenda fengu pláss í þeim skólum sem þeir óskuðu helst eftir.Innritun nýmena lauk um miðjan júní og hefur aðsókn aldrei verið jafn mikil og í ár.

Meira en 20% atvinnuleysi

Mun meira atvinnuleysi er á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og atvinnuleysi meðal ungs fólks fór vel yrir 20 prósent á örðum ársfjórðungi.

Íslendingur smyglaði hassi til Færeyja

Íslendingur á þrítugsaldri hefur játað að hafa reynt að smygla fíkniefnum til Færeyja. Við komuna til landsins var uppi grunur um að hann væri með hass innvortis og var hann því fluttur á spítala til rannsókna þar sem fíkniefnin fundust. Maðurinn játaði í kjölfarið sekt sína.

Jim Jarmusch til Íslands

Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jim Jarmusch verður heiðursgestur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar RIFF nú í ár. Hátíðin hefst í september næstkomandi og stendur til þriðja október. Jim Jarmusch mun hljóta heiðursverðlaun hátíðarinnar sem forseti Íslands afhendir á Bessastöðum.

Heppnir Framsóknarmenn snæða með Sigmundi Davíð

Dregið hefur verið úr kosningahappdrætti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Meðal verðlauna er útreiðartúr með Valgerði Sveinsdóttur, sem skipaði annað sæti listans í kosningunum, og miðbæjarrölt og kvöldmatur með formanni flokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.

Yfir 30 slösuðust um borð í Boeing

Yfir 30 manns slösuðust þegar Boeing 777 vél frá United Airlines lenti í mikilli ókyrrð yfir Kansas í Bandaríkjunum í nótt, þegar vélin var á leið frá Wasington til Los Angeles.

Hnefaleikari opnaði barnaþorp

Nýverið var fyrsta SOS Barnaþorpið í Úkraínu tekið formlega í notkun. Þorpið er staðsett í Brovary, skammt frá höfuðborginni Kiev. Eitt hús í nýja þorpinu var reist fyrir íslenskt fé. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ragnari Schram, kynningarstjóra SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Góð gleði í Varsjá

Talið er að yfir 8000 manns hafi tekið þátt í Gleðigöngu homma og lesbía í Varsjá í Póllandi um síðustu helgi.

Frímerki með eldfjallaösku

Íslandspóstur gefur út 3 frímerki fimmtudaginn 22. júlí í tilefni eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli fyrr á þessu ári. Frímerkin eru offsetprentuð á hefðbundinn hátt hjá hollensku frímerkjaprentsmiðjunni Joh. Enschedé en síðan silkiprentuð með mjög fínkorna trakíandesít ösku sem féll undir Eyjafjöllum 17. apríl 2010.

Háskólanemar geta unnið 30 þúsund evrur

Íslenskir háskólanemar fá tækifæri til þess að móta framtíð flugs og vinna 30.000 evrur í alþjóðlegri samkeppni sem Airbus blés til í dag á alþjóðlegu flugsýningunni í Farnborough í Bretlandi.

Fundu óhreyfða gröf Maya konungs í Guatemala

Fornleifafræðingar hafa fundið óhreyfða gröf Maya konungs í Guatemala. Fundurinn hefur vakið mikla athygli enda sjaldgæft að grafir sem þessar hafi sloppið undan grafarræningjum.

Flugmaður í vandræðum

Flugmaður á eins hreyfils flugvél, sem var á leið til landsins í gærkvöldi frá Grænlandi, tilkynnti um að olíuþrýstingur væri fallinn á mótornum og að hann væri í hættu staddur.

Snarráðir lögreglumenn slökktu í gasgrilli

Snarráðir lögreglumenn á Akureyri slökktu með handslökkvitæki eld, sem kviknað hafði í gasgrilli á svölum á annari hæð fjölbýlishúss í Giljahverfi í bænum í gærkvöldi.

Búseta ræður 45% skólaplássa

Alls fengu 82 prósent nemenda í framhaldsskólum pláss í skóla sem þeir settu í fyrsta val og 95 prósent pláss í skóla í fyrsta eða öðru vali. Breytt fyrirkomulag verður við úthlutun plássa í ár, en 45 prósent þeirra fara til nýnema sem búa í nágrenni skóla, uppfylli þeir inntökuskilyrði.

Vísbendingar um hallalausan rekstur

Halli á rekstri Landspítalans á síðasta ári var ríflega 1,3 milljarðar króna, sem nemur um 3,5 prósentum af veltu spítalans. Reksturinn það sem af er ári virðist vera í jafnvægi.

Efling slysavarna hefur skilað árangri

Útköllum Landhelgisgæslunnar hefur fækkað um 32 prósent frá árinu 2007 til ársins 2009. Þetta kemur fram í ársskýrslu Landhelgisgæslunnar fyrir árið 2009 sem nýlega kom út. Árið 2007 voru útköll alls 172 en árið 2009 voru þau 117.

Stjórnvöld munu fá helming framlaga

Staðið verður við það markmið að afganski herinn taki við öryggisgæslu í Afganistan fyrir árið 2014. Þetta sagði Hamid Karzai, forseti landsins, á alþjóðaráðstefnu um málefni þess sem fram fór í Kabúl í gær.

