Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðrar vel til skákiðkunar "Stemningin er mjög góð. Hingað eru að streyma góðir gestir á öllum aldri. Hér er bjart, blæs örlítið, en veðrar mjög vel til skákiðkunar," segir Hrafn Jökulsson, rithöfundur og óþreytandi skákjöfur. Hrafn á veg og vanda af skákhátíð sem haldin er í Djúpuvík í Árneshreppi um helgina. 19.6.2010 09:48
Brúðkaupsæði í Svíþjóð Viktoría krónprisessa Svíþjóðar og fyrrum einkaþjálfari hennar ganga í það heilaga síðar í dag. Hálfgert brúðkaupsæði hefur gripið um sig í Svíþjóð; undanfarnar tvær vikur hefur verið eins konar ástarþema í Stokkhólmi og minjagripabúðir eru troðnar út af myndum af brúðhjónunum. Brúðkaupsdagskráin náði hápunkti í gær með hátíðartónleikum í tónlistarhúsi Stokkhólms. Lokaatriði tónleikanna var barnakór sem söng til þeirra Daniels og Viktoríu, en söngurinn var svo hjartanlegur að bæði Viktoría og Silvía drottning felldu tár af gleði. 19.6.2010 10:35
Þarf að gera upp stuðning Samfylkingarinnar við eina blokk í viðskiptalífinu Samfylkingin hefur ekki enn horfst í augu við ábyrgð flokksins í aðdraganda hrunsins, segir Össur. Þar segist hann ekki vera að tala um þátttöku í ríkisstjórn frá árinu 2007, heldur með því að veita ákveðinni hugmyndafræði löggildingu. Samfylkingin hafi ekki lesið stöðuna rétt. 19.6.2010 07:00
Vill halda í gamla stjórann Svein Harald Øygard er álitlegasti eftirmaður norska seðlabankastjórans. Þetta hefur norska dagblaðið Dagens Næringsliv eftir Svein Gjedrem, núverandi bankastjóra. 19.6.2010 06:00
SÞ hefur áhyggjur af heimilisofbeldi á Íslandi Heimilisofbeldi verður að stöðva og taka verður harðar á ofbeldismönnum. Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hefur áhyggjur af háu hlutfalli ofbeldis á íslenskum heimilum. Hún segir börn kvenna sem verða fyrir ofbeldi hin raunverulegu fórnarlömb. 19.6.2010 06:00
Aðildarviðræður tengdar Icesave Sitt sýnist hverjum um það hvort leiðtogaráð Evrópusambandsins hafi í yfirlýsingu sinni á fimmtudag, þar sem samþykkt var að hefja aðildarviðræður við Ísland, gert kröfu til Íslendinga um að leysa Icesave-málið áður en af aðild geti orðið. 19.6.2010 06:00
Seinkar um allt að tólf mánuði Landhelgisgæslan á von á nýju varðskipi, V/S Þór, en það hefur verið í smíðum í skipasmíðastöð í Chile frá því í október 2007. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að skipið yrði afhent fyrri hluta ársins í ár en jarðskjálftinn sem varð í Chile í febrúar setti strik í reikninginn. 19.6.2010 05:00
Líðan mannsins orðin stöðug Maður sem fluttur var á slysadeild að kvöldi 17. júní eftir að eldur kom upp í íbúð hans við Írabakka, er kominn á almenna deild. Hann dvaldi á gjörgæslu fyrstu nóttina vegna gruns um reykeitrun, en líðan hans er nú stöðug. 19.6.2010 04:00
Rannsóknir tveggja dýralækna stöðvaðar Yfirdýralæknir, Halldór Runólfsson, bannaði í gær tveimur dýralæknum, að halda áfram þeim rannsóknum sem þeir hafa unnið að að undanförnu til að freista þessa að finna meðhöndlun á hrossum sem veikst hafa af smitandi hósta. Jafnframt hafa dýralæknarnir unnið að því að finna leiðir til að efla ónæmiskerfi hrossanna. 19.6.2010 04:00
Dofri og Sigrún Elsa hætta Hvorki Dofri Hermannsson né Sigrún Elsa Smáradóttir, sem skipuðu sjötta og sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar, taka sæti nefndum eða ráðum á vegum borgarinnar sem skipað hefur verið í á nýjan leik. 19.6.2010 03:00
Krían í miklum erfiðleikum Sandsílastofninn á Íslandi hefur minnkað á síðustu árum, meðan annars vegna hlýnunar sjávar. Nýliðun sandsíla brást á árunum 2005 og 2006 og hefur það haft gífurleg áhrif á margar sjófuglstegundir við strendur landsins. 19.6.2010 03:00
Aukið álag á heilbrigðisstofnanir vegna eldgossins Heildarkostnaður heilbrigðisþjónustunnar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur verið metinn 41,5 milljónir króna. Kostnaðurinn hefur að mestu fallið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) en áætlað er að alls muni gosið kosta HSu 32,8 milljónir. 19.6.2010 02:00
Milljón manns þurfa aðstoð Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að milljón manns geti þurft á aðstoð að halda vegna óeirðanna í Kirgisistan. Um þriðjungur þeirra verði líklega flóttamenn frá landinu. 19.6.2010 01:30
Heimsótti gröf bróður síns Jarozlaw Kaczynski, forsetaframbjóðandi í Póllandi, heimsótti í gær gröf tvíburabróður síns, Lech Kaczynskis fyrrverandi forseta, sem fórst í flugslysi í Rússlandi í apríl. 19.6.2010 01:00
Myrtur af syni sínum í Írak Þrítugur Íraki, Abdul-Halim Hameed, skaut fimmtugan föður sinn þar sem hann svaf í rúmi sínu í fyrrinótt. Ástæðan var sú að faðirin vildi ekki segja upp starfi sínu, en hann starfaði sem verktaki og þýðandi fyrir bandríska herinn í Írak. 19.6.2010 00:45
Kona með botnlangabólgu sótt um borð í norskan togara Björgunarmiðstöðin í Stavanger óskaði kl. 12:46 eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar við að sækja 26 ára konu sem talin er vera með botnlangabólgu um borð í norska togarann Langvin sem staddur er að úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg eða 207 sjómílur frá Reykjanesi. 18.6.2010 22:08
Ungur drengur lést þegar hann reyndi að bjarga bróður sínum Hinn átta ára gamli, Tyanthony Duckette, lést í dag þegar hann reyndi að bjarga sautján mánaða gömlum bróðir sínum úr brennandi húsi í Queens í New York. 18.6.2010 21:50
Rannsaka ásakanir um gróft ofbeldi breskra landamæravarða Flóttamannaaðstoð Sameinuðu Þjóðanna rannsaka nú ásakanir á hendur breskra landamæravarða um að hafa flutt 42 Íraka frá Bretlandi til Íraks með ofbeldi fyrr í vikunni. 18.6.2010 20:30
Blúsbræðurnir fá blessun kaþólikka Kvikmyndin Blúsbræðurnir (Blues Brothers) hefur hlotið náð og blessun Vatíkansins fyrir traust og kristileg gildi samkvæmt opinberu dagblaði Vatíkansins. Þar með er kvikmyndin komin í hóp kristilegra meistaraverka eins og The Ten Commandments, Jesus of Nazareth, og jólahugvekjunnar, It's a Wonderful Life. 18.6.2010 21:40
Hafís nálgast landið Nokkur hafís er tiltölulega skammt undan norðanverðum Vestfjörðum og mun að öllum líkindum þokast nær landi. 18.6.2010 18:37
Bílamarkaðurinn gæti lifnað við vegna dóms Hæstaréttar Dauður markaður í sölu nýrra bíla gæti lifnað við og sala notaðra bíla aukist eftir dóm hæstaréttar um ólögmæti gjaldeyrisbílalána. Ljóst er að áhrifin verða víðtæk fyrir bílamarkaðinn í heild. 18.6.2010 18:34
Íslensk kona í farbann - fjarstæðukennt að mati dómara Hæstiréttur Íslands staðfesti farbannsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir íslenskri konu sem búsett hér á landi. Konan ásamt manni sínum, sem er af erlendu bergi brotnu, eru grunuð um að hafa flutt inn fíkniefni. Konan hefur játað brot sitt en segir manninn hafa skipulagt innflutninginn. 18.6.2010 18:00
Bensínbetlari reyndi að blekkja rithöfund Fyrrverandi ritstjórinn og rithöfundurinn Illugi Jökulsson lenti í bensínbetlaranum fyrir nokkrum mánuðum en Vísir hefur greint frá manninum áður en hann betlar pening fyrir bensíni af grandlausum borgurum í því augnmiði að komast til Akraness. 18.6.2010 17:46
Jón Gnarr veiðir fyrsta laxinn Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, mun renna fyrir fyrsta laxinum í Elliðaánum á sunnudagsmorguninn næsta samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 18.6.2010 17:26
Tilkynnti um nauðgun en ákvað að kæra ekki Kona sem sagði lögreglu frá því að henni hafi verið nauðgað á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri á fimmta tímanum síðastliðna nótt hefur ákveðið að leggja ekki fram kæru í málinu. 18.6.2010 16:35
Halla Gunnarsdóttir: Réttur minn fyrir borð borinn Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður og talskona í femínistafélagi Íslands, segir að hún sé mjög ósátt við að Hæstiréttur taki ekki afstöðu til þeirra röksemda sem hún lagði fyrir dóminn. Hæstiréttur vísaði frá kröfu hennar um að þinghald í máli ellefu manna sem kærðir voru fyrir kaup á vændi skuli vera opið. Af þremur dómurum, skilaði einn dómari séráliti og taldi að dómurinn ætti að taka afstöðu til málsins. 18.6.2010 16:28
Uppnám í bæjarstjórnarmálum Dalvíkurbyggðar Mikil óvissa er komin upp í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar eftir að kjörnefnd úrskurðaði í morgun að átta vafaatkvæði í kosningunum í síðasta mánuði skyldu teljast gild en þau höfðu áður verið úrskurðuð ógild. 18.6.2010 18:41
Þyrlan sækir veikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í loftið um klukkan hálfsex í kvöld til þess að ná í konu sem fékk botnlangakast um borð í norskum togara. Skipið er statt á Reykjaneshrygg og er nú á stímí í átt að Íslandi. Drægi þyrlunnar er 150 sjómílur og því getur þyrlan ekki lagt af stað fyrr en skipið er komið nær landi. 18.6.2010 15:51
Dalvík: J-listinn nær ekki hreinum meirihluta J-listi í Dalvíkurbyggð er ekki lengur með hreinan meirihluta í bæjarstjórn en kjörnefnd kvað upp í morgun úrskurð sem segir að átta vafaatkvæði sem nefndin hafði áður úrskurðað ógild séu nú nú gild. 18.6.2010 15:31
Harður árekstur í Njarðvík Tveir aðilar fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Víkingatorginu svokallaða í Njarðvík. Tveir bílar rákust saman á hringtorginu og eru þeir mikið skemmdir. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Suðurnesjum er ekki talið að meiðsli fólksins hafi verið alvarleg. 18.6.2010 16:17
Bið eftir hjartaaðgerð ekki verið styttri í fimm ár Meðalbiðtími eftir hjartaaðgerðum hefur ekki verið styttri í fimm ár að því er fram kemur á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins. Í greinargerð Landspítala vegna hjartaaðgerða kemur fram að biðtími eftir aðgerðum í ár sé 1-2 mánuðir, óháð aðgerð. 18.6.2010 15:18
Samfylkingin fagnar ákvörðun ESB Samfylkingin fagnar ákvörðun leiðtoga Evrópusambandsríkjanna um að hefja aðildarviðræður við Ísland. í tilkynningu frá framkvæmdastjórn flokksins segir að ákvörðunin sé veigamikið skref í því ferli sem hófst þegar Alþingi samþykkti með lýðræðislegum hætti umsókn Íslands fyrir tæpu ári síðan. 18.6.2010 14:43
Ólöf ein í framboði Enn sem komið er hefur Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, ein lýst yfir framboði í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem hefst á föstudaginn eftir viku. 18.6.2010 14:16
Framvísaði vegabréfi annars manns í Leifsstöð Í gær stöðvaði lögreglan í Flugstöð Leifs Eiríkssonar mann sem framvísaði vegabréfi annars manns. Maðurinn var í kjölfarið kærður fyrir misnotkun skjals. Maðurinn var lagði af stað frá Osló í gær og var förinni heitið til Kanada. 18.6.2010 13:46
Harma yfirlýsingar varabæjarfulltrúans Stjórn Samfylkingarinnar í Kópavogi og fimm af sex efstu kjörnu fulltrúum flokksins, harma yfirlýsingar Elfar Logadóttur fyrsta varabæjarfulltrúa flokksins í Kópavogi sem sakaði forystumenn flokksins um ólýðræðisleg vinnubrögð á dögunum. Í yfirlýsingu frá hópnum eru yfirlýsingarnar harmaðaðar „og þær rangfærslur sem þar er að finna og höfnum við öllum ávirðingum um ólýðræðisleg vinnubrögð.“ 18.6.2010 13:28
