Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja draga ESB-umsóknina til baka Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins auk þingflokksformanns Framsóknarflokksins og þingmanns VG kröfðust þess við upphaf þingfundar í dag dagskrá Alþingis yrði breytt og að þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka yrði sett á dagskrá. Leiðtogaráð ESB ákveður á fundi sínum á morgun hvort hafnar verði aðildarviðræður við Ísland. 16.6.2010 11:21
Sex doktorsvarnir við Háskóla Íslands á einni viku Þessa viku verða einstök tímamót í sögu Háskóla Íslands, þegar samtals sex doktorsvarnir fara fram á sjö daga tímabili. Er það einsdæmi í starfsemi Háskólans en þess má geta að Háskóli Íslands er eini háskólinn hér á landi sem heimilt er að brautskrá doktora af öllum fræðasviðum sínum. 16.6.2010 10:51
Eigandi Draumsins losnar úr haldi í dag Eigandi söluturnsins Draumsins losnar að öllum líkindum úr gæsluvarðhaldi í dag. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á ekki von á því farið verði fram á lengra gæsluvarðhald. 16.6.2010 10:30
Þjóðskrá Íslands tekur til starfa Alþingi samþykkti í gær lög um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands og taka þau gildi 1. júlí næstkomandi. Hin nýja stofnun ber heitið Þjóðskrá Íslands og tekur við verkefnum áðurnefndra stofnana. 16.6.2010 10:25
Heiða Kristín ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarmanns Jóns Gnarr borgarstjóra. 16.6.2010 09:50
Ókeypis í Árbæjarsafnið 17. júní Í Árbæjarsafni verða fallegir þjóðbúningar í aðalhlutverki á 17. júní venju samkvæmt og eru gestir hvattir til að mæta í eigin búningum. Ókeypis verður inn á safnið í tilefni dagsins. 16.6.2010 09:45
Synir Breiðholtsins afhentu borgarfulltrúum skýrslu Fimm menn sem ólust upp í Breiðholtinu afhentu borgarfulltrúum í gær skýrslu um stöðu hverfisins. Forsvarsmaður hópsins er Bjarni Fritzson, landsliðsmaður í handbolta. Í formála skýrslunnar segir hann að síðastliðin ár og áratugi hafi borgaryfirvöld litið framhjá hverfinu og einbeitt sér að öðrum verkefnum. 16.6.2010 09:43
Leikskólinn Hörðuvellir 75 ára Leikskólinn Hörðuvellir í Hafnarfirði heldur upp á 75 ára afmælið sitt í dag. Leikskólinn Hörðuvellir á sér langa sögu. Verkakvennafélagið Framtíðin hóf rekstur dagheimilis í nýbyggingu skólans árið 1935. Áður rak Framtíðin dagheimili sumarlangt árin 1933 og 1934 í gamla barnaskólanum við Suðurgötu, segir í tilkynningu. 16.6.2010 09:35
Áhorfendur hafa valið bestu leiksýningar leikársins Hin árlega uppskeruhátíð leiklistarinnar, Gríman, verður haldin hátíðleg í kvöld. Síðustu tvær vikur hefur staðið yfir netkosning um bestu leiksýningar leikársins að mati áhorfenda. 16.6.2010 09:27
Sjálfstæðismenn og VG starfa áfram saman í Mosfellsbæ Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum hlutu sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ 49,8% atkvæða og fjóra fulltrúa af sjö í bæjarstjórn og bættu við sig manni frá síðustu kosningum. Vinstri græn hlutu 11,7% og einn fulltrúa líkt og fyrir fjórum árum. Flokkarnir störfuðu saman í meirihluta á síðasta kjörtímabili. 16.6.2010 08:37
Guðrún fær lyklavöld í Kópavogi Guðrún Pálsdóttir, nýr bæjarstjóri í Kópavogi, tekur við lyklavöldum á skrifstofu bæjarstjóra klukkan tíu í dag, af Gunnsteini Sigurðssyni sem verið hefur bæjarstjóri í tæplega ár. Þar áður var Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs. 16.6.2010 08:28
