Erlent

Ræningjarnir játa

Mennirnir réðust vopnaðir inn á hótel í Berlín í mars.
Mennirnir réðust vopnaðir inn á hótel í Berlín í mars. Mynd/AFP

Þrír menn hafa játað að hafa ráðist þungvopnaðir inn á hótel í Berlín í mars og rænt þaðan vinningsfé á pókermóti. Ránið vakti talsverða athygli þar sem það var framið um hábjartan dag og fjölmargir þátttakendur voru á mótinu. Á annan tug manna meiddust en flestir þeirra voru starfsmenn hótelsins.

Ræningjarnir sem eru á aldrinum 19 til 21 árs komust ekki á brott með allt vinningsféð en skipuleggjendur pókermótsins fullyrða að mennirnir hafi stolið um 250 þúsund evrum eða tæplega 44 milljónum króna. Tæplega ein milljón af ránsfénu er ófundin.

Ræningjarnir eiga yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×