Innlent

Besti flokkurinn fær Orkuveituna

Haraldur Flosi Tryggvason formaður Orkuveitunnar.
Haraldur Flosi Tryggvason formaður Orkuveitunnar.

Stjórnarformaður Orkuveitunnar verður Haraldur Flosi Tryggvason lögfræðingur en hann var stuðningsmaður Besta flokksins. Haraldur var áður framkvæmdastjóri Viðskiptablaðsins áður en það fór í þrot árið 2008. Fráfarandi formaður Orkuveitunnar er Guðlaugur G. Sverrisson, sem er í Framsóknarflokknum.

Þá hefur Helga Jónsdóttir verið kjörin varaformaður. Aðrir nefndarmenn eru Aðalsteinn Leifsson, Kjartan Magnússon og Sóley Tómasdóttir.

Varamenn eru:

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Júlíus Vífill Ingvarsson

Ingrid Kuhlman

Guðmundur Þór Reynaldsson

Brynhildur Davíðsdóttir

Formaður skipulagsráðs eru Páll Hjaltason, arkitekt, en hann var í sjöunda sæti hjá Besta flokknum og því varaborgarfulltrúi. Aðrir í nefndinni eru Elsa Hrafnhildur Yeoman, Hjálmar Sveinsson, Sverrir Bollason, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson og Geir Sveinsson.

Þá vekur athygli að tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson er varamaður. Aðrir varamenn eru Kristín Soffía Jónsdóttir, Stefán Benediktsson, Jórunn Frímannsdóttir, Hildur Sverrisdóttir og Jón Karl Ólafsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×