Skotpallur fyrir einkageimferðir

Yfirvöld í Rússlandi ætla að verja jafnvirði 122 milljarða króna í eldflaugaskotpall í austurhluta landsins, að sögn breska ríkisútvarpsins. Vladimír Pútín forsætisráðherra tilkynnti um þessi áform í gær. Pallurinn á að minnka álagið á skotpallinn í Baikonur í Kasakstan, sem reistur var á Sovéttímanum.

Fundur líklega boðaður í ágúst

Vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra um að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar hefur Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskað eftir að boðaður verði sem fyrst fundur í sjávarútvegsnefnd.

Getum varið auðlindir okkar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er bjartsýnn á aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Össur er nýkominn til Íslands frá Króatíu og Ungverjalandi þar sem hann lagði drög að viðræðum.

Heimsækja landamærin

Varnarmála- og utanríkisráðherrar Bandaríkjanna, Robert Gates og Hillary Clinton, munu heimsækja einskismannslandið milli Suður- og Norður-Kóreu í dag. Það gera þau til að sýna „staðfasta skuldbindingu“ sína við Suður-Kóreu.

Hærri skattar þrátt fyrir auknar tekjur

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að batnandi staða ríkissjóðs slái ekki algjörlega á þörfina fyrir skattahækkanir. Greiðslutekjur ríkissjóðs árið 2009 voru 22 milljörðum krónum hærri en gert var ráð fyrir.

Óttast vímuhughrif úr MP3-skrám

„Stafræn eiturlyf“ sem sækja má á Netið ógna velferð ungmenna, að því er segir á fréttavef News9.com í Oklahoma í Bandaríkjunum.

Landsvirkjun gaf 2 milljónir

Landsvirkjun hefur ákveðið að taka þátt í söfnun til styrktar Ómari Ragnarssyni með tveggja milljóna króna framlagi. Fyrirtækið tekur þannig þátt í landssöfnun sem athafnamaðurinn Friðrik Weisshappel stendur fyrir.

Plöntutegundum fækkar í eynni

Plöntutegundum hefur fækkað í Surtsey þriðja árið í röð, og telja vísindamenn líklegt að toppnum í fjölda plöntutegunda hafi verið náð. Skordýrategundum hefur þó fjölgað.

Lokatilraun gerð á morgun

Slökkviliðsmenn gera lokatilraun á morgun til þess að afstýra verkfalli sem annars brestur á næsta föstudag. Sverrir Björn Björnsson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segist ekki geta sagt til um það hvort hægt verði að afstýra verkfalli. Það fari eftir því hvort viðsemjendur komi með eitthvað útspil á samningafundi klukkan tvö á morgun.

Þjónusta við sjúklinga verulega skert

Landspítalinn hefur skorið verulega niður þjónustu við sjúklinga á fyrstu mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Þetta sýnir netútgáfa starfsemisupplýsinga spítalans glöggt. Meðalfjöldi inniliggjandi sjúklinga

Suðlægar áttir í kortunum

21.07.10 Veður mun heldur betur leika við landsmenn á norður- og austurhluta landsins næstu daga en þar er útlit fyrir bjartviðri og talsverð hlýindi alveg fram á sunnudag. Horfur á óspennandi veðri um tíma vestan til á föstudag.

Landeyjahöfn vígð: Lítið skref fyrir mig en stórt fyrir Eyjar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundaði um borð í Herjólfi í fyrstu ferð skipsins í hina nýju höfn. Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja vitnaði í Neil Armstrong í ræðu sem hann hélt við komuna í Landeyjahöfn og sagði tilfinninguna ekki ólíka því og þegar geimfarinn frægi steig fæti á tunglið fyrstur manna.

Beittu klippum til að ná ökumanni úr bifreið

Bifreið fór útaf Þjóvegi 1 í Langadal í dag og er talið að hún hafi farið tvær til þrjár veltur. Beita þurfti klippum til þess að ná ökumanni út úr bifreiðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Austur-Húnavatnssýslu voru tveir í bílnum. Þeir voru báðir fluttir á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi til frekari skoðunar.

Styðja slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í þeirri skelfilegu kjaradeilu sem þeir standa í um þessar mundir við Launanefnd sveitarfélaga. Í ályktun sem stjórn VLFA sendi frá sér í dag er jafnframt lýst yfir gríðarlegum vonbrigðum með það skilnigsleysi sem stjórnin segir að Launanefnd sveitarfélaga sýni Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í þessari deilu.

Cameron í vanda í Washington

Það sem Bandaríkjamönnum er efst í huga í þessari heimsókn breska forsætisráðherrans er annarsvegar olíulekinn á Mexíkóflóa og hinsvegar Lockerbie morðinginn sem Bretar slepptu úr haldi.

Lögreglan leitar að rakstravélaþjófi

Um nýliðna helgi var rakstravél stolið úr heyvinnslutæki sem stóð á túni við þjóðveg nr. 61 í Ísafirði í Ísafjarðardjúpi, innan við bæinn Múla. Um er að ræða verðmæta hluti úr vélinni og er um töluvert tjón að ræða hjá eiganda.

Sjá næstu 50 fréttir