Erlent

Myrtir fyrir að horfa á HM

Tveir menn voru myrtir í Sómalíu um helgina fyrir að horfa á leik frá HM í S-Afríku. Myndin er úr safni.
Tveir menn voru myrtir í Sómalíu um helgina fyrir að horfa á leik frá HM í S-Afríku. Myndin er úr safni.

Öfgasinnaðir múslimar í Afríkuríkinu Sómalíu hóta almennum borgurum í  landinu ofbeldi og opinberri hýðingu horfi þeir á heimsmeistaramótið í  fótbolta. Um helgina voru tveir menn myrtir fyrir að horfa á leik Argentínu og Nígeríu. Hinir herskáu múslimar vísa til laga sem gilda í hluta landsins en samkvæmt þeim er notkun tölvuleikja og áhorf á íþróttir í sjónvarpi á almannafæri stranglega bönnuð.

Ástandið í Sómalíu hefur um langt skeið verið ótryggt og í rauninni hefur ekki verið starfhæf ríkisstjórn né stjórnarher í landinu í tæp 20 ár. Á sama tíma stjórna öfgasinnaðir múslimar stórum svæðum í Sómalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×