Háskólanemar geta unnið 30 þúsund evrur 21. júlí 2010 09:28
Íslenskir háskólanemar fá tækifæri til þess að móta framtíð flugs og vinna 30.000 evrur í alþjóðlegri samkeppni sem Airbus blés til í dag á alþjóðlegu flugsýningunni í Farnborough í Bretlandi. Samkeppnin ber nafnið Fly Your Ideas eða Komdu hugmyndum þínum á flug og með henni vill Airbus hvetja háskólanema um allan heim til þess að koma með nýjar hugmyndir um grænna flug. Fly Your Ideas er haldin á tveggja ára fresti og fór fram í fyrsta sinn árið 2009, segir í tilkynningu. Í samkeppninni eru þrjár umferðir og hún endar með úrslitum sem fara fram á Le Bourget flugsýningunni í París næsta sumar. Í dómnefnd er fagfólk frá Airbus auk sérfræðinga úr flugiðnaðinum. Sigurvegarar hljóta 30.000 evrur í verðlaun og liðið sem lendir í öðru sæti fær 15.000 evrur. Í síðustu samkeppni komst lið frá Háskóla Íslands áfram í aðra umferð samkeppninnar. Við setningu samkeppninnar sagði Charles Champion, aðstoðarforstjóri verkfræðisviðs Airbus og verndari Fly Your Ideas: „Fly Your Ideas samkeppnin er einstakt tækifæri fyrir nema til þess að taka þátt í sýn Airbus um vistvirkan flugiðnað í framtíðinni. Samkeppninni er ætlað að örva hugmyndir sem miða að tengdari og sjálfbærari heimi. Hún gerir Airbus kleift að tengjast nemum og auðveldar rannsóknarteymum að sjá tækifæri sem beinast að því að sameina aukna umhverfisvernd og meiri kröfur um flugsamgöngur.“ Nemendur á öllum aldri, af mismunandi þjóðerni, kyni og úr öllum fögum – frá verkfræði til markaðsmála; viðskiptum til raunvísinda; heimspeki til hönnunar – eru hvattir til að taka þátt. Tillögur mega vera á öllum sviðum hins „umhverfislega lífsferils“ – leið sem Airbus notar til þess að draga úr umhverfisáhrifum flugvélar og framleiðsluferils hennar. Lífsferillinn er í fimm stigum: Hönnun, aðfangastjórn, framleiðsla, notkun flugvélar og förgun. Fly Your Ideas samkeppnin var haldin í fyrsta skipti árið 2009 og var hún mjög vel heppnuð. 2.350 nemar frá 82 löndum tóku þátt í keppninni sem endaði með því að fjölþjóðlega liðið COz frá háskólanum í Queensland í Ástralíu stóð uppi sem sigurvegari. Tillaga þeirra var að nota náttúrulegt trefjaefni, sem unnið er úr plöntum, í farþegarými flugvéla. „Að vinna Fly Your Ideas samkeppnina árið 2009 var frábær reynsla. En tækifærið að vinna með sérfræðingum Airbus, fá innsýn inn í iðnaðinn og öðlast nýja þekkingu, var alveg jafn dýrmætt," segir hinn 27 ára gamli Benjamin Lindenberger, sem var í sigurliðinu. Til þess að taka þátt í Fly Your Ideas samkeppninni þurfa nemar að skrá sig sem þriggja til fimm manna lið á vefsíðu keppninnar www.airbus-fyi.com fyrir 30. nóvember 2010. Verkefnatillögur þarf að senda inn fyrir 10. desember 2010. Þeir sem valdir eru áfram í aðra umferð munu þróa hugmyndir sínar í nákvæmari hugmynd með aðstoð frá starfsfólki Airbus. Fimm lið komast í úrslit og fá VIP ferð á Le Bourget flughátíðina í París í júní 2011 og kynna þar hugmyndir sínar fyrir sjálfstæðri dómnefnd sem velur sigurvegarann.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira