Erlent

Harðir jarðskjálftar í Indónesíu

Mynd/AFP
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir að þrír öflugir jarðskjálftar riðu yfir austurhluta Indónesíu á fjórða tímanum í nótt að íslenskum tíma. Stærsti jarðskjálftinn var 7,1 á Richter. Í kjölfarið var gefin var út flóðaviðvörun en henni hefur verið aflétt, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. Eftir fyrsta jarðskjálftann fylgdu tveir aðrir sem voru af stærðargráðunni 6,4 og 6,3 á Richter.

Hundruð íbúa flúðu frá ströndinni minnugur flóðanna miklu annan í jólum fyrir sex árum þegar 230 þúsund manns fórust eftir að jarðskjálfti neðansjávar ollu flóðbylgjum víðsvegar um Asíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×