Innlent

Lögreglan leitar að rakstravélaþjófi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um nýliðna helgi var rakstravél stolið úr heyvinnslutæki sem stóð á túni við þjóðveg nr. 61 í Ísafirði í Ísafjarðardjúpi, innan við bæinn Múla. Um er að ræða verðmæta hluti úr vélinni og er um töluvert tjón að ræða hjá eiganda.

Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að hafa séð bíl eða til mannaferða við þessa rakstrarvél um nýliðna helgi að hafa samband í síma 450 3730.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×