Innlent

Báturinn fundinn - skipverjar sennilega kærðir fyrir lögbrot

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á stað. Í ljós kom að skipverjar önsuðu hugsanlega ekki köllum gæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á stað. Í ljós kom að skipverjar önsuðu hugsanlega ekki köllum gæslunnar.

Línu- og handfærabáturinn, Eyjólfur Ólafsson GK-38, sem leitað var að í kvöld, fannst kl. 21:45 um 40 sjómílur SV af Reykjanesi eða á svipuðum slóðum og þegar síðast heyrðist til hans um hádegið samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Var nærstaddur bátur fyrstur til að ná sambandi við bátinn en varðstjórar Landhelgisgæslunnar höfðu ítrekað reynt að ná sambandi við hann en það bar ekki árangur.

Var því þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út um kl. 20:30 í kvöld auk þess sem varðskipið Týr, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum og nærstaddur bátar voru beðnir um að hefja leit.

Var bátnum vísað til hafnar þar sem hann gerðist brotlegur við fiskveiðilöggjöfina með því að vera fyrir utan langdrægi fjareftirlitsbúnaðar.

Einnig gerðist hann brotlegur við siglingalög og reglugerð um tilkynningaskyldu.

Eyjólfur Ólafsson GK-38 er gerður er út frá Sandgerði en þar mun lögreglan taka á móti bátnum er hann kemur til hafnar kl. 08:00 í fyrramálið.


Tengdar fréttir

Þyrla og varðskip leita að báti á Reykjanesinu

Þyrla Landhelgisgæslunnar auk varðskips leita að línu- og handfærabát, sem síðast heyrðist til um hádegi í dag. Var báturinn þá staddur á Boðagrunni eða 40 sjómílur SV af Reykjanesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×