Um 20 þúsund manns fylgjast með borgarstjóra á Fésbók Um 20 þúsund manns eru orðnir aðdáendur dagbókar borgarstjóra á Fésbókinni en ekki er liðinn sólarhringur frá því síðan var stofnuð. 18.6.2010 13:27
Brúðkaupsæði í Svíþjóð Sænska þjóðin bíður með öndina í hálsinum eftir morgundeginum, en þá gengur einkaþjálfarinn Daníel Westling að eiga heitkonu sína, Viktoríu Krónprinsessu. Íslensku forsetahjónin héldu utan til brúðkaupsins í morgun. 18.6.2010 12:51
Laxveiði byrjar vel í Borgarfirði Yfir 60 laxar komu á land við opnun Þverár og Kjarrár í Borgarfirði, að sögn héraðsritsins Skessuhorns, sem segir laxveiðina þar hafa byrjað frábærlega. Þegar hún hafði staðið yfir í tvo daga höfðu 30 laxar veiðst í Þverá og 20 í Kjarrá. 18.6.2010 12:35
Leiddur fyrir aftökusveit í Utah Bandaríkjamaðurinn Ronnie Lee Gardner var í nótt tekinn af lífi í Utah ríki. Hann var skotinn til bana af aftökusveit. Gardner var 49 ára gamall og hann hafði dvalið á dauðadeild í 25 ár fyrir að myrða lögfræðing árið 1985 þegar hann reyndi að flýja úr dómshúsi í Utah þar sem réttað var yfir honum vegna annars morðs. Hann var leiddur fyrir aftökusveit og skotinn en fimm sjálfboðaliðar úr lögreglunni framkvæmdu aftökuna. 18.6.2010 12:35
Síðasta vitaverðinum sagt upp Siglingamálastofnun hefur sagt síðasta vitaverði á landinu upp. Það er Sigurður Pálsson á Baugstöðum, en hann hefur hirt um Baugsstaðavita, austan við Stokkseyri, í áratugi og tók hann við því starfi af föður sínum. 18.6.2010 12:34
Gengistrygging: Engin inngrip áformuð af ríkisstjórn Ríkisstjórnin fundaði í morgun um viðbrögð við dómum Hæstaréttar þess efnis að gengistryggð bílalán séu ólögmæt. Eftir fundinn sagði Jóhanna Sigurðardóttir að engin inngrip af hálfu ríkisins séu áformuð sem skerða myndu rétt fólks. 18.6.2010 12:29
„Þetta er mjög leiðinlegt“ Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir afar leiðinlegt að flokkurinn hafi eytt meiru en það hámark sem stjórnmálaflokkarnir settu um auglýsingakostnað í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Skýringin er sú einstök framboð sem ekki áformuðu auglýsingar í landsmiðlum gerðu það á síðustu metrum kosningabaráttunni og nefnir Jónmundur Kópavog sem dæmi. 18.6.2010 12:18
Kröfu um opið þinghald í vændismáli vísað frá Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu Höllu Gunnarsdóttur blaðamanns um að þinghald í máli ellefu manna, sem kærðir voru fyrir kaup á vændi, skuli vera opið. Hæstiréttur vísaði málinu frá á þeim forsendum að Halla eigi ekki lögvarða hagsmuni. 18.6.2010 11:55
Sjálfstæðismenn brutu samkomulag um auglýsingakostnað Sjálfstæðisflokkurinn braut samkomulag sem stjórnmálaflokkarnir gerðu um auglýsingakostnað í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Samkomulagið fól í sér að heildarkostnaður hvers flokks vegna auglýsingabirtinga í fjölmiðlum yrði ekki hærri en 11 milljónir króna að meðtöldum virðisaukaskatti á tímabilinu 29. apríl til og með 29. maí. 18.6.2010 10:54
Sameiginlegur nefndafundur vegna Hæstaréttardóms Nefndarmenn í efnahags- og skattanefnd og viðskiptanefnd hittust á sameiginlegum fundi klukkan tíu í morgun. Umræðuefni fundarins eru nýfallnir dómar í Hæstarétti þar sem dómarar komust að þeirri niðurstöðu að ólögmætt væri að gengistryggja bílalán við erlenda gjaldmiðla. Nefndarmenn fá til sín gesti og ræða þá stöðu sem upp er komin. 18.6.2010 10:19