Myrtir fyrir að horfa á HM Öfgasinnaðir múslimar í Afríkuríkinu Sómalíu hóta almennum borgurum í landinu ofbeldi og opinberri hýðingu horfi þeir á heimsmeistaramótið í fótbolta. Um helgina voru tveir menn myrtir fyrir að horfa á leik Argentínu og Nígeríu. Hinir herskáu múslimar vísa til laga sem gilda í hluta landsins en samkvæmt þeim er notkun tölvuleikja og áhorf á íþróttir í sjónvarpi á almannafæri stranglega bönnuð. 16.6.2010 08:21
Harðir jarðskjálftar í Indónesíu Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir að þrír öflugir jarðskjálftar riðu yfir austurhluta Indónesíu á fjórða tímanum í nótt að íslenskum tíma. Stærsti jarðskjálftinn var 7,1 á Richter. Í kjölfarið var gefin var út flóðaviðvörun en henni hefur verið aflétt, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. Eftir fyrsta jarðskjálftann fylgdu tveir aðrir sem voru af stærðargráðunni 6,4 og 6,3 á Richter. 16.6.2010 08:16
Þingfundur stóð til morguns Þingfundur stóð til klukkan rúmlega sex í morgun þar sem fjallað var um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Þingfundur hefst aftur klukkan ellefu þar sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mun mæla fyrir frumvarpi um um fækkun ráðuneyta. Þá mun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, mæla fyrir þingsályktunartillögu um samvinnuráð um þjóðarsátt. 16.6.2010 07:45
Slökktu eld á frívakt Mikil mildi þykir að ekki fór verr þegar eldur kviknaði í feitispotti á eldavél í heimahúsi á Selfossi í gærkvöldi. Heimafólk kallaði á slökkvilið, en slökkviliðsmaður og sjúkraflutningamaður, sem bjuggu í grennd við húsið, en voru báðir á frívakt, fengu skeyti um útkallið og þustu á staðinn með eigin slökkvitæki. 16.6.2010 07:26
Hóta að beita hernum Norður-Kóreumenn hóta að beita hervaldi ákveði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að refsa þeim fyrir að sökkva herskipi sunnanmanna fyrr á þessu ári. 16.6.2010 07:22
Ræningjarnir játa Þrír menn hafa játað að hafa ráðist þungvopnaðir inn á hótel í Berlín í mars og rænt þaðan vinningsfé á pókermóti. Ránið vakti talsverða athygli þar sem það var framið um hábjartan dag og fjölmargir þátttakendur voru á mótinu. Á annan tug manna meiddust en flestir þeirra voru starfsmenn hótelsins. 16.6.2010 07:17
Ráðherrar skrifast á um Icesave Breski fjármálaráðherrann, George Osborne, hefur svarað bréfi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um viðræður vegna Icesave-deilunnar. 16.6.2010 06:00
Grunur um herpessýkingar í hestum „Það eru vísbendingar um að veirusýkingar valdi upphafi hrossapestarinnar og streptokokkasýking valdi erfiðari hluta hennar,“ segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir um gang rannsókna á hrossapestinni illræmdu. Halldór segir þessar vísbendingar hafa komið fram í rannsóknum á Keldum. 16.6.2010 06:00
Kafli um fjármálakerfi bíður Hægt verður að hefja aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið þrátt fyrir að ekki hafi náðst samkomulag við bresk og hollensk stjórnvöld um Icesave-málið. 16.6.2010 05:30
Sífellt fleiri vilja leiðréttingu Almenn niðurfelling skulda upp á 20 prósent kostar 114 milljarða, setur Íbúðalánasjóð á hausinn og eykur útgjöld hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og bönkunum. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í ræðu á Alþingi í gær. 16.6.2010 05:15
Drukknir á skytteríi í óleyfi Tilkynnt var til lögreglunnar á Vestfjörðum um síðustu helgi að þrír menn væru að skjóta fugla í Æðey og væru drukknir í ofanálag. Ekki tókst betur til hjá veiðimönnunum en að gúmmítuðran sem þeir voru á varð vélarvana og þurftu þeir að leita aðstoðar hjá ábúandanum sem þeir höfðu verið að skjóta hjá í óleyfi. 16.6.2010 05:00
Fer niður um ellefu krónur N1 lækkaði listaverð á 95 oktana bensíni um ellefu krónur í gær. Algengasta hæsta verðið hjá olíuversluninni fór við það úr 201 krónu í fyrradag niður í 188,8 krónur. Hæsta verðið var hjá Skeljungi á höfuðborgarsvæðinu í gær, 192,5 krónur á lítrann. 16.6.2010 04:30
Stóra kókaínmálið til ákæruvaldsins Rannsókn lögreglu á umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands í apríl er lokið. 16.6.2010 04:30
Fréttaskýring: Leiðtogar samþykkja að hefja viðræður Hvaða áhrif hefur Icesave-málið á fyrirhugaðar aðildarviðræður íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið? 16.6.2010 04:00
Líst ekki illa á sameininguna stjórnsýsla Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við undirbúning sameiningar skattumdæma landsins, samkvæmt skýrslu sem gefin var út í gær. Um síðustu áramót voru embætti ríkisskattstjóra og níu skattstjóra víðs vegar um landið sameinuð í eitt og landið gert að einu skattumdæmi. 16.6.2010 03:30
Metfjöldi frjókorna í loftinu Aldrei hafa fleiri frjókorn mælst í Reykjavík en í apríl og maí síðastliðnum. Þá mældust 2000 frjókorn á rúmmetra á sólarhring. Þetta kemur fram í frjómælingum Náttúrufræðistofnunar Íslands. 16.6.2010 02:30
Rannsakaði ung fötluð börn Freyja Haraldsdóttir hlaut í gær viðurkenningu úr minningarsjóði Ásgeirs S. Björnssonar fyrir lokaverkefni sitt í BA-námi í þroskaþjálfarafræði. 16.6.2010 02:15
Metfjöldi umsókna á Hólum Metfjöldi umsókna barst um skólavist í háskólanum á Hólum nú í vor. Fjölgunin er tæplega 46 prósent milli ára. 16.6.2010 02:15
Gafst upp og sleppti gíslum Maður vopnaður skotvopni, líklega skammbyssu, hélt viðskiptavinum og starfsmönnum H&M fataverslunar í Leipzig í Þýskalandi í gíslingu í nokkrar klukkustundir í gær. 16.6.2010 01:15
Fólk innlyksa á landamærum Að minnsta kosti nokkur hundruð manns hafa látið lífið í óeirðum í suðurhluta Kirgisistans síðustu daga, að mati Rauða krossins. Æ fleiri fréttir berast af því að ýtt hafi verið undir átökin beinlínis til þess að koma bráðabirgðastjórn landsins frá völdum. 16.6.2010 01:00
Ætlaði að leita bin Laden uppi Bandaríkjamaður, vopnaður skammbyssu og 102 sentimetra löngu sverði, fannst einn á ferð í skógi í norðvestanverðu Pakistan á sunnudag. 16.6.2010 00:30
Báturinn fundinn - skipverjar sennilega kærðir fyrir lögbrot Línu- og handfærabáturinn, Eyjólfur Ólafsson GK-38, sem leitað var að í kvöld, fannst kl. 21:45 um 40 sjómílur SV af Reykjanesi eða á svipuðum slóðum og þegar síðast heyrðist til hans um hádegið samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 15.6.2010 22:35
Þyrla og varðskip leita að báti á Reykjanesinu Þyrla Landhelgisgæslunnar auk varðskips leita að línu- og handfærabát, sem síðast heyrðist til um hádegi í dag. Var báturinn þá staddur á Boðagrunni eða 40 sjómílur SV af Reykjanesi. 15.6.2010 21:36
Besti flokkurinn fær Orkuveituna Stjórnarformaður Orkuveitunnar verður Haraldur Flosi Tryggvason lögfræðingur en hann var stuðningsmaður Besta flokksins. Haraldur var áður framkvæmdastjóri Viðskiptablaðsins áður en það fór í þrot árið 2008. 15.6.2010 17:26
Írar reka ísraelska erindreka úr landi vegna Dubai-morðsins Írsk yfirvöld hafa rekið ísraelska erindreka úr landinu vegna fölsunar á vegabréfum í nafni þjóðarinnar þegar ísraelska leyniþjónustan á að hafa tekið leiðtoga Hamas af lífi í Dubai í byrjun árs. 15.6.2010 20:55
Dæmdur fyrir að sofa hjá konum vegna umferðarlagabrota Breski lögreglumaðurinn Jamie Slater var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að misnota aðstöðu sína og sofa hjá og bjóða konum kynlíf sem hann stöðvaði vegna umferðalagabrota. 15.6.2010 19:49
Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík fækkað um þrjár Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík verður fækkað um þrjár og fjöldi starfsmanna missir vinnuna. Skólameistari segir aðgerðirnar mjög sársaukafullar en það eina skynsamlega í stöðunni. 15.6.2010 18:35
Samið um þinglok - vatnalögin söltuð og fækkun ráðuneyta í nefnd Flokkarnir á Alþingi hafa komist að samkomulagi um þinglok. Þá mun vatnafrumvarpið verða sett í salt þangað til í haust. Frumvarp sem snertir á greiðsluvanda heimilanna, eða svokallaður heimilispakki, verður afgreiddur fyrir þinglok. Varnamálalög munu verða samþykkt en með breytingum þó. Fækkun ráðuneyta verður afgreitt í nefnd. 15.6.2010 18:06
Ný bæjarstjórn tekin við í Kópavogi Ný bæjarstjórn Kópavogs tók við völdum í dag. Í upphafi fyrsta fundar nýrrar bæjarstjórnar var kynntur málefnasamningur um meirihlutasamstarf Lista Kópavogsbúa, Næst besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna. Þá var kosið í helstu embætti, nefndir og ráð og var Guðrún Pálsdóttir kjörin nýr bæjarstjóri Kópavogs. Hún tekur við af Gunnsteini Sigurðssyni sem verið hefur bæjarstjóri frá 1. júlí 2009. Honum voru, á fundinum, þökkuð störf í þágu sveitarfélagsins. 15.6.2010 17:58
Stefán: Reyndi að keyra á vin minn og tvo hunda „Maðurinn gerði þetta viljandi. Hann bakkaði bílnum áður en hann lagði til atlögu svo hann kæmist hraðar og reynir að keyra á vin minn og báða hundana," segir Stefán Már Guðfinnsson hundaeigandi í samtali við Vísir.is. 15.6.2010 16:54
Gerir ekki athugasemd við sameiningu embætta Um síðustu áramót voru embætti ríkisskattstjóra og níu skattstjóra víðs vegar um landið sameinuð í eitt. Þar með var landið gert að einu skattumdæmi. 15.6.2010 17:03
Borgarstjóri: „Love is all you need“ Jón Gnarr var settur í embætti borgarstjóra á fundi borgarstjórnar í dag og að loknum fundi tók hann við lyklum að skrifstofu borgarstjóra úr höndum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fyrrverandi borgarstjóra. 15.6.2010 16:34
Samkomulag um vinnustaðaskírteini undirritað Fulltrúar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og aðildarsamtaka þess og Samtaka atvinnulífsins (SA) undirrituðu í dag samkomulag um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Í tilkynningu segir að samkomulagið byggi á lögum nr. 42/2010 sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. 15.6.2010 16:19
Kynnti áætlun um aukið samstarf á milli háskóla Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti fyrir ríkisstjórn í morgun áætlun um aukið samstarf og verkaskiptingu opinberu háskólanna með hugsanlega sameiningu að markmiði. 15.6.2010 16:10